Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.03.1907, Blaðsíða 51

Tímarit  kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.03.1907, Blaðsíða 51
51 stjórnarfar landsins batnaði, löggjöfin var endurbætt, samgöngur löguðust nokkuð, og menn fóru svo lítið að temja sjer fjelagslega samvinnu, en stórmikið skortir enn á það, að fjelagslundarakur þjóðarinnar sje viðunan- lega búinn undir góða uppskeru, enn sem komið er. Mönnum hefur skilizt það, að nokkru leyti, að sam- eining styrkir en sundmng veikir, en þetta er meira í orði en á borði. Þeir menn eru mjög margir enn á ferðinni, sem álíta sjálfstæði sínu misboðið með því að lúta fyllilega fjelagsreglum eða stjórn annara manna, þó þeir hafi tekið frjálsan og fullan þátt í því, að semja fjelagsreglurnar sjálfir og velja menn í stjórn fjelagsins. Víst er um það, að sjálfstæðið er gott, innan vissra tak- marka, en leiði sívakandi umhugsun um það til þess, að maður óttist missir þess, ef aðrir hafa nokkur veruleg áhrif á mann eða ráða nokkru fyrir mann; ef af þessari stöðugu árvekni leiðir það, að maður grunar fjelagið og fulltrúa sína sífellt um eitthvað misjafnt og treystir ætfð eigin skoðun og ráðum öllu öðru betur, þá er það nærri víst, að með þessu lagi verður sjálfsþroskinn sáralítill, og á sama hátt fer um fjelagsþroskann. Ef menn, jafnframt því að leggja stund á sjálfstæðið, hefðu það stöðugt fyrir augum, að enginn er sjálfum sjer nógur, þá mundi betur farnazt. Menn eru almennt fúsir á það í viðtali og á mann- fundum að telja fjelagsskap og sanivinnu góð og gagn- leg meðöl til almenningsheilla, en þegar stund líður, biður sundrungarandinn um orðið, og hefur þá frá svo mörgum agnúum að greina í fyrirkomulagi og fram- kvæmdum þess, sem ráðgjört var, að stundum lendir allt í molum, sem starfa átti. F’etta er ekki svo að skilja, að það sje þessi andi einn, sem hamlar góðum fjelags- þrifum, en hann á opt sinn mikla þátt að máli. Opt vantar þolgæði og þrautseigju fjelagsmanna, sterka og starfsfúsa forstöðu, sem þá sje sómasamlega launuð, og fleira má til telja. Eins og sundrungarandinn kemur allt of mikið fram
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga
https://timarit.is/publication/329

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.