Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.03.1907, Blaðsíða 23
Fregnir
um aðalsamkomu hins danska sambandsfjelags
8. Júní 1905. Útdráttur.
í þetta skiptið var samkoman haldin í Kaupmannahöfn
í hinum stóra samsöngssal á Tivoli. Á fundinum mættu
um 1200 manna. Formaður sambandsfjelagsins — Severin
Jörgensen — bauð alla velkomna, fyrir hönd stjórnar-
nefndar, á þennan tíunda aðalfund sambandsfjelagsins;
beindi hann þessu einkum til sjerstakra fundarmanna,
er boðnir höfðu verið, en meðal þeirra var einn íslend-
ingur: candídat Bogi Th. Melsted. Óskaði formaður fund-
inum friðar og heilla, en tók það fram um leið, að hann
vildi eigi að þær aðfinnslur væru útilokaðar, sem stæðu
í beinu sambandi við fundarmálefni. Pá minntist hann
andláts konungs vors, Kristjáns IX., og.minntist fráfalls
eins gamals og góðs fulltrúa fjelagsins. Enn fremur minnti
hann á, að nú væru liðin 40 ár frá því að faðir dönsku
kaupfjelaganna, prófasturinn Hans Kristján Sonne, stofn-
aði hið fyrsta kaupfjelag í Danmörku, og ruddi þannig
braut fyrir samvinnuhreyfingunni, er hefði haft svo mikla
°g farsæla þýðingu fyrir þjóðina. Jafnframt gat hann þess,
að nú væri í smíðum minnisvarði yfir Sonne, sem yrði
afhjúpaður í haust í Viby hjá Árósum.
Því næst fór fram kosning fundarstjóra og skrifara.
f*á skýrði formaður frá starfsemi fjelagsins, síðast liðið
ár; var jaað alllangt mál og ýmislegs efnis, og skal hjer
sumt af því til greint í útdrætti.
Meðal annars tók formaður þetta fram. Prátt fyrir þá
2*