Fréttablaðið - 27.08.2009, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 27.08.2009, Blaðsíða 8
8 27. ágúst 2009 FIMMTUDAGUR ORKUMÁL Möguleikinn á samein- ingu Geysis Green Energy og kan- adíska orkufyrirtækisins Magma Energy hefur verið til skoðunar frá því fyrirtækin ræddu fyrst samstarf innan HS Orku. For- svarsmenn fyrirtækjanna segja sameiningu þó ekki í kortunum alveg á næstunni. Geysir Green hefur eignast meirihluta í HS Orku, og Magma Energy á um ellefu prósenta hlut. Magma stefnir að auki að því að eignast 34 prósenta hlut Orkuveitu Reykjavíkur í HS Orku, og hefur lagt fram tilboð í hlutinn. Ross J. Beaty, forstjóri Magma Energy, útilokar ekki að Magma hefði hug á að eiga minnihluta í HS Orku, fari svo að opinberir aðilar eignist meirihluta í félaginu. Það sé þó síður en svo ákjósanleg nið- urstaða. Hann segir augljóst að eignist Magma ekki ráðandi hlut í HS Orku muni skorta upp á áhuga og kraft fyrirtækisins, sem sé slæmt fyrir Magma og HS Orku. „Við verðum að vinna með Geysi Green og skoða þá möguleika sem eru í stöðunni, Geysir Green er í fremur veikri stöðu svo við von- umst til þess að við getum sam- einað krafta okkar í framtíðinni,“ segir Beaty. Spurður hvort til standi að sam- eina Geysi Green og Magma segir hann: „Samruni hefur verið rædd- ur, þó það séu vissulega ljón í veg- inum. Staðan er flókin og það tekur tíma að vinna sig í gegnum hana.“ Andstaða við kaup Magma á stórum hlut í HS Orku hefur auk- ist undanfarið. Opinn fundur sem haldinn var í Grindavík í fyrra- kvöld skoraði á ríkisstjórnina að koma í veg fyrir kaupin. Beaty segir að almenning- ur á Íslandi verði að skilja hvers konar fyrirtæki Magma sé og hver áformin séu. „Við erum ekki ógnvekjandi fyrirtæki, við viljum vinna með HS Orku við að byggja upp sterkara fyrirtæki, til góðs fyrir Íslendinga, okkur sjálfa, og raunar heiminn allan.“ Beaty þvertekur fyrir að Magma sé að skipa sér í hóp með fyrir- tækjum sem sjái tækifæri fyrir skjótfenginn gróða með því að kaupa rústir íslenskra fyrirtækja eftir hrunið. „Við erum ekki hræ- gammar, við viljum vera til fyrir- myndar hér á landi eins og önnur fyrirtæki mín annars staðar í heiminum.“ Hann hafnar því einnig að fyrir- hugaðar fjárfestingar Magma, og nýting á jarðvarmaauðlindum, muni skilja lítið eftir hér á landi. „Tekjur hins opinbera munu koma frá gjaldi fyrir auðlindir, sköttum, störfum sem skapast og fjárfest- ingu í innviðum fyrirtækisins.“ Beaty segist sannfærður um að það væri gott fyrir alla aðila fái Magma að kaupa hlut Orku- veitunnar í HS Orku. Heimurinn breytist hins vegar hratt, og gangi það ekki eftir séu ýmis tækifæri annars staðar en á Íslandi. „Við viljum augljóslega ljúka samningaviðræðum við Orku- veituna sem fyrst, sé á annað borð hægt að ljúka þeim. Við höfum enga möguleika til að þrýsta á eitt né neitt öðruvísi en með því að benda á kostina við að salan á hlut Orkuveitunnar í HS Orku nái fram að ganga.“ brjann@frettabladid.is 1. Hvaða lífeyrissjóður hefur mögulega tapað kröfu sinni í Straum-Burðarási vegna mis- taka lögfræðinga? 2. Hvaða nafn ber ný verslun á Laugavegi 20b? 3. Hvað heitir nýr umboðsmað- ur Baltasars Kormáks? SVÖRIN ERU Á SÍÐU 46. Sameining Magma og GGE til skoðunar frá upphafi Magma Energy vill á endanum ná hreinum meirihluta í HS Orku, segir forstjóri félagsins. Þvertekur fyrir að Magma sé að leita að skjótfengnum gróða eftir hrunið hér á landi. Staða Geysis Green Energy veik. MÓTMÆLI Opinn fundur sem haldinn var í Grindavík í fyrrakvöld skorar á ríkis- stjórnina að koma í veg fyrir einkavæðingu HS Orku, þriðja stærsta orkufyrirtækis landsins. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Ásgeir Margeirsson, forstjóri Geysis Green Energy, staðfestir að hug- myndir um sameiningu fyrirtækj- anna hafi verið til skoðunar frá því að samstarf fyrirtækjanna hófst. Hugmyndin sé hins vegar ekki uppi á borðinu eins og er. Hann viðurkennir að staða Geysis Green geti talist veik, félagið verði að tryggja sér fjármagn til að halda verk- efnum áfram. Ýmsir möguleikar séu til þess að auka við hlutafé félagsins. SAMEINING EKKI Á BORÐINU IÐNAÐARMÁL Málflutningur for- svarsmanna Samtaka iðnaðar- ins og Jóns Bjarnasonar, sjávar- útvegs- og landbúnaðarráðherra, um fyrirtæki í framleiðslu og innflutningi á sementi er dapur- legur, segir Bjarni Ó. Halldórs- son, framkvæmdastjóri Aalborg Portland á Íslandi. Vegna fjölmiðlaumræðu síð- ustu daga um málefni fyrirtækj- anna sendi Bjarni fjölmiðlum til- kynningu í gær þar sem segir meðal annars: „Forsvarsmenn Samtaka iðnaðarins halda því fram að að íslensk einokun sé betri en dönsk og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra tekur undir þau sjónarmið. Slíkur mál- flutningur er dapurlegur vitnis- burður um ásetning þessara aðila um endurreisn íslensks atvinnu- lífs. Öll samtök atvinnulífsins á Íslandi – líka Samtök iðnaðarins – hafa lagt áherslu á frjálsa sam- keppni þrátt fyrir ofurvald ríkis- ins um þessar mundir. Þess vegna eru ummæli framkvæmdastjóra SI [Jóns Steindórs Valdimars- sonar] óskiljanleg og afar sorg- leg. Aalborg Portland fer hvorki fram á ívilnanir né styrki heldur aðeins að hafðar séu í heiðri heið- arlegar leikreglur á markaði. Það mun gagnast íslenskri þjóð best.“ - shá Framkvæmdastjóri gagnrýnir sjávarútvegsráðherra og Samtök iðnaðarins: Ummæli óskiljanleg og sorgleg BJARNI Ó. HALLDÓRSSON Vill að leik- reglur á markaði séu hafðar í heiðri. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Sundlaugin opnuð aftur Sundlaugin á Þingeyri hefur verið opnuð á ný, eftir að hafa verið lokuð í nokkra daga vegna orkuskorts. Þingeyringar eru orðnir vanir árlegum lokunum þar sem rafmagn á svokall- aðri vesturlínu er tekið út einu sinni á ári vegna viðhalds. VESTFIRÐIR SAMGÖNGUMÁL Umferð um Hlíðarfót við Öskjuhlíð verð- ur ekki leyfð bílum sem aðeins einn ferðast í á háannatímum í vetur. Þetta kemur fram í bókun Umhverfis- og samgönguráðs Reykjavíkurborgar. Ráðið ákvað að gera tilraun til þessarar umferðarstýringar og hefur falið samgöngustjóra að útfæra hana. Strætisvagnar, leigubílar og samnýttir einka- bílar munu þannig geta farið um Hlíðarfót, sem er ný gata sem verður tekin í notkun næsta vor. Þeir sem eru einir í bíl munu þurfa að fara um Flugvallarveg. - þeb Umhverfis- og samgönguráð: Samnýttir bílar munu fá forgang ■ Sendið umboðsmanni neytenda ábendingar eða sparnaðarráð á neytendur@ frettabladid.is DR. GUNNI neytendur@ frettabladid.is Nú eru fimm ár liðin frá því að banka- stofnanir fóru að bjóða upp á húsnæðis- lán með skárri vöxtum en áður höfðu þekkst. Úr varð hálfgerð tískubylgja þar sem hver sem vettlingi gat valdið fór út í „endurfjármögnun“. Sá böggull fylgdi skammrifi í mörgum tilfellum að bund- ið var í samninginn að vaxtakjörin yrðu endurskoðuð á fimm ára fresti. Nú er náttúrulega bankakerfið hrunið eins og það leggur sig og forsendur breyttar. Sjálfur tók ég lán hjá Frjálsa fjárfest- ingabankanum. Þegar hann fór á hliðina fór ég að fá greiðsluseðil frá Íbúðalána- sjóði. Þar eru sömu vextir, 4.2 prósent. Upphaflega planið var að vextirnir yrðu endurskoðaðir nú í september. Hjá Íbúðalánasjóði fékk ég þær upplýsingar að engin ákvörðun hafi verið tekin um málið. Miklar líkur væru þó á að vextirn- ir yrðu þeir sömu áfram, enda stendur umræðan um það að ríkið minnki byrð- ar fólks – auki þær ekki. Íbúðalánasjóð- ur hefur tekið yfir lánasöfn frá ýmsum sparisjóðum auk Frjálsa fjárfestinga- bankans. Föllnu bankarnir eru þó enn með sín lán á sinni könnu. Hjá Lands- bankanum fékk ég þær upplýsingar að vöxtum verði haldið óbreyttum. Fastlega má búast við að aðrir bankar fari sömu leið, enda yrði „allt vitlaust“ ef ríkis- bankar færu að hækka íbúðalánavexti í þessu árferði. Fólk á því að geta andað rólega yfir þessu, að minnsta kosti til ársins 2014 þegar næsta vaxtaendurskoð- un á að fara fram. NEYTENDUR: HVAÐ VERÐUR UM ENDURSKOÐUN VAXTA? Vextir verða óbreyttir STYRKUR VEITTUR Skúli Gunnar Sigfússon afhenti styrkinn í húsnæði Fjölskylduhjálpar Íslands á þriðjudaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA SAMFÉLAGSMÁL Fjölskylduhjálp Íslands fékk styrki frá fyrir- tækjunum Subway og Pennanum á þriðjudag. Einstaklingar hafa einnig haft samband við Fjölskyldu hjálp og óskað eftir að styrkja börn og unglinga í fátæk- um fjölskyldum til náms. Það var Skúli Gunnar Sigfús- son, eigandi Subway á Íslandi, sem færði Fjölskylduhjálp 1,3 milljónir króna í gjafabréfum. Hvert gjafabréf hljóðar upp á 15 þúsund króna úttekt í Pennan- um. Að auki voru 400 gjafabréf á Subway gefin. - þeb Subway og Penninn: Fjölskylduhjálp fékk gjafabréf Fundirnir verða haldnir þriðjudaginn 1. september hjá Umhverfisstofnun að Suðurlandsbraut 24 Kl. 10:00 Flugrekendur sem stunda innanlandsflug Kl. 13:00 Flugrekendur með starfsemi á ESB-svæðinu Umhverfisstofnun hvetur flugrekendur til þess að mæta enda um mikilvæga hagsmuni að ræða. Flugrekendur athugið Njótum umhverfissins og stöndum vörð um það saman Nýleg löggjöf ESB um viðskipti með losundaheimildir gróðurhúsalofttegunda fellir flug undir viðskiptakerfið frá og með 1. janúar 2012. Umhverfisstofnun boðar hér með til funda með flugrekendum varðandi nauðsynlegar undirbúningsráðstafanir á komandi mánuðum. VEISTU SVARIÐ?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.