Fréttablaðið - 27.08.2009, Blaðsíða 62

Fréttablaðið - 27.08.2009, Blaðsíða 62
46 27. ágúst 2009 FIMMTUDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 MORGUNMATURINN LÁRÉTT 2. stynja, 6. kringum, 8. vefn- aðarvara, 9. fley, 11. tónlistarmaður, 12. tíðindi, 14. mjóróma, 16. átt, 17. hljóma, 18. tæfa, 20. 49, 21. truflun. LÓÐRÉTT 1. sælgæti, 3. borðaði, 4. sök, 5. í viðbót, 7. naggrís, 10. skammstöfun, 13. kvk nafn, 15. stein- tegund, 16. arinn, 19. bókstafur. LAUSN LÁRÉTT: 2. mása, 6. um, 8. tau, 9. far, 11. kk, 12. fregn, 14. skræk, 16. sv, 17. óma, 18. tík, 20. il, 21. ónáð. LÓÐRÉTT: 1. buff, 3. át, 4. saknæmi, 5. auk, 7. marsvín, 10. rek, 13. gró, 15. kalk, 16. stó, 19. ká. „Ég fæ mér nú bara alltaf Cheerios með Fjörmjólk, en um helgar er stundum farið í bakarí og keypt gott brauð og sæta- brauð.“ Nana Alfredsdóttir söng- og leikkona. Ey steinn Guðni Guðnason kvik- myndagerðarmaður ætlar endur- gera mynd Friðriks Þórs Friðriks- sonar, Hringinn, sem kom út árið 1985. Sú mynd var heldur óvenju- leg því hún var tekin upp í bíl sem ók hringinn í kringum landið án þess að nokkrir leikarar kæmu við sögu. Eysteinn, sem á að baki nám við Kvikmyndaskóla Íslands, fékk hugmyndina að endurgerðinni fyrir tveimur árum og það verð- ur núna eftir helgi sem hún verð- ur að veruleika. „Hún heillaði mig áður en ég sá hana,“ segir hann um mynd Friðriks Þórs, sem er 70 mínútna löng. „Þarna gat maður séð landið í heild sinni fyrir 25 árum. Það verður gaman að gefa komandi kynslóð möguleikann á að sjá núverandi ástand.“ Nýja myndin, sem heitir Hring- urinn 2, verður frábrugðin þeirri fyrri því tvær myndavélar verða notaðar til að mynda hringinn. Annarri verður beint fram veginn en hinni aftur á bak og verður tek- inn upp einn rammi á tíu mínútna fresti. Fyrrnefnda vélin verður á þaki nýs rafmangsbíls sem fyrir- tækið 2012 útvegar. Sá bíll mun vera langdrægasti rafmagnsbíll- inn sem hefur komið á markað hér- lendis og kemst hann auðveldlega frá Reykjavík til Akureyrar á einni hleðslu. „Ég hugsaði með mér að það væri best að fara á rafmagns- bíl, vera umhverfisvænn og gera eitthvað nýtt. Ég hafði samband við 2012 og þeir tóku vel í þetta,“ segir Eysteinn. Hin myndavélin verður á þaki svartrar eyðslufrek- ari Porche-bifreiðar sem Eysteinn ætlar að aka á eftir rafmagnsbíln- um. „Þetta eru tákn um gamla og nýja tímann,“ segir hann um bíl- ana tvo. „Rafmagnsbíllinn verður með einkanúmerið 2012 en hinn verður með einkanúmerið 2007.“ Hringferðin á að taka þrjá daga, enda er ekki langt síðan Ómar Ragnarsson og Einar Vilhjálms- son fóru hringveginn á metanbíl á jafnlöngum tíma. „Við hugsuðum með okkur að við yrðum líka að ná þessu á þremur dögum. Þess vegna heitir myndin Hringurinn 2. Bæði er þetta önnur myndin og þetta er í annað sinn sem það verður farið á íslenskri orku hringinn í kringum landið.“ Auk þess að taka upp myndina ætla forsvarsmenn 2012 að stoppa víða á leiðinni og skrifa undir sam- starfssamninga við sveitarstjóra í nokkrum bæjarfélögum um upp- setningu á tíu þúsund hleðslustöðv- um fyrir rafmagnsbíla úti um allt land. Eysteinn stefnir á að frumsýna Hringinn 2 á næsta ári þegar 25 ár verða liðin síðan eldri útgáfan kom út. Hann segist ekki hafa haft sam- band við Friðrik Þór út af mynd- inni. „Það væri gaman að vita hvað hann segði við þessu. Ég held að hann hafi bara gaman af þessu.“ freyr@frettabladid.is EYSTEINN GUÐNI GUÐNASON: MYNDAR FYRIR KOMANDI KYNSLÓÐ Endurgerir Hring Friðriks Þórs með íslenskri orku ENDURGERIR SÖGUFRÆGA MYND Eysteinn Guðnason ætlar að gera nýja útgáfu af myndinni Hringnum sem Friðrik Þór Friðriksson frumsýndi árið 1985. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á síðu 8. 1 Stapi. 2 Einstakar ostakökur. 