Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.03.1907, Blaðsíða 25
25
fjelaginu nokkurt tap, og taldi hann þetta atvik að nokkru
leyti því að kenna, að þar hefði verið óheppilegur for-
stöðumaður um tíma.
Sambands við ísland minntist formaður á þessa leið:
Yður mun það kunnugt, að á íslandi er mikill áhugi
á því að stofna þar samvinnufjelög. í þessu efni er það
tilgangurinn að gjöra íslendinga efnalega sjálfstæðari en
þeir eru nú, þar sem nú eru þeir óþolanlega háðir út-
lendingum, sem að mestu leyti ráða verzluninni, og hafa
einnig með höndum hin stærri fyrirtæki. Pessi áhugi
hefur aukizt við það, að þeir Bogi Th. Melsted, hinn
íslenzki sagnfræðingur, og M. P. Blem þjóðþingsmaður
hafa ferðazt um ísland og haldið þar fyrirlestra um sam-
vinnufjelagsskap, fyrir miklum hluta þjóðarinnar. Sam-
bandsfjelag vort hefur tekið að sjer að sjá um nám ís-
lendifigsins Odds Jónassonar, svo hann geti veitt for-
stöðu sambandsfjelagi hinna íslenzku kaupfjelaga. Annar
Islendingur, Ingimar Sigurðsson — bróðir hins kunna
skólastjóra Sigurðar Sigurðssonar, — hefur fengið aðgang
að samfjelagsslátrunarhúsinu í Esbjerg, svo hann geti
orðið fær um að veita forstöðu samfjelagsslátrunarhúsi
fyrir sauðfje á Akureyri. Annað samskonar slálrunarhús
á að setja á stofn í Reykjavík. Hin íslenzku kaupfjelög
óska þess að fá vörur sínar frá hinu danska sambands-
fjelagi, og að fjelagið styðji sölu íslenzkra afurða hjei í
Danmörku; viljum vjer, að sjálfsögðu, styðja að þessu
eptir megni. Samskipti við ísland ættu að geta orðið til
§agns á báðar hliðar.
Næst þessu tók formaður fram, að horfurnar í ár
væru fremur álitlegar, og líklegt að vöxtur fjelagsins
yrði ekki minni nú en árinu áður. Frá nýári hefðu bæzt
við 41 kaupfjelag með 197 hlutum, en á jöfnum tíma í
fyrra 22 fjelög með 126 hlutum. Umsetningin, i ár,
mundi verða allt að 30 milj. kr.
Pá Iagði form. fram reikning fjelagsins, og kom jafnframt
með tillögu um það, að 5 % væri skipt út til hluthafa, sem
ágóöa þeirra af seldum vörum (sbr. reikningsútdrátt aptar).