Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.03.1907, Side 50

Tímarit  kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.03.1907, Side 50
50 h. Hin einstöku fjelög gangi í allsherjar bandalag hjer á landi. Þó jeg viðurkenni það fúslega, að kaupfjelögunum hjer á landi sje í ýmsu ábótavant, get jeg eigi betur sjeð, en þeirra sje nú fullt svo mikil þörf sem nokkru sinni fyr, og því verða mjer þessar spurningar á vörum: 1. Er nokkur fyr nefndur tilgangsliður kaupfjelaganna ó- þarfur [ojóðinni eða úreltur? 2. Eru nokkrar verulegar líkur til þess, að samkeppnis- kaupmenn sæki það eins fast og alþýðleg samvinnu- fjelög að ná þeim tilgangi, sem í stafliðunum felst? 3. Skyldi það ekki geta verið að skoðanir ýmsra manna, hjer á landi, á hollri verzlun og viðskiptalífi, sjeu nokkuð óþroskaðar og »úreltar< ? S.J. II. Sundrungarandinn. Eitt af því, sem staðið hefur föstum fjelagsskap og samvinnu fyrir góðum þrifum, hjer á landi, enn sem komið er sögu, er hinn rótgróni sundrungarandi, sem nær því alstaðar hefur komið fram, í hverju fyrirtæki sem er, að minnsta kosti þegar framliðu dagar og fyrstu fundaáhrifin dofnuðu. Pað gengur seint, eins og eðlilegt er, að koma hjer til leiðar fullkominni myndbreytingu og útrýma þessu sundrungareðli, því það á sjer eflaust gamlar og djúpar rætur í Iiðna tímanum og ýmsum þjóðarháttum. Menn hafa lengi lifað einangraðir og átt við ýmislegt ófrelsi að búa, en hins vegar eigi viljað, með öllu, láta kúga sig til hvers eins og risið því önd- verðir til varnar og sjálfstæðis, Jaar sem þess var nokkur kostur, og hvort sem veruleg ástæða var til þess eða ekki; menn hafa orðið tortryggir og vanizt á það að geta ekki borið fullt traust til nokkurrar stjórnar eða fje- lagslegra áhrifa, utan að, á sinn hag eða sínar skoðanir. Petta hefur að vísu færzt í talsvert betra horf, síðan

x

Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga
https://timarit.is/publication/329

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.