Fréttablaðið - 27.08.2009, Blaðsíða 37
FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 2009 7gallabuxur ● fréttablaðið ●
Boss HB 104
Orange label
Stærðir: 31-40
Þvottar: dökk
bláar, fleirri þvottar
væntanlegir
Snið: Regular fit, milli
há íseta, beint snið.
Herrasnið
Boss Black label
Michigan.
Stærðir: 31–42.
Þvottar: grár, svartur.
Snið: milli há íseta,
lausar um læri
þrengjast niður.
Herrasnið
Hugo 708 Stretch
Stærðir: 30-36
Þvottur: þrír litir í boði
Snið: Slim fit, lág íseta,
þröngar niður.
Herrasnið
Boss HB 83
Orange label.
Stærðir: 31–40.
Þvottar: dökk
bláar, fleirri þvottar
væntanlegir
Snið: Loose fit,
há íseta, lausar um
læri beinar niður.
Herrasnið
KYNNING
Jafnan er talað um árið 1987 sem
gullaldarár snjóþveginna galla-
buxna en þá í september auglýsti
Karnabær svohljóðandi: „Litað
denim snjóþvegið og litað með
leðri“ í Morgunblaðinu.
Bæði var hægt að kaupa snjó-
þvegnar gallabuxur í tískuvöru-
verslunum en einnig voru aðilar
sem tóku að sér að snjóþvo fyrir fólk
gamlar venjulegar gallabuxur og
kostaði það þá minna. Sumir gerð-
ust svo djarfir að leggja buxurnar í
klór sjálfir heima hjá sér. - jma
Snjóvegnar galla-
buxur árið 1987
Helsta stjarna 9. áratugsins, Samantha
Fox, í snjóþvegnum alklæðnaði árið 1987.
● HÁTÍSKA VARÐ HIPPA-
TÍSKA Margir tengja útvíðar
gallabuxur við hippatískuna en
sannleikurinn er sá að útvíðu
gallabuxurnar voru í fyrstu há-
tíska sem hipparnir tóku svo
upp á sína arma og gerðu að
hálfgerðum einkennisbuxum
hippatískunnar. Fyrstu útvíðu
gallabuxurnar sáust í kringum
1964 í Evrópu og Norður-Amer-
íku. Fyrrum hjónakornin Sonny
og Cher eru oft talin ein þeirra
sem gerðu útvíðu
buxurnar vin-
sælar en þau
klæddu sig
gjarnan í stíl í
útvíðar galla-
buxur.
● SJALDGÆFAR BUXUR Á INT-
ER NETINU Snið sem hætt var að fram-
leiða, sjaldgæfar útgáfur sem eru orðnar
safngripir og gallabuxur sem aldrei voru flutt-
ar til landsins er hægt að finna á uppboðsvefj-
um eins og ebay. Í augnablikinu má nefna sem
dæmi að uppboð á svörtum Andy Warhol factory
x black skull Levi´s gallabuxum stendur nú yfir og
eru áætlað verð á þær um 1.500 dollarar en aðeins
voru framleidd um 250 stykki af buxunum. Einnig
má á uppboðsvefnum finna gallabuxur sem eru
úr fataskáp rappsöngkonunnar Lil´s Kim og eru
hannaðar af Ivy Supersonic. Lágmarksboð er
7.500 dollarar. - jma
Vinnufatabúðin er á sjötugs-
aldri og þar má finna bæði
sígildan klæðnað og nýj-
ustu tísku. Búðin hefur selt
Wrangler og Lee gallabuxur í
fjörutíu ár. Viðskiptavinir eru
á aldrinum frá fimmtán upp
í hundrað ára og langflestir
eru þeir karlkyns.
„Í byrjun voru þetta bara Lee
Rangers buxur og Texas í
Wrangler, þessar venjulegu,
beinar niður og búnar að vera
til síðan átján hundruð og eitt-
hvað.“ segir Þorgeir Daníelsson,
eigandi vinnufatabúðarinnar.
„Þær eru svona fastur punktur
í þessum tveim merkjum. Þetta
eru buxur sem eru orðnar sígild-
ar í dag og hafa alltaf verið sí-
gildar. Síðan fóru að koma inn
nýjar týpur eins og Brooklyn
frá Wrangler og svona,“ segir
Þorgeir.
Þorgeir sýnir blaðamanni
nokkrar tegundir, meðal ann-
ars Lee Denver sem er búið að
bleikja og vinna. „Þessar væru
fínar á Flórída, mættur niður
á strönd,“ segir hann. Sjálfur
gengur Þorgeir í Wrangler Al-
aska sem eru nokkuð stællegar
og tískulegar, þær kosta 20.000
krónur. En sígildu Lee og Wrang-
ler buxurnar eru á bilinu 11.000
til 12.000 krónur.
„Menn sem hafa verið í þessu í
gegnum tíðina koma alltaf aftur,“
segir Þorgeir. „Þetta er eins og
þú sért að fara að ná þér í mjólk-
ina þína. Þá eru þeir með þetta
merki og stærðina sína, svo lengi
sem þeir hafa ekki bætt á sig eða
minnkað. Menn geta alltaf geng-
ið að þessu.“
Þó að þungamiðjan í hópi við-
skiptavina Vinnufatabúðarinn-
ar sé frá þrjátíu upp í sextíu ára
segir Þorgeir að unglingar komi
líka til sín. „Þeir finna svo margt
hjá mér, þó það sé ekki flutt inn
sem hátíska þá geta þeir nýtt
sér það sem tískuvöru. Það er
svo margt sem ég er með sem
fellur inn í, nema helmingi ódýr-
ara,“ segir Þorgeir og bætir við
að fólk sem er meira inni í hlut-
unum kunni að koma inn í búð-
ina, fari yfir það sem er í boði
og finni það sem það vill. „Það er
svo stór þáttur í þessu hjá okkur
að fólk leitar í það sígilda,“ segir
Þorgeir að lokum.
Klassíkin ræður ríkjum
Þorgeir Daníelsson segir viðskiptavini Vinnufatabúðarinnar vera á öllum aldri,
frá fimmtán og upp í hundrað ára. FRÉTTABLAÐIÐVALLI