Fréttablaðið - 27.08.2009, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 27.08.2009, Blaðsíða 20
20 27. ágúst 2009 FIMMTUDAGUR greinar@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is MENNING: Páll Baldvin Baldvinsson fulltrúi ritstjóra pbb@frettabladid.is VIÐSKIPTARITSTJÓRI: Óli Kr. Ármannsson olikr@markadurinn.is HELGAREFNI: Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is og Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Jón Kaldal jk@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 Efnahagslíf heimsins hefur löngum markazt af miklum sveiflum. Í Bandaríkjunum gat framleiðsla á mann rokið upp um 10% eitt árið og hrapað um 5-10% önnur ár. Fjármálakreppur skullu á með 20 ára millibili eða þar um bil allar götur frá 1790 til 1929, þegar heimskreppan hélt innreið sína. Landsframleiðsla Banda- ríkjanna skrapp saman um þriðj- ung 1929-33, og atvinnuleysi náði til fjórðungs mannaflans 1933. Evrópu reiddi engu betur af. Sveiflujöfnun Heimskreppan 1929-39 kallaði á tvíþætt viðbrögð. Í fyrsta lagi hófu stjórnvöld smám saman að beita skipulegum aðgerðum í rík- isfjármálum og peningamálum til að jafna hagsveiflur og halda aftur af atvinnuleysi, fyrst í Sví- þjóð eftir 1930 og síðan í Banda- ríkjunum eftir 1960. Þetta bar tilætlaðan árangur. Hagsveiflur eftir heimsstyrjöldina síðari voru miklum mun mildari en þær höfðu verið fram að stríði. Niðursveifl- urnar eftir stríð voru lægðir frek- ar en kreppur og ollu tiltölulega litlu tjóni. Það stafar einkum af því, að ólíkt heimskreppunni var lægðunum eftir stríð mætt með markvissum gagnráðstöfunum í peningamálum og ríkisfjármálum. Fyrir kreppu voru umsvif ríkisins sáralítil vestra. Eftir stríð jukust ríkisumsvifin með hækkun tekju- skatts, atvinnuleysisbótum og annarri félagsaðstoð, svo að létt- ari skattbyrði og aukin félagshjálp milduðu sjálfkrafa áhrif skakka- falla á fólk og fyrirtæki. Fjármálaeftirlit Meiri stöðugleiki í efnahagslífinu eftir stríð á sér að auki aðra skýr- ingu. Bandaríkjaþing lögfesti 1933 innistæðutryggingar og fjár- málaeftirlit til að draga úr líkum annars bankahruns. Roosevelt forseti og þingið skildu, að tryggð- ir bankar eru hættulegir, þar eð innistæðutryggingin hvetur þá til að taka of mikla áhættu í þeirri lögvörðu von og vissu, að ríkið komi þeim til bjargar, ef í nauð- ir skyldi reka. Með nýjum lögum (kenndum við þingmennina Glass og Steagall) var reistur traustur eldveggur milli viðskiptabanka- starfsemi og fjárfestingarbanka- starfsemi til að firra venjulega viðskiptavini hættunni á að þurfa að axla tap vegna óskylds fjár- festingarbankabrasks. Bankar eru í aðstöðu til að varpa þungum byrðum á saklausa vegfarendur eins og mikill fjöldi innlendra og erlendra viðskiptavina íslenzkra banka hefur nú fengið að reyna á eigin skinni. Þess vegna verða innistæðutryggingar að haldast í hendur við strangt fjármálaeftir- lit til að halda bönkum í skefjum. Þetta tókst vel eftir stríð. Fyrsta fjármálakreppan í Bandaríkjunum eftir heimskreppuna skall á 1987, þegar verðmæti hlutabréfa á Wall Street lækkaði um fjárhæð, sem nam fjórðungi landsframleiðsl- unnar, en samt ekki nema 2% af þjóðarauðnum. Seðlabanki Banda- ríkjanna veitti þá nýju fé inn í hagkerfið, sem komst fljótlega á réttan kjöl. Sagan sýnir, að öflugt fjármála- eftirlit ásamt innistæðutrygg- ingum og markviss sveiflujöfn- un hafa dugað til að koma í veg fyrir nýja heimskreppu. Hag- fræðingar hafa þó sumir lagzt gegn fjármála eftirliti og sveiflu- jöfnun meðal annars með þeim rökum, að slíkum afskiptum fylgi hætta á auknum umsvifum ríkis- ins á kostnað einkaframtaks. Þessi rök gegn sveiflujöfnun náðu ekki eyrum flestra þeirra, sem stýra fjármálum og peningamálum, en rökin gegn fjármálaeftirliti sann- færðu Bandaríkjaþing um, að rétt væri að rífa niður eldvegginn milli viðskiptabanka og fjárfestingar- banka 1999 (með lögum kenndum við þingmennina Gramm, Leach og Bliley). Hefði skilvirk sveiflu- jöfnun lotið í lægra haldi á vett- vangi stjórnmálanna líkt og öflugt fjármálaeftirlit þurfti að víkja, hefði kreppan nú getað snúizt upp í nýja heimskreppu, en svo fór ekki. Bólusetning Nú ætla ég einmitt ekki að skipta um umræðuefni. Evrópa og þá einnig Ísland máttu þola síendur- teknar farsóttir að minnsta kosti frá Svarta dauða 1347-51 og síend- urteknum bólusóttarfaröldrum fram að Spænsku veikinni 1918-20 og berklafaraldrinum, sem náði hámarki hér heima á fjórða ára- tug síðustu aldar. Norður-Amer- íka mátti með líku lagi þola tíða faraldra skæðra smitsjúkdóma frá öndverðu fram að Spænsku veikinni, síðustu farsóttinni, sem herjaði á Bandaríkin, Kanada og Evrópu, þar til alnæmisveiran skaut sér niður um 1980. Frá 1920 hafa Evrópa og Norður-Ameríka verið laus undan oki langdrægra farsótta, ef eyðniveiran ein er undanskilin. Svo er fyrir að þakka skilvirkri bólusetningu og öðrum ónæmisaðgerðum læknisfræð- innar. Bólusetning gegn skæðum sjúkdómum er skylda í sumum löndum, en ekki í öðrum. Skyldu- bólusetning hefur dregið mjög úr útbreiðslu sumra smitsjúkdóma og upprætt aðra. Samt er enn til fólk, sem berst gegn skyldubólusetn- ingu og ber fyrir sig siðferðissjón- armið, stjórnmál, trú, vísindi og öryggi. Þetta fólk stuðlar ekki að bættri lýðheilsu. Baráttan heldur áfram. Lækningar og saga Í DAG | Hagmeinafræði ÞORVALDUR GYLFASON T æp fjörutíu ár eru liðin frá fyrsta alþjóðlega stórmót- inu í kvennaknattspyrnu. Það var árið 1971 í Mexíkó, þar sem haldin var óopinber heimsmeistarakeppni sterkustu landsliða þess tíma að viðstöddum tugum þúsunda áhorfenda. Þótt umgjörð mótsins hafi verið hin glæsilegasta, hefur knattspyrnuhreyfingin á liðnum árum kerfisbundið reynt að strika það út úr sögunni. Ástæðan er sú að á þessu fyrsta stórmóti, var kvennaknattspyrna öðrum þræði kynnt sem furðufyrirbæri til að skopast að. Keppt var með bleikum mörkum, leikmönnum var skipað að farða sig fyrir keppni og fjölmiðlar gerðu sér mat úr því að búningsklefar stúlknanna minntu helst á hárgreiðslu- og snyrtistofur. Knattspyrna kvenna var raunar algjört jaðarfyrirbæri fram undir lok sjöunda áratugarins. Öðru hvoru birtust myndir í dag- blöðum af knattspyrnukonum ásamt skoplegum athugasemdum. Var þeim yfirleitt fundinn staður innan um skringifregnir af síamstvíburum eða börnum sem alist höfðu upp meðal úlfa. Upphaf nútímakvennaknattspyrnu á Íslandi má rekja til árs- ins 1968 eða þar um bil. Handknattleikskonur nokkurra félaga voru þá farnar að spreyta sig í fótbolta á utanhússæfingum á sumrin. Vitað er að stúlkur úr Fram og KR léku formlegan leik á KR-vellinum sumarið 1968 og tveimur árum síðar var efnt til sýningarleiks í kvennafótbolta á Laugardalsvelli fyrir karlalandsleik gegn Noregi. Var það að frumkvæði Alberts Guðmundssonar formanns KSÍ. Óhætt er að segja að fyrstu ár kvennaknattspyrnunnar hafi verið mikil þrautaganga. Undirtektir stjórna knattspyrnu- félaganna voru blendnar og í sumum tilvikum var þessari nýju grein mætt með fullum fjandskap. Var þá litið svo á að um óþarfa samkeppni væri að ræða um vallarpláss og fjármuni. Þannig var algengt langt fram eftir níunda áratugnum að félög bönnuðu kvennaflokkum að hefja æfingar á grasi jafn snemma og körlunum. Sömu sögu er að segja um umfjöllun fjölmiðla, sem sinntu lengi vel fjórðu deild karla betur en stórleikjum kvennanna. Í þessu samhengi er athyglisvert að bera saman stöðu fótbolta og handbolta kvenna. Kvennahandbolti hefur alla tíð notið mun meira jafnræðis gagnvart karlaíþróttinni. Þannig hreifst þjóðin með þegar íslensku stúlkurnar urðu Norðurlandameistarar í handknattleik 1964 og Sigríður Sigurðardóttir fékk fullt hús í kjöri Íþróttamanns ársins. Bestu handknattleikskonur landsins máttu snemma heita þjóðkunnir íþróttamenn. Þennan mun má best skýra með því að bæði kynin hófu að iðka handknattleik um svipað leyti, en þegar kemur að knatt- spyrnunni má segja að konurnar hafi ruðst inn á svið sem áður var helgað körlum. Fordómarnir í garð kvennaknattspyrnunn- ar eru því varnarviðbrögð hins ríkjandi valds, á sama hátt og konur hafa fengið að reyna á svo mörgum öðrum sviðum samfélagsins. Í ljósi þessarar forsögu er það enn stórkostlegra afrek hvernig kvennalandsliðinu hefur á liðnum dögum tekist að sameina þjóðina fyrir framan sjónvarpstækin. Mikið afrek kvennalandsliðsins í knattspyrnu: Fram í sviðsljósið STEFÁN PÁLSSON SKRIFAR UMRÆÐAN Sóley Tómasdóttir skrifar um frístundaheimili Haustið er komið og grunn-skólabörn sest á skólabekk. Rútínan færist yfir – hjá flest- um. Enn glíma frístundaheimilin við mönnunar- og húsnæðisvanda sem gerir það að verkum að nokk- ur fjöldi barna er á biðlista. Þrátt fyrir að staðan á vinnumarkaði hafi gerbreyst frá síðasta ári og heilmikil vinna hafi átt sér stað hjá starfsfólki svið- anna til að fyrirbyggja vandann. Frá aldamótum hefur metnaðarfullt starfsfólk íþrótta- og tómstundasviðs unnið kraftaverk á sviði frítímaþjónustu fyrir börn í 1.-4. bekk. Frístunda- heimilin hafa vaxið og dafnað, innra starf verður stöðugt faglegra og viðfangsefnin fjölbreyttari. Ánægja foreldra og barna hefur aukist jafnt og þétt og samstarf frístundaheimila og skóla fer batnandi. Framfarirnar eru fyrst og fremst starfsfólki sviðsins að þakka. Umfjöllun um starfið er lítil sem engin á hinum pólitíska vettvangi, þó reglulega sé fylgst með tölum um starfsmannafjölda og biðlista. Pólitískri eftirfylgni með þessu unga en efnilega verkefni borgarinnar hefur verið mjög ábótavant. Þrátt fyrir að umsóknir hafi borist fyrir ríflega 2.800 börn, sem er 700 umsóknum fleira en fjárhags- áætlun gerir ráð fyrir, enn vanti 70 starfsmenn til að hægt sé að taka á móti öllum börnum og húsnæði hamli inntöku í nokkrum skólum, er frumkvæði af hálfu meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknar- flokks ekkert og fundir hafa ekki verið haldnir nema að beiðni minnihlutans. Skýrsla starfsfólks með til- lögum að úrbótum, sem skilað var til borgarstjóra í byrjun júní hefur enn ekki verið kynnt, né heldur hefur verið tekin formleg ákvörðun um að tekið verði á móti öllum þeim sem sótt hafa um. Afskiptaleysi meirihlutans getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir hag og heilsu fjögurra árganga skólabarna í borginni. Borgarfulltrúar Vinstri grænna munu hér eftir sem hingað til standa með rekstri frístundaheimilanna, þannig að öll börn geti notið þess góða starfs sem þau hafa upp á að bjóða. Höfundur er borgarfulltrúi. Hagur barnanna er í húfi SÓLEY TÓMASDÓTTIR Að mæta eða drekka Miklar umræður hafa spunnist um hvort Sigmundur Ernir Rúnarsson hafi verið allsgáður í þrumandi eldræðu sem hann hélt á Alþingi fyrir viku. Sigmundur Ernir neitaði því í fyrstu að hafa bragðað áfengi áður en hann sté í pontu. Í gær játaði hann þó að hafa fengið sér vín með kvöldmatnum en áréttaði að hann hefði ekki kennt áhrifa af borðvíninu. Sigmund- ur taldi þó ástæðu til að biðjast velvirðingar. „Eftir á að hyggja voru það engu að síður mistök af minni hálfu að mæta í þingið eftir að hafa bragðað áfengi,“ skrifaði hann á vefsíðu sína í gær. Snýr þing- maðurinn þessu ekki á hvolf? Voru mistökin ekki þau að hann bragðaði áfengi áður en hann mætti á þing frekar en hitt? Kannski bitamunur en ekki fjár. Og þó. En hvað um hina? Á vef Alþingis er hægt að horfa á ræðu Sigmundar Ernis umrætt kvöld. Athygli vekur að nær allan tímann sem Sigmundur Ernir var í pontu mátti hann sitja undir frammíköllum utan úr sal sem minntu lítt á siðaða og málefnalega umræðu. Þingmennirnir sem höfðu sig hvað mest í frammi hafa ekki verið sakaðir um að hafa verið ölvaðir. Hvaða afsökun hafa þeir þá? Bræður í höttum Fáir íslenskir karlar nú til dags eru svo vörpulegir að þeir komist upp með að ganga með hatt. Sigmundur Ernir er í þeim hópi. Það er Reynir Traustason, ritstjóri DV, líka. Nú eiga þeir hins vegar fleira sameigin- legt: báðir hafa þeir til dæmis komist í hann krappan á þessu ári eftir að hafa gerst sekir um ósannsögli. Sigmundur Ernir sagði fyrst ósatt um hvort hann hefði bragðað áfengi kvöldið umrædda. Reynir reyndi í byrjun árs að skrökva upp á blaðamann sem ljóstraði upp um að Reynir kæfði frétt vegna utanaðkomandi þrýst- ings. Þingmaðurinn nýtur því kannski ákveðinnar samúðar hjá ritstjóranum, sem veit hvernig er að vera í hans sporum. Að þessu leyti eru þeir undir sama hatti. bergsteinn@frettabladid.is Opið virka daga kl. 8:00 til 17:00 www.velaland.is VESTURLANDSVEGUR VAGNHÖFÐI VÉLALAND HÚSGAGNA- HÖLLIN TANGARHÖFÐI BÍlDSHÖFÐI H Ö FÐ A B A K K I REYKJAVÍK Vélaland - VAGNHÖFÐA 21 Sími 577-4500 Vélaland sérhæfir sig í tímareimum. Komdu í Vélaland og fáðu ráðgjöf um skiptingu á tímareim. Vélaland skiptir fljótt og vel um tímareimina fyrir þig, á föstu verði. Fáðu ráðgjöf um tímareimaskipti Er tímareimin komin á tíma? Fast verð hjá Vélalandi Skoðaðu fast verð hjá Vélalandi. Hringdu núna í síma 577-4500 og pantaðu tíma. Verðdæmi um tímareimaskipti: Nissan Patrol 2,8 dísil Árgerð 1992-2000 Heildarverð, varahlutur og vinna: 50.805 kr. Toyota Land Cruiser 90 3,0TD Árgerð 1997-2002 Heildarverð, varahlutur og vinna: 40.780 kr. Toyota Corolla 1,6 bensín Árgerð 1997-2001 Heildarverð, varahlutur og vinna: 38.870 kr. VW Golf 1,6AEE bensín Árgerð 1997-2006 Heildarverð, varahlutur og vinna: 46.774 kr. Ford Focus 1,6 bensín Árgerð 1998-2005 Heildarverð, varahlutur og vinna: 38.948 kr. Sjáðu hvar við erum. Hringdu núna í síma 577-4500 og pantaðu tíma.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.