Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.03.1907, Blaðsíða 44
44
hún mjög skiljanleg. Um fræðslu almennings hefur verið
sáralítið hirt, svo þekkingin hefur orðið af ailt of skorn-
um skammti. Pað gengur seigt og seint að greiða götu
fyrir sjálfseign á landblettum eða tryggja mönnum þar
eignarrjett á sönnum umbótum. Samgöngutæki á landi
eru í svo stórkostlegu ólagi, að það eitt er nóg til þess
að fæla menn frá að »taka land« og stunda þar ræktun
og framleiðslu. Útlendingadálæti og blind stæling erlendr-
ar tízku hefur dáleitt ýmsa áður en þeir gætu sjeð, hvað
hjer ætti bezt við af annara þjóða háttum. Pá er það
eigi sízt að telja, að fjelagsleg samvinna hefur lítilli festu
eða fylgi náð; því hefur sveitalífið orðið dauflegra, er-
viðara og arðminna en ella mundi; tilraunir til samtaka
hafa átt litlu fylgi að fagna hjá blaðamönnum þjóðarinn-
ar, og er svo að sjá sem þar hafi kaupmannastjettin
verið óskabarnið; forgöngumenn fjelagslegra samtaka
hafa lítið getað náð saman og flesta tengiliði vantað;
hjer við bætist gamall sundrungarandi og tortryggni,
svo ekki er furða þó sniátt hafi ágengt orðið með áhrif
fjelagsskaparins á bygging landsins og fólksflutnings-
hreyfingar.
Meðan hjer er eigi meira unnið að því, með framsýni
og samhentum vilja, að byggja landið og bæta það,
heldur en enn er fram komið, er fólksflutningshreyfing-
in hjer á landi mjög skiljanleg. Fjöldinn allur lætur sig
lítið varða um útlit hinna komandi tímanna; hann stefnir
því þangað, sem bjartast sýnist að vera hinar næstu stund-
ir. Að líkindum heldur því straumurinn áfram, frá sveit-
unum, unz svo er komið umbótum, að fleiri og bjartari
Ijós skína að baki á þeim stöðvum, sem frá var vikið.
Að þessu sinni skal eigi fjölyrt um það, hvað í þessu
efni sje líklegast til áhrifaríkra ráða. En það er bæði fróð-
legt til samanburðar og ætti að getagéfið þarflegarbending-
ar að líta út fyrir pollinn. Er þá einna næst að athuga
ástandið í Danmörku eins og það hefur verið á síðari
tímum, hvað fólkshreyfingar innanlands snertir.
Frá 1. Febrúar 1901, til 1. Febrúar 1905, eða síðast