Fréttablaðið - 27.08.2009, Side 4
4 27. ágúst 2009 FIMMTUDAGUR
GREIÐSLUAÐLÖG-
UN VERÐI BREYTT
MOSKVA, AP Rússneskt lesbíupar
kysstist fyrir utan dómsal í
Moskvu í mótmælaskyni eftir að
fyrirtöku máls sem þær höfðuðu
á hendur ríkinu var frestað.
Konurnar höfðuðu mál á hend-
ur ríkinu þar sem þeim er meinað
að ganga í hjónaband. Dómarinn
ákvað hins vegar að fresta fyr-
irtöku málsins vegna fjarveru
þeirra. Þær mættu í dómsal 10
mínútum síðar.
Lögmaður kvennanna mót-
mælti vinnubrögðum dómarans
harkalega og kallaði þau
hneyksli. Fjöldi fjölmiðla var
á staðnum og féllust konurnar
í faðma fyrir framan mynda-
vélarnar og kysstust fyrir utan
dómsalinn í mótmælaskyni. -bs
Lesbíur fyrir rétti:
Kysstust í mót-
mælaskyni
EFNAHAGSHRUNIÐ Það er „fáránlegt“ að láta
bankana leita leiða til að aðstoða fólk við að
standa í skilum af húnsæðislánum.
Bankarnir hafa þá einu hagsmuni, í slíkri
aðgerð, að tryggja hagsmuni bankans.
Svo segir formaður félagsmálanefndar
Alþingis, Lilja Mósesdóttir.
„Almenn aðgerð yrði hins vegar mótuð af
hagsmunum beggja: skuldara og kröfuhafa.
Þannig mætti lágmarka tap skuldaranna,
eins og hægt er, en um leið að tryggja að fólk
getið haldið áfram að greiða af lánum og
haldið eignum sínum,“ segir hún. Það bjóði
einnig upp á mismunun, ef þeir sem taka
ákvörðun um niðurskriftir sé sama fólkið og
veitti lánin á sínum tíma.
Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda,
tekur í sama streng; bankarnir eigi ekki að
afskrifa húsnæðislán sjálfir. Aðkomu stjórn-
valda eða fulltrúa neytenda þurfi til. Hann
óttast að annars verði niðurstaðan ekki nógu
réttlát og hagkvæm fyrir neytendur.
„Það hefur verið allt of mikið af því á
Íslandi að hagur neytenda sé ákvarðaður af
fyrirtækjum,“ segir hann. Sérstakur gerðar-
dómur beggja aðila eigi helst að komast að
niðurstöðu um þetta.
Talsmaðurinn segir afskriftir skulda
ekki eiga að kosta ríkið útgjöld, nema að því
leyti sem það er kröfuhafi bankanna. En
þeir fá minna út úr bönkunum en ella með
niðurfellingu.
Spurður hvort sama eigi við um gengis- og
verðtryggð lán, segist hann leggja til sömu
málsmeðferð fyrir báðar tegundir lánanna.
Þó séu „fleiri og sterkari röksemdir fyrir
niðurfærslu gengislána“. Þau hafi hugsan-
lega hafa verið ólögleg, fyrir utan að for-
sendubrestur hafi orðið við lækkun á gengi
krónu.
Már Másson, upplýsingafulltrúi Íslands-
banka, segir að þar sé nú unnið að „leiðrétt-
ingu höfuðstóls allra húsnæðislána“.
Viðskiptavinum bankans verði boðið að
Afskriftir húsnæðislána
fari ekki fram í bönkum
Formaður félagsmálanefndar segir fáránlegt að láta banka um að aðstoða skuldara, enda gæti bankarnir
fyrst og fremst eigin hagsmuna. Talsmaður neytenda tekur í sama streng. Íslandsbanki segir sín úrræði
ekki skerða rétt viðskiptavina. Kaupþing kallar eftir stefnu stjórnvalda og Landsbanki skoðar málin.
Neytendasamtökin beina þeim
„eindregnu tilmælum“ til dómsmála-
ráðherra að lögum um greiðsluað-
lögun verði breytt, ef með þarf, til að
koma í veg fyrir að þeir sem nýti sér
þjónustuna lendi á vanskilaskrá.
Þannig sé fólki gert enn erfiðara
að stíga erfið skref. Þetta sé óviðun-
andi.
færa gengis- og verðtryggð lán yfir í óverð-
tryggð lán í íslenskum krónum.
Nánari útfærsla liggur ekki fyrir, en Már
segir aðspurður að nýti fólk sér þetta muni
það ekki skerða rétt þess til að nýta önnur
hugsanleg úrræði frá stjórnvöldum.
Berghildur Erla Bernharðsdóttir, upplýs-
ingafulltrúi Nýja-Kaupþings segir „ljóst að
það þarf að afskrifa einhvern hluta skulda“.
Almenn stefna um afskriftir sé þó ekki til
staðar í bankanum. Ef þetta eigi að gera þurfi
línan að koma frá stjórnvöldum og vera sam-
ræmd milli fjármálastofnana.
Þær einu upplýsingar fengust hjá fjölmiðla-
fulltrúa Landsbankans í gær að málin væru „í
skoðun“ þar á bæ.
Ekki náðist í Gylfa Magnússon, viðskipta-
og bankamálaráðherra. klemens@frettabladid.is
MÁR
MÁSSON
BERGHILDUR E.
BERNHARÐSDÓTTIR
LILJA
MÓSESDÓTTIR
GÍSLI
TRYGGVASON
www.ob.is
-5kr.
VIÐ FYRST
U NOTKUN
Á ÓB-LYKL
INUM
OG SÍÐAN
ALLTAF -2K
R.