3 Mike Simpson. Sjónvarpsáhorfendur fengu í gær að sjá þegar Hilmir Snær Guðnason í hlutverki blaðamanns heillaði Ilmi Kristjánsdóttur upp úr skónum í sjónvarpsþáttunum Ástríði. Þessi ágæti karakter á sér víst fyrirmynd í raunveruleikanum, allavega hvað klæðaburð varðar. Fatastíllinn ku vera fenginn beint frá fréttastjóra DV, Þórarni Baldri Þórarinssyni, sem þekktur er fyrir að skilja svartan leðurjakkann aldrei við sig. Ýmsu öðru í persónu Hilmis Snæs þykir svipa til Þórarins, svo sem fjöldi barna, en þar mun þó um tilviljun að ræða. Fréttablaðið greindi frá því í gær að Baltasar Kormákur væri kominn með nýjan umboðsmann, Mike Simpson að nafni. Sá ku víst hafa fleiri Íslandstengingar en Baltasar því Simpson reyndi í félagi við Jón Ólafsson að kaupa afþreyingar- fyrirtækið Senu á sínum tíma, Simpson hefur einnig Latabæ á sínum snærum og ætti því að vera öllum hnútum kunnug- ur, enda hefur hann víst heimsótt landið æði oft að undanförnu. Stórsöngvarinn Björgvin Hall- dórsson mun hafa hugsað útgefendum sínum í Senu þegjandi þörfina á dögunum þegar upplag nýju plötu hans, Sígrænna söngva, kláraðist. Aðeins voru pöntuð 2.500 eintök í fyrstu atrennu sem verður að teljast undarleg ákvörð- un miðað við vinsældir Björgvins. Ekki leið á löngu þar til nýtt upplag barst en á meðan platan var ófáanleg skaust Geir Ólafs í efsta sæti sölu- lista Hagkaupa og það mun Björgvin ekki hafa verið sáttur við. - fgg, hdm FRÉTTIR AF FÓLKI „Ég rakst á frétt á netinu um Alex- öndru Líf og hún snerti mig mjög mikið. Þetta er fjölskylda sem hefur þurft að þola ansi mikið og þarf á stuðningi að halda,“ segir Björgvin Páll Gústavsson, mark- vörður íslenska landsliðsins í handbolta og ein af silfurhetjun- um. Hann og Logi Geirsson hafa ákveðið að gefa Alexöndru Líf áritaða Silver-landsliðstreyju með áritunum frá öllum leikmönnum handboltalandsliðsins. Þá hafa þeir keypt tíu miða á styrktartónleika Alexöndru. Saga Alexöndru og foreldra hennar snerti flesta sem hana lásu í fjölmiðlum fyrir skemmstu. Alexandra greindist með hvítblæði aðeins fimm ára gömul árið 2005. Þegar Alexandra var í miðri bar- áttunni við krabbameinið dundi annað áfall yfir fjölskylduna þegar bróðir Alexöndru, Kristófer Birg- ir, drukknaði aðeins þriggja ára gamall. Alexandra hafði rétt sigrast á hvítblæðinu þegar í ljós kom að hún væri með svokallað MDS- krabbamein sem krefst beinmergsskipta og verð- ur Alexandra því að liggja á sjúkrahúsi allan sólarhring- inn. Foreldrarnir skiptast á að vera með henni en þeir eiga einnig þrjú önnur börn, Ronju, Kristjönu og Benjamín. Björgvin segir að hann vonist til að sem flestir sjái sér fært að leggja sitt af mörkum. Þeir sem vilja styðja við bakið á fjölskyldunni er bent á styrktarreikninginn 0537-14-403800, kt. 160663 - 2949. Styrktar- tónleikarn- ir verða þann 14. september í Háskólabíói. - fgg Logi Geirs og Bjöggi láta gott af sér leiða GEFA TREYJU Silfurhetjurnar Logi Geirsson og Björgvin Páll ætla að gefa Alexöndru Líf, níu ára stelpu sem berst við MDS-krabbamein, áritaða Silver- treyju auk þess sem þeir hafa keypt tíu miða á styrktartónleika hennar. „Við vissum að bæði Stefán Karl Stefánsson og Laddi væru hörkusöngvarar og að Stefán Hallur gæti alveg haldið lagi. En Unnur Birna kom okkur alveg skemmtilega á óvart,“ segir Þorsteinn Gunnar Bjarnason, leikstjóri kvikmyndarinnar Jóhannes. Leikarahópnum var nýlega smalað í hljóðver til að taka upp titillag myndarinnar. Lagið er eftir Vidda í Greifunum sem sér jafnframt um alla tón- list myndarinnar. Þorsteinn veit ekki til þess að þetta hafi verið gert áður, að leikarar syngi titillag- ið sjálfir. „Ég fékk bara þessa hugmynd og það leist öllum svo vel á hana, svona hefur stemningin líka bara verið á tökustað, allir hafa bara verið í góðum fíling og tilbúnir að gera nánast allt.“ Það vekur kannski helst athygli að Unnur Birna Vilhjálmsdóttir, fyrrum alheimsfegurðardrottning og kynnir í Bandinu hans Bubba, skuli þarna þreyta frumraun sína fyrir framan hljóðnemann. Þorsteinn segir að hún hafi staðið sig eins og hetja. „Hún vissi sjálf ekkert hvort hún gæti sungið, ég sagði henni að það væri hægt bjarga nánast öllu í hljóðveri. En svo söng hún bara eins og engill,“ segir Þorsteinn sem lýsir laginu sem svona „feelgood“-slagara. Sem sé í anda myndarinnar. Á ýmsu hefur samt gengið við gerð kvikmyndarinnar og Fréttablaðið greindi frá því þegar slagsmálasenur fóru aðeins úr böndunum við Kaldársel í Hafnarfirði með þeim afleiðingum að Laddi sjálfur var allur blár og marinn en Stefán Hallur fékk skurð á hausinn eftir að nafni hans mölvaði blómapott á höfði hans. - fgg Unnur Birna gerist söngkona STÓÐ SIG EINS OG HETJA Unnur Birna ásamt Sigrúnu Gylfa- dóttur en Unnur Birna sýndi og sannaði að hún fær í flestan sjó, líka söng.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.