Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.03.1907, Blaðsíða 7
7
og eptirtektavert dæmi þess, hverju aukin alþyðúmennt-
un og öflugur samvinnufjelagsskapur faer til vegar komið.
Fyrir 40 árum var hagur Danmerkur ekki talinn álitlegur.
Þjóðin var þá sem höggdofa eptir hinn mikla ósigur og
landmissir 1864. Munu margir þá hafa litið svo á, að
frægðarsól Dana væri til viðar gengin, og mundi vart
renna upp aptur, nema þeir gætu unnið Sljesvík aptur
undan F’jóðverjum, en menn sáu brátt, að þess mundi
enginn kostur. Mun sannfæringin um þetta, hafa haft
mjög mikil áhrif á pólitík Dana í meir en 30 ár. En hjer
fór öðruvísi en spáð var. Nú verða allir að viðurkenna,
að framfarir Dana síðustu 30 — 40 árin hafa verið stór-
kostlegar. þjóðarauðurinn hefur aukizt svo, að nú ganga
þeir næst Englendingum. Landbúnaður þeirra er nú tal-
inn einna beztur í Norðurálfu. F*eim fleygir fram í iðn-
aði. Stórar lendur, ófrjóar og afurðarlausar að kalla, hafa
þeir ræktað, og eru að rækta, svo stórar, að áður iangt
líður munu þær vega mjög svo upp á móti landmissin-
um 1864. F>eir standa því nú, að auðlegð, menningu og
virðingu, framar en nokkru sinni áður, svo óhætt er að
segja, að þeir hafi meir en náð sjer eptir áfallið 1864.
Og allt þetta eiga þeir fyrst og fremst að þakka auk-
inni alþýðumenntun og öflugum samvinnuf jelagsskap,
sem hvortveggja hefur haldizt í hendur og stutt hvort
annað öll þessi ár. Afar-sterk andleg hreyfing, sem kennd
er við Grundtvig, fór um þjóðina um miðbik 19. aldar.
Sú hreyfing var ram-þjóðleg; hún gagntók alla alþýðu
manna, sjerstaklega bændastjettina, og vakti hana til Iif-
andi og starfandi ættjarðarástar og þjóðarmetnaðar. I
skjóli þessarar hreyfingar, og af hennar rótum, runnu
upp og efldust lýðháskólarnir, en þeir eru gróðiarstía
samvinnuhugmyndanna, og í þeim mönnuðust og mennt-
uðust forgöngumenn samvinnufjelagsskaparins. Danir
byrjuðu þar — eins og vjer — á verzluninni. Fyrsta kaup-
fjelag þeirra (innkaupafjelag: Brugsforening) er stofnað
1866; nú eru þau yfir 1000, en tiltölulega hafa þau mest
fjölgað og eflzt síðustu 10 — 12 árin, eða síðan Sambands-