TB
W
A
\R
EY
K
JA
VÍ
K
\
SÍ
A
Sæktu um ÓB-lykilinn á www.ob.is eða í síma 515 1141.
ÓB-lykilhafar geta safnað Vildarpunktum Icelandair.
VEÐURSPÁ
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
Alicante
Amsterdam
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
New York
Orlando
Osló
París
Róm
Stokkhólmur
31°
25°
30°
28°
20°
25°
29°
28°
19°
24°
27°
24°
26°
33°
16°
26°
34°
22°
13
12
8
10
9
10
10
12
14
12
6
Á MORGUN
8-13 m/s NV-til, annars
mun hægari.
LAUGARDAGUR
8-13 m/s en hægari
sunnan til.
3
5
6
5
4
4
4
4
2
4
5
12
10
14
10
8 6 7
10
1410
LÉTTIR TIL SYÐRA
Nú þegar vindur er
orðinn norðanstæður
má segja að best
horfi með suðurhluta
landsins. Reyndar í
dag má reikna með
einhverri vætu víða
um land framan af
degi en þegar líður
á daginn þornar upp
syðra og léttir víða til.
Norðanáttinni fylgir
svalara veður norðan-
lands, og telst ágætt
ef hitinn þar nær 10
stigum.
Sigurður Þ.
Ragnarsson
Veður-
fræðingur
EFNAHAGSMÁL Ekki kemur á óvart
að stjórnvöld vilji skoða möguleik-
ann á því að höfða skaðabótamál
gegn gerendum í bankahruninu, en
mörg ljón eru í veginum fyrir því að
útrásarvíkingar verði dæmdir til að
greiða himinháar bætur segir laga-
prófessor.
Ríkisstjórnin ákvað á þriðjudag
að ráða lögfræðinga til að undirbúa
skaðabótamál gegn einstaklingum,
félögum og fyrirtækjum sem með
vanrækslu eða gáleysi hafi valdið
íslensku samfélagi tjóni með sínum
þætti í bankahruninu.
Vissulega eru minni kröfur gerð-
ar í einkamálum á borð við skaða-
bótamál og því auðveldara að sýna
fram á skaðabótaskyldu en að sýna
fram á sekt í refsimáli, segir Guð-
mundur Sigurðsson, prófessor við
lagadeild Háskólans í Reykjavík, og
sérfræðingur í skaðabótarétti.
Þannig séu dæmi um að menn
sem sýknaðir hafi verið í sakamáli
séu síðar dæmdir til greiðslu skaða-
bóta í einkamáli.
Eitt af þeim vandamálum sem
stjórnvöld munu standa frammi
fyrir er að sanna nákvæmlega
hvert tjónið í hverju og einu tilviki
var, segir Guðmundur. Langur tími
geti liðið þar til það komi endanlega
í ljós.
Annar vandi er að yfirleitt er það
vinnuveitandi sem ber ábyrgð á
gerðum starfsmanns, og því erfið-
ara að sækja mál gegn starfsmönn-
unum en fyrirtækjunum.
Vinnist skaðabótamál er sá sem
tapaði yfirleitt dæmdur til að greiða
allt það tjón sem sannað þykir að
orðið hafi. Um háar upphæðir getur
því verið að ræða.
Guðmundur segir þó líklegt að
þeir sem sakaðir verði um að hafa
valdið ríkinu tjóni í bankahruninu
geti bent á ábyrgð ríkisins við laga-
setningu og eftirlit. Í skaðabótamál-
um sé það oft niðurstaðan að sá sem
stefni beri hluta tjónsins vegna eigin
vanrækslu.
Séu menn dæmdir til að greiða
skaðabætur telst það ekki refsing
og því kemur dómur í skaðabóta-
máli ekki í veg fyrir dóm í refsimáli
síðar, segir Guðmundur. Afar hæpið
sé hins vegar að maður verði dæmd-
ur í sakamáli tapist skaðabótamál
fyrst, þar sem sönnunarbyrðin sé
þyngri í sakamálunum. - bj
Auðveldara gæti verið að vinna skaðabótamál gegn útrásarvíkingum en að sanna lögbrot segir lagaprófessor:
Ekki hlaupið að því að sanna tjónið
ÁBYRGÐ Erfitt getur reynst að sækja mál
gegn starfsmönnum fyrirtækja, þar sem
fyrirtækin eru oft talin bera ábyrgð á
gjörðum starfsmannanna. SAMSETT MYND
GENGIÐ 26.08.2009
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
239,3965
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
129,03 129,65
210,17 211,19
184,45 185,49
24,781 24,925
21,350 21,476
18,204 18,310
1,3706 1,3786
201,3 202,5
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
EVRÓPUMÁL Helsta þýðingarmið-
stöð Evrópusambandsins þyrfti
að ráða tugi íslenskra þýðenda í
vinnu ef Ísland gengi í ESB.
Rúnar Helgi
Vignissson, for-
maður Banda-
lags þýðenda og
túlka, segir að
stuttu eftir að
Ísland sótti um
aðild að ESB
hafi fulltrúar
frá helstu þýð-
ingarmiðstöð
sambandsins,
Directorate-
General for Translation, mætt
á fund með fulltrúum BÞT. Þar
hafi komið fram að gangi Ísland í
ESB þurfi að þýða þúsundir síðna
á hverju ári. Það væri því mikil
eftirspurn eftir þýðendum, bæði
fastráðnum sem og lausráðnum
verktökum. - bs
Ísland og Evrópusambandið:
Uppgrip hjá
þýðendum
RÚNAR HELGI
VIGNISSON