Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.03.1907, Side 17
17
Á fundi að Yztafelli, hinn 20. Febrúar 1902, undir
rituðu kjörnir fulltrúar frá nefndum fjelögum sambands-
lög fyrir þessar þrjár fjelagsdeildir.
Pað var einhuga álit fulltrúanna að keppast eigi eptir
því, fyrst um sinn, að útbreiða þetta samband yfir stórt
svæði, sjá heldur fyrst, hve því vegnaði og hvort líkur
væru til, að það hefði meira verkefni og lífsþrótt en hið
fyrra sambandið. Árið 1905 skiptist Kaupfjelag Sval-
barðseyrar i tvö fjelög; hjelt annar hlutinn gamla nafn-
inu, en hinn hlutinn nefnist: Kaupfjelag Eyjafjarðar. Gekk
hið nýja fjelag þegar í sambandið, og eru deildir þess
síðan fjórar að tölu. Sameiginleg ársumsetning þessara
deilda árið 1905, var um 200 þús. kr. í útlendum vörum.
Sambandsfjelag þetta, sem nú er næstum því fimm ára
gamalt, hefur haldið reglulega aðalfundi og nokkra auka-
fundi. Framkvæmdarstjóri fjelagsins fyrstu þrjú árin var
alþingismaður Pjetur Jónsson á Gautlöndum, en síðan
Steingrímur sýslumaður Jónsson á Fiúsavík.
Pó minna hafi orðið um framkvæmdir þessa fjelags,
en ýmsir væntu og æskiiegt hefði verið, þá mun það
samt almennur’ vilji manna, í deildum fjelagsins, að
sambandinu sje haldið áfram, af því menn viðurkenna,
að það hafi verið gagnlegt fyrir kaupfjelagsskapinn á
þessu svæði, sem það nær yfir, þó það gagn sje, enn
sem komið er, meira óbeinlínis heldur en beinlínis, og
er þá á það að líta, sem þar er helzt talið til.
Fundir fjelagsins hafa mikið aukið viðkynningu þeirra
manna, sem mest afskipti hafa af fjelagsmálum heima
fyrir. Umræður um fjelagsmál hafa skýrt margt atriði,
sem erviðara var við að eiga, fyrir hvert einstakt fjelag.
Petta hefur aptur styrkt ýmsa í starfinu heima fyrir,
aukið traust þeirra á málstað kaupfjelagsmanna og glætt
vonir þeirra um góðan árangur. Slíkt er ætíð mjög mikils
virði, að forgöngumenn málefnis fái samvinnustuðning,
nýjar hvatir og uppörvanir til að rækja starf sitt sem allra
bezt má verða. Sökum sambandsins hefur það eigi sjaldan
átt sjer stað, að ýmsir menn hafa mætt á aðalfundum deild-