Fréttablaðið - 27.08.2009, Blaðsíða 28
27. ÁGÚST 2009 FIMMTUDAGUR2 ● fréttablaðið ● gallabuxur
Levi’s
511.04.55
Stærðir: 28-36
Þvottar: 6 litir í boði
Snið: Slim fit, frekar
lág íseta, þröngar
niður.
Herrasnið
Levi’s
501.06.05
Stærðir: 28-36
(3 litir koma upp
í st. 42)
Þvottar: 7 litir í boði
Snið: Beint snið, há
íseta, unisex.
Herrasnið
Levi’s
10529.00.02
Stærðir: 26-34
Þvottar: 5 litir í boði
Snið: Bootcut, frekar
há íseta, beinar frá
hné að kálfa, víðar
yfir skóinn.
Dömusnið
Levi’s
603.00.39
Stærðir: 25-32
Þvottar: 3 litir í boði
Snið: Slimfit lág
íseta, þröngar niður.
Dömusnið
KYNNING
„Línan frá Levi‘s í haust er
mjög dökk. Þetta rifna og
þetta „vintage-look“ er að
sjálfsögðu líka mjög heitt
þessa dagana og verður
áfram,“ segir Lilja Bjarna-
dóttir sem rekur Levi‘s-
verslanirnar á Íslandi.
„Hjá okkur eru til nokkur rifin
snið, til dæmis 603, 501 og fleiri.
Það munu bætast fleiri snið við
þessa rifnu línu og þær verða
þá ljósari. Það er auðvitað allt í
tísku en þetta er svona það heit-
asta frá Levi‘s.“
Það sem Levi‘s hefur verið
þekkt fyrir í gegnum árin er
hið fræga 501-snið frá 1873. „Þó
svo að það sé sagt að 501-sniðið
sé alltaf eins þá hefur því verið
breytt 33 sinnum á þessu tíma-
bili. Er 501 alltaf breytt í takt við
tíðarandann en er að sjálfsögðu
klassískt snið og höfðar til allra
aldurshópa. Svo erum við með
603 fyrir konur sem er aðalsnið-
ið í kvenlínunni hjá Levi‘s. Það er
lágt snið í mittið en samt eru þær
þægilegar. Þær eru mjög þröngar
niður og flottar við stígvél. Þær
fást með mörgum mismunandi
áferðum hjá okkur. Síðan erum
við með 10529 sem eru aðeins
hærri í mittið í svokölluðu „boot-
cut“ sniði, þær eru beinar niður
en aðeins víðari yfir skóinn. Það
er snið sem hentar mjög mörgum
konum og kemur í ýmsum stærð-
um, allt frá 26 upp í 36. Er 603
mest selda kvensniðið hjá Levi‘s í
Skandinavíu og hefur selst gríðar-
lega vel á Íslandi.“
Karlarnir velja bein þröng
snið. „Í karlalínunni hefur 511
verið mjög vinsælt sem og 504
sem er beint snið; 511 er til í
mörgum litum, sérstaklega í
dökkum tónum, svörtu og gráu.
Það er frekar lágt snið í mittið,
er með lága rassvasa og þröngt
niður. Svo eru smám saman að
koma aftur „boot-cut“ og út-
víðar buxur, það gerist rólega
bara. Þannig að það er þröngt og
svart og svo rifið og ljóst í anda
kreppunnar í vetur.“
Svart snýr aftur hjá Levi‘s
Lilja Bjarnadóttir og Levi‘s kynna nýja haust- og vetrarlínu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Hið vinsæla „501“-snið Levi´s
gallabuxna varð afar vinsælt á Ís-
landi í kringum 1990 en þá voru
heilu bekkirnir í grunnskólum allir
klæddir í slíkar buxur og þá karl-
mannssniðið − hvort sem um stelp-
ur eða stráka var að ræða. Galla-
buxurnar „501“ má rekja allt aftur
til ársins 1890 en sniðið hefur þó
breyst nokkrum sinnum síðan þá,
sérstaklega á árum síðari heims-
styrjaldar. Einhverra hluta vegna
náði kvenmanns-snið buxnanna
ekki sömu vinsældum hér á landi
og karlmannssniðið sem er fremur
beint. Enginn veit af hverju núm-
erið 501 var valið en í byrjun galla-
buxnaiðnaðar Levi´s voru einnig
framleiddar buxur sem var gefið
númerið 201. - jma
Grunnskóla-
bekkir í 501
Árið 1997 fann Levi Strauss & Co par
af 501-gallabuxum frá árinu 1890 og
keypti þær fyrir tuttugu og fimm þús-
und dollara.
● HVÍTAR GALLABUXUR Á HEIT-
ARI ÁRSTÍÐUM Hvítar gallabuxur voru
áberandi á tískudrósum 7. áratugarins en
svartur eyeliner, hvítar gallabuxur og rúllu-
kragabolur var eitt af því sem hver kona varð
að eiga á þeim tíma. Hvítar gallabuxur eru allt-
af vinsælar á vorin og voru afar vinsælar í kring-
um 1992. Angelina Jolie er ein af þeim sem
klæðist reglulega hvítum gallabuxum en hún og
eiginmaðurinn Brad
Pitt eru þekkt „galla-
buxnahjón“ í Holly-
wood. Hvítar galla-
buxur fengust fyrst
á Íslandi í kring-
um 1967 og voru
þá meðal annars
seldar í versluninni
Geysi. - jma
● UMDEILDAR BRÆKUR Gallabuxur sem
sitja lágt, stundum kallaðar mjaðmabuxur, urðu
afar vinsælar í kringum árið 2000 þrátt fyrir að hafa
verið á markaði allt frá árinu 1960. Reglan með
buxur af þessu tagi er að þær eiga ekki
að ná hærra en um 8 sentimetrum
neðan við nafla.
Gallabuxurnar ollu talsverðum
usla þegar þær urðu vinsælar enda
glittir gjarnan í nærföt þeirra sem
buxunum klæðast við setu og mátti
gjarnan sjá g-strengi gægjast upp fyrir
gallabuxurnar.
Þannig eru nokkrir skólar í
Bandaríkjunum sem banna nem-
endum að klæðast lágum galla-
buxum.