Fréttablaðið - 27.08.2009, Síða 12

Fréttablaðið - 27.08.2009, Síða 12
12 27. ágúst 2009 FIMMTUDAGUR SPÁNN, AP Hinn árlegi tómataslag- ur fór fram í smábænum Bunol á Spáni í gær. Talið er að um 40 þúsund manns hafi tekið þátt í atinu, sem felst í því að byrgja sig upp af tómötum og kasta í náungann. Afraksturinn var sá að götur bæjarins fylltust af tómatmauki, sem fólk skemmti sér hið besta við að atast í. Sextíu og fjögur ár er síðan íbúar bæjarins tóku fyrst upp á þessu, en atið á sér rætur í því að krakkar fóru að leika sér að kasta mat hvert í annað. Slagurinn sjálfur stóð yfir í um klukkustund, en vinsældir hans aukast ár frá ári. - gb GÓÐGERÐAMÁL Söfnunarþátturinn „Á allra vörum“, á vegum Krabba- meinsfélagsins, verður á Skjá einum næstkomandi föstudagskvöld klukk- an 21.00. Í fyrrasumar söfnuðust ríflega 50 milljónir sem voru notað- ar til að kaupa ný tæki til að greina brjóstakrabbamein betur. „Á allra vörum hefur verið að selja varagloss í allt sumar til þess að safna fyrir hvíldarheimilum handa krabbameinssjúkum börnum og fjölskyldum þeirra,“ segir Gróa Ásgeirsdóttir, forsvarskona verkefn- isins. Glossin voru seld í verslunum víðs vegar um landið og í flugvélum Iceland Express. Allir sem koma að þættinum á föstudaginn gefa vinnu sína, að sögn Gróu og mikið af landsþekkt- um einstaklingum kemur fram. Þáttastjórnendur verða Jóhanna Vilhjálmsdóttir, Svanhildur Hólm Valsdóttir og Guðrún Þórðardótt- ir. Mannakorn flytur nokkur lög og stöllurnar úr „Fúlar á móti“ verða með atriði. Auk þessa kynnumst við því hvernig fjölskyldur, sem kljást við þennan illvíga sjúkdóm læra að lifa við og takast á við krabbamein. Gróa segir að engar vonir séu bundnar við einhverja ákveðna söfnunarfjárhæð. Nú, eins og í fyrra, sé rennt blint í sjóinn. Hægt er að leggja sitt af mörkum með því að hringja í áheitanúmerin eða með því að leggja inn á reikningsnúmer 0101-26-55555. Kennitalan er 510608-1350. - vsp Söfnunarþátturinn „Á allra vörum“ verður sýndur á föstudaginn: Söfnun fyrir krabbameinssjúk börn Á ALLRA VÖRUM Krabbameinsfélagið hefur verið að selja varagloss frá Dior í sumar. Hvert varalitagloss kostar 2.500 krónur og rennur ágóðinn til Styrktar- félags krabbameinssjúkra barna. HEILBRIGÐISMÁL Tæplega sjö hundruð tilfelli svínaflensu hafa verið tilkynnt hér á landi frá lokum júnímánaðar. Hröð aukning hefur orðið á síðustu vikum og segir á heima- síðu landlæknisembættisins að búast megi við að fjöldinn haldi áfram að aukast mikið. Langflestir hinna smituðu eru á aldrinum 15 til 24 ára. Á tímabilinu frá 29. júní til 23. ágúst bárust tilkynningar um 684 manns með inflúensulík ein- kenni eða staðfesta inflúensu. Konur voru 379 talsins og karlar 305. - þeb Svínaflensutilfellum fjölgar: 700 greindir á átta vikum REYKJAVÍK Um síðustu áramót fengu sveitarfélög heimild til að hækka útsvar um 0,25 prósent. Hefði Reykjavíkurborg nýtt sér þetta hefðu tekjur borgarinnar aukist um 670 milljónir. Þetta eru 88 prósent þeirra 760 milljóna, sem nefndar hafa verið sem forsenda þess að borgin geti veitt svokallaða lífskjaratrygg- ingu, 186.000 krónur í lágmarks- framfærslu til þeirra sem engar tekjur hafa. Eins og áður hefur verið greint frá í blaðinu hefur nefnd um sál- félagsleg viðbrögð við kreppunni mælt með að fólki verði tryggð þessi lágmarksupphæð, í stað þeirra 115.567 sem það getur fengið nú. Formaður velferðarráðs borg- arinnar, Jórunn Frímannsdóttir, hefur metið það svo að til að geta staðið undir þessu þá þyrfti að hækka útsvar um 1,5 prósent. Þorleifur Gunnlaugsson, borgar- fulltrúi VG, bendir á að nær væri að miða við 0,28 prósenta hækkun; hún myndi duga. Fjármálaskrif- stofa Reykjavíkur staðfestir þetta við blaðið. „Við sáum fram á aukna þörf fyrir fjárhagsaðstoð og að borg- in þyrfti því á meiri peningum að halda. Flest sveitarfélögin nýttu sér þessa heimild en meirihlutinn í borginni ákvað, eins og Seltjarn- arnes og Garðabær, að hækka ekki útsvarið,“ segir Þorleifur Gunn- laugsson, borgarfulltrúi VG. Hann hafi mælst til þess í vel- ferðarráði og borgarstjórn að tekjulægsta fólkið fengi að lág- marki sömu hækkun og samið var um í almennum kjarasamningum, 20.300 krónur á mánuði. Hámarksfjárhagsaðstoð til tekjulítilla hækkaði hins vegar um 16.238 krónur, en útsvar var óbreytt: 13,03 prósent. Bæjarstjóri Hafnarfjarðar, Lúð- vík Geirsson, hefur sagt 186.000 krónur vera „bara það sem fólk þarf til að lifa af“ og heilbrigðis- ráðherra hefur lýst yfir ánægju með skýrslu fyrrgreindrar nefndar. Í henni kom meðal annars fram að Finnar telja sig hafa gert mistök í efnahagskreppu þeirra á tíunda áratugnum, með því að draga úr framlögum til velferðarmála. klemens@frettabladid.is Gátu sótt tekj- ur til lífskjara- tryggingar Meirihlutinn í Reykjavík hefði getað nýtt sér heim- ild til að hækka útsvar um 0,25 prósent. Þannig hefðu náðst 88 prósent af lífskjaratryggingu, sem á að tryggja 186.000 krónur í lágmarksframfærslu. BEÐIÐ EFTIR BRAUÐINU Sókn í fjárhagsaðstoð hjá sveitarfélögum hefur tvöfaldast, samkvæmt því sem bæjarstjóri Hafnarfjarðar hefur sagt. Minnihlutinn vildi nýta heimild til að hækka útsvar um 0,25 prósent um áramótin, en meirihlutinn féllst ekki á það. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA ÞORLEIFUR GUNNLAUGSSON JÓRUNN FRÍMANNSDÓTTIR Gangagerð að klárast Búið er að sprengja 4.387 metra af Bolungarvíkurgöngum, eða um 85 prósent af heildarlengd þeirra. Í síðustu viku voru 38 metrar sprengd- ir Hnífsdalsmegin og 43 metrar Bolungarvíkurmegin. Heimsmeistari fær styrk Jón Örn Ingileifsson fær 100 þúsund króna styrk frá Grímsnes- og Grafningshreppi til að taka þátt í torfærukeppni í Nordic Cup 2009. Jón er ríkjandi heimsmeistari í þessari keppnisgrein. LANDSBYGGÐIN Framkvæmdastjóri ráðinn Hörður Högnason hjúkrunarfræðingur hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilbrigðisstofnun Vestfjarða. Lágmarksframfærsla til einstakl- inga var hækkuð í janúar um 16,35 prósent, úr 99.329 krónum á mánuði í 115.567. Þetta er hækkun um 16.238 krónur á mánuði. Framfærsla til hjóna eða fólks í skráðri sambúð hækkaði úr 158.926 krónum og í 184.907. FJÁRHAGSAÐSTOÐIN Á FLOTI Í TÓMATSULLI Ekki er annað að sjá en fólk skemmti sér vel. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Allt á floti í tómötum: Tugir þúsunda sulla á Spáni FÍLL Á SAFNI Á þjóðminjasafninu í Rio de Janeiro verður þessi eftirlíking af Afríkufíl til sýnis á næstunni. NORDICPHOTOS/AFP Söng- og gítarnámskeið haustið 2009 Gítarnámskeið fyrir byrjendur Fyrir alla aldurshópa / 50 mín. á viku í 12 vikur Langar þig að læra á gítar? Viltu vera stjarnan í partýinu eða geta spilað lag fyrir ástina þína? Langar þig kannski bara að koma þér af stað og stofna í kjölfarið rokkhljómsveit? Einhvers staðar verða menn að byrja og þetta námskeið er kjörinn byrjunarreitur. Kennt er í 4-6 manna hópum þar sem raðað er niður eftir stöðu hvers og eins. Markmið námskeiðsins er að nemendur læri undirstöðuatriði gítarleiks, kunni öll helstu gítargripin og þar með öll helstu undirstöðuatriði gítarleiks. Gítarnámskeið fyrir lengra komna Fyrir alla aldurshópa / 30 mín á viku í 12 vikur - Einkatímar Við bjóðum lengra komnum gítarleikurum upp á einkakennslu þar sem farið er nánar í tækniatriði, hljómfræði og kenndar upphafslínur og þekkt sóló úr lögum flytjenda á borð við Metallica, Led Zeppelin, Nirvana o.fl. Uppbygging gítarsólóa og notkun skala er kennd í bland við skemmtileg gítar-"trix". Farið verður í mismunandi “karakter”-tegundir gítara og gítarmagnara og notkun þeirra í hljóðverum. Þeir sem hafa verið áður hjá okkur fá kennslu við hæfi miðað við framfarir. Söngur og framkoma 14 ára og eldri / 1 klst. á viku í 10 vikur. Tímarnir byggjast á aðferð sem Kristin Linklater setur fram í bókinni “Freeing the Natural Voice”. Aðferðin byggist meðal annars á að geta notað röddina án óþarfa spennu og kvíða, styrkja röddina og stækka með tækni sem styðst við öndun og líkamsliðkun. Einnig eru gefin ráð um hvernig best er að velja sér lög við hæfi og lögð áhersla á textameðferð. Tvennir tónleikar verða yfir önnina og í lokin fær nemandinn að velja sér eitt lag til að taka upp í hljóðveri. Kennarar: Margrét Eir, Erna Hrönn og Heiða Ólafsdóttir Söngur og framkoma - framhald 14 ára og eldri / 1 klst. á viku í 10 vikur. Skilyrði eru að nemandi hafi lokið ”Söngur og framkoma” eða sambærilegu námskeiði. Þetta námskeið er framhald af "Söngur og framkoma" og haldið er áfram þar sem frá var horfið af fyrri námskeiðum. Tvennir tónleikar verða haldnir, upptökur á einu lagi, og 2 einkatímar hjá Margréti Eir. Kennarar: Margrét Eir, Erna Hrönn og Heiða Ólafsdóttir Söngur og framkoma fyrir börn Fyrir börn 6 - 12 ára / 1 klst. á viku í 10 vikur. Á þessu námskeiði verður aðaláhersla lögð á söng og tjáningu. Krakkarnir munu vinna íslenska tónlist þar sem hreyfileikir, tjáning, túlkun og framsetning texta verða megin viðfangsefnin. Markmiðið er að í lok námskeiðs geti hver og einn staðið á sviði og flutt sitt lag ásamt því að syngja í hóp með öðrum. Tónleikar í lokin sem verða teknir upp. Kennarar: Margrét Eir, Erna Hrönn og Heiða Ólafsdóttir Söngleikjanámskeið Unglingar 13 - 15 ára / 1.5 klst. á viku í 10 vikur. Áhersla lögð á söng, leiklist og dans. Valinn verður söngleikur og atriði úr honum flutt á tónleikum í lok annar. Einnig verður kynnt fyrir nemendum hvað felst í því að taka þátt í söngleik, þar með talið búningar, sviðsmynd, förðun o.fl. Kennarar: Margrét Eir og Heiða Ólafsdóttir Tónvinnsluskólinn er aðili að frístundakortakerfi Reykjavíkurborgar Erna Hrönn - Heiða - Margrét Eir Sponsored Digidesign School Hægt er að sæ kja um þátttöku á sló ðinni www.tonvinns luskoli.is eða í síma 53 49090

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.