Fréttablaðið - 27.08.2009, Blaðsíða 46
30 27. ágúst 2009 FIMMTUDAGUR
menning@frettabladid.is
Alexandra Chernyshova stendur í ströngu sem
fyrr. Um helgina frumsýnir hún tvo óperuþætti
í leikhúsinu á Akureyri og verða tvær sýningar
nyrðra og hefjast báðar kl. 15 á laugardag og
sunnudag. Alexandra er sem kunnugt er listrænn
stjórnandi og aðaldriffjöður Óperu Skagafjarðar
þar sem hún starfar sem kennari. Þessi mennt-
aða söngkona hefur þar drifið upp tónlistarstarf
og á Ópera Skagafjarðar nú tvær stórar uppfærsl-
ur að baki: La Traviata og Rigoletto.
Verkin sem verða sýnd á Akureyri eru Síminn
eftir Menotti, sem hún flytur ásamt Michael Jóni
Clark og Biðin eftir Mikael Tariverdiev frá 1986
og er þetta frumflutningur hennar hér á landi.
Leikstjóri er Aðalsteinn Bergdal, en undirleik
annast Daniel Þorsteinsson.
Sýningar á óperuþáttunum verða í Iðnó í
Reykjavík 4. og 5. september og í Miðgarði í
Skagafirði, stórendurbættum, þann 19. sept-
ember.
Óperur á Akureyri
kl. 20.
Þorvaldur Þorsteinsson heldur fyrir-
lestur í kvöld í Listasafni Reykjavík-
ur þar sem hann hugleiðir sönnunar-
gildi blekkingarinnar út frá verki
Erró, Trafalgar 1805. Undanfarandi
er leiðsögn Sirru Sigurðardóttur um
sýninguna Erró - mannlýsingar.
> Ekki missa af
Sýningum artFart í kvöld: í
Iðnó kl. 20 Hold me till you
break, spunasýning um ástina;
Stúdentaleikhúsið sýnir Eðli-
leika í Batteríinu kl. 20; kl. 21
á sama stað er Lady´s Choice
Sigríðar Soffíu Níelsdóttur og
kl. 22 Cobra Kai – Kata-dori:
!!SEAGAL!!
Miðasala á Ástardrykkinn, óperu-
sýningu haustsins hjá Íslensku
óperunni, hefst í dag kl. 14. Ein-
ungis átta sýningar verða á þess-
ari kunnu gamanóperu en frum-
sýning er í októberlok. Mikil
ásókn var í miða á sýningar
Óperunnar í fyrrahaust og má
því búast við að miðarnir seljist
hratt. Ástardrykkurinn er þekkt-
ur meðal áhugamanna um óperur
og hefur verið sýndur hér í áður,
síðast á vegum Óperunnar vet-
urinn 1997/98 og fyrst á vegum
félags óperusöngvara í Tjarnar-
bíói 1967/8, en frá þeim sýningum
spratt Íslenska óperan.
Miðaverð á Ástardrykkinn er
óbreytt frá því í fyrra, 5.400 kr. á
almennar sýningar. Vert er síðan
að minna á að 25 ára og yngri fá
sem fyrr 50% afslátt af miða-
verði. Ástardrykkurinn var á
efnisskrá Óperunnar síðla vetr-
ar en sýningunni var frestað þá
af efnahagsástæðum.
Ástardrykkurinn er þekkt-
asta gamanópera Donizetti og
gerði hann frægan um alla Evr-
ópu. Hún var frumsýnd 1832 og
er eitt af þekktustu verkum hans,
en eftir hann liggja 75 óperuverk
samin á aðeins 12 árum.
Í verkinu segir frá strák sem
vill ná sér í stelpu og þegar allt
bregst leitar hann á náðir kuklara
nokkurs sem bruggar honum svo-
kallaðan ástardrykk með ýmsum
afleiðingum. Að lokum fer þó allt
vel, eins og svo oft í óperum, og
hin sanna ást sigrar að lokum.
Einvalalið ungra íslenskra
söngvara syngur aðalhlutverk-
in í sýningunni. Með hlutverk
unga mannsins, Nemorino, fer
Garðar Thór Cortes, með hlut-
verk ungu stúlkunnar, Adinu, fer
Dísella Lárusdóttir, kuklarann
Dulcamara syngur Bjarni Thor
Kristinsson og í hlutverki keppi-
nautarins Belcore er Ágúst Ólafs-
son. Með hlutverk vinkonunnar
Gianettu fer Hallveig Rúnars-
dóttir. Þá syngja þau Þóra Ein-
arsdóttir og Gissur Páll Gissur-
arson einnig hlutverk Adinu og
Nemorino á sýningatímabilinu.
Sama listræna stjórn og stóð
að hinni vel heppnuðu uppfærslu
á Cosí fan tutte Mozarts í Óperu-
stúdíói Íslensku óperunnar vorið
2008 stendur að uppfærslunni
á Ástardrykknum; þau Ágústa
Skúladóttir leikstjóri, Guðrún
Öyahals leikmyndahönnuður,
Katrín Þorvaldsdóttir búninga-
hönnuður og Páll Ragnarsson
ljósahönnuður. Hljómsveitarstjóri
er líkt og þá Daníel Bjarnason. Þá
tekur kór og hljómsveit Íslensku
óperunnar ennfremur þátt í sýn-
ingunni. Sýningardagsetningar
og frekari upplýsingar má finna
á www.opera.is.
Ekki er afráðið frekar hvaða
verkefni önnur verða á sviði
Óperunnar í vetur en samningur
hennar við menntamálaráðuneyt-
ið rennur út í árslok og hefur ekki
verið gengið frá nýjum samningi
við sjálfseignarstofnunina við
Ingólfsstræti. pbb@frettabladid.is
Drykkur byrlaður
SÖNGLIST Garðar Thór Cortes og Disella Lárusdóttir fara með stóru hlutverkin í Ástar-
drykknum MYND ÍSLENSKA ÓPERAN/KRISTJÁN MAACK
Djammvika, fjölskyldusýning, ferð til
Akureyrar, alþjóðleg samstarfsverkefni
og stórsýning með Sinfóníunni eru helstu
verkefni Íslenska dansflokksins á sýning-
arárinu sem nú er að hefjast.
ÍD frumsýnir í september Fjölskyldusýningu, brot
úr fimm aðgengilegum verkum. Frítt verður inn á
sýninguna fyrir börn yngri en 12 ára. Katrín Hall,
listrænn stjórnandi flokksins, segir þetta kjörið
tækifæri fyrir fjölskylduna að koma saman og upp-
lifa töframátt dansins.
Í lok október heldur flokkurinn norður um heiðar
og sýnir í samvinnu við LA þrjú vinsæl verk: róm-
antíska dúettinn Svaninn, Skekkju og Kvart sem ÍD
sýndi í Frakklandi og Ítalíu fyrr á árinu þar sem
það fékk frábæra dóma.
Í nóvember verður svo boðið upp á ferska dans-
veislu á Djammviku með fjórum verkum í vinnslu
eftir þau Kristján Ingimarsson, Tony Verzich, Peter
Anderson og Steinunni Ketils ásamt Brian Gerke.
Eftir áramót sýnir ÍD verkið Endalaus eftir Alan
Lucien Oyen, ungan norskan höfund sem nú er að
semja fyrir Norsku óperuna og dansflokkinn þar.
Alan er þekktur fyrir fallegar og tilfinningarík-
ar sýningar sem innihalda bæði ljóðrænan dans og
talað orð sem hann skrifar sjálfur. Katrín segir það
mikinn feng að fá Alan til liðs við ÍD en hann mun
semja Endalaus í samvinnu við dansarana.
Sýningarári ÍD lýkur svo með dansviðburði á
Listahátíð: ÍD, Sinfónían og Listahátíð sameina
krafta sína í nýju verki við Fordlandiu, tónlist eftir
Jóhann Jóhannsson sem sprottin er af sögu frá
nýlendutímanum og borginni Iquitos, Fordismanum
og gúmmíhruninu í Suður-Ameríku. Sýningin verð-
ur sjónræn veisla en Katrín sagði ekki hægt að
greina frá hvaða danshöfundur kæmi að verkinu þó
samningar við hann væru á lokastigi.
Íslenski dansflokkurinn er án efa sú íslenska
sviðslistastofnun sem hefur ferðast og sýnt víðast
á síðustu árum en dansflokkurinn er mjög virkur í
alþjóðlegu samstarfi. Nú tekur hann upp samstarf
við pólska dansflokkinn Silesian Dance Theatre
sem er talinn fremsti nútímadansflokkur Póllands.
Stórverkefnið Keðja, sem er samstarfsverkefni
átta þjóða og nýtur stuðnings Evrópusambandsins
og norræna sjóða, verður fyrirferðarmikið í starf-
semi flokksins á árinu en því verkefni lýkur einmitt
með afar fjölbreyttum dansviðburði hér í Reykjavík
í október 2010, með þátttöku fjölmargra innlendra
sem erlendra aðila.
pbb@frettabladid.is
Nýtt ár hafið hjá ÍD
LISTDANS Úr Svaninum eftir Láru Stefánsdóttur. MYND ÍD/GOLLI
TÓNLIST Alexandra Chernyshova, listrænn stjórn-
andi og óperusöngkona.
MYND ÓPERA SKAGAFJARÐAR/JÓN HILMARSSON
2008
Stefnumót við fortíðina
Skáldsagan RÁN er komin
í kilju. Meistaralega skrifuð
bók um hugrekki og
glataðar hugsjónir.
„Þessi er bara góð í gegn ... alveg frábær ...“
Gerður Kristný, Mannamál