Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.03.1907, Blaðsíða 16
16
þegar á fundinum kosinn til að sjá um útgáfu tímarits-
ins. Næsta ár, 1896, kom tímaritið út, rúmar fjórar arkir.
Arið 1897 kom tímaritið aptur út, hálf sjöunda örk, en
síðan ekki. Rit þetta fjekk talsverða útbreiðslu og mun
því vera í margra eigu; vísa eg því til ritsins sjálfs, um
efni þess og þýðingu.
Sambandsfjelag þetta stóð eigi lengi, eins og mörg-
um er kunnugt. Hinar verklegu menjar um starfsemi
þess er að eins tímaritið; annað er það ekki, svo mjer
sje kunnugt um. Hvað fjelaginu hefir orðið að aldur-
tila get eg eigi með vissu sagt; líklega margt: Fundir
voru strjálir og á óhentugum tíma (þingtímanum), þar
sem fulltrúar allir voru jafnframt alþingismenn; lítið varð
um brjefaviðskipti og skýrslusendingar og engin verkleg
samvinna gat framgang fengið. Sambandið var, að mestu
leyti, pappírssamband, og það ófullkomið þó.
Svo liðu um fimm ár, að ekkert kaupfjelagssamband
var starfandi. Um þær mundir, og lengur, var einnig
frekar um vörn en sókn að ræða fyrir fjelögunum. Þau
áttu, í mörgum efnum, við raman reip að toga: Gjal-
eyrir þeirra var í lágu verði; stundum þrengdu skuldir
að, og ýmsar umbótavonir urðu að litlu liði. Hinsvegar
Ijet hátt í eyrum kaupfjelaga hylliboð gamalla og nýrra
keppinauta, tækifærisframboð og hóflaust verðlagstildur á
innlendum gjaldeyri í straumflóði hinnar nýju sam-
keppni. það var eigi svo auðvelt, á þeini tímum, að fá
menn til að átta sig, rannsaka allt ýtarlega og hleypi-
dómalaust, svo sjeð yrði, hversu sök horfði, og það þess
heldur, sem heita mátti lokuð leið að dagblöðum og
tímaritum, fyrir orð og tölur frá kaupfjelögunum.
Pá var það að hin þrjú kaupfjelög í Þingeyjarsýslu
fóru að undirbúa samband sín á rneðal, til trausts og
varnar og ýmislegrar samvinnu, þegar því yrði við
komið. Pessi fjelög voru:
Kaupfjelag Norður-Pingeyinga,
Kaupfjelag þingeyinga og
Kaupfjelag Svalbarðseyrar.