Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.03.1907, Blaðsíða 5

Tímarit  kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.03.1907, Blaðsíða 5
Inngangsorð. Um fátt er mönnum tíðræddara nú á tímum, en efna- legar framfarir þjóðanna á síðustu áratugum. f*etta er eðlilegt, því þessar framfarir hafa, í mörgum greinum, verið stórkostlegar, og verður því ekki neitað, að við ís- lendingar erum hjer orðnir all-langt á eptir. Sjerstaklega vaknar og skerpist eptirtekt vor á þessu, er vjer heyrum eða lesum um framfarir bænda og alþýðu meðal annara þjóða, því það er oss skyldast. Vjer áttum oss fljótt á, að hjer er um menn að ræða, sem.fyrir skömmum tíma var líkt ástatt fyrir og oss nú. Oss langar, eðlilega, til að feta í fótspor þeirra, og oss finnst eigi ólíklegt, að oss muni geta tekizt það, sem þeim hefur tekizt. Pegar vjer nú grennslumst eptir orsök og undirstöðu þessara efnalegu framfara alþýðu í öðrum löndum, hljót- um vjer að sannfærast um, að fyrsta og þýðingarmesta skilyrðið er aukin menntun alþýðu; menntun, sem er sniðin eptir lífskjörum og lífsstöðu alþýðumannsins, og um leið byggð á þjóðlegum grundvelli. Allar verklegar framfarir, sem ekki eru byggðar á þessum grundvelli, eru meira í orði en á borði, og hafa venjulega mikla og athugaverða ókosti og agnúa. Má, því til sönnunar, benda á hinar geysilegu framfarir í alls konar stóriðnaði, vjela og verksmiðjuiðnaði. Honum fylgir, svo sem kunnugt er, atvinnuleysi stórra mannhópa, og margskonar eymd og óánægja. þetta er auðvitað ekki umbótunum sjálfum að kenna, heldur hagnýtingu þeirra. Hjálpast þar að ó-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga
https://timarit.is/publication/329

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.