Fréttablaðið - 27.08.2009, Blaðsíða 16
16 27. ágúst 2009 FIMMTUDAGUR
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
„Nú gengur allt út á kartöflur á mínu
heimili,“ segir Valgerður Sverris-
dóttir, fyrrverandi ráðherra, á
Lómatjörn við Eyjafjörð.
Uppskerutíminn er hafinn
á Lómatjörn. „Núna er það
mitt starf að hluta til að keyra
kartöflur til Akureyrar og ég
er að koma úr einni slíkri ferð.
Ég er svolítið flott á sendibíl sem
kallaður var rúgbrauð í gamla
daga,“ segir Valgerður sem kveð-
ur Lómatjarnarkartöflurnar
seldar um land allt.
„Nú ræð ég mér bara
sjálf og ég er að gera
ýmislegt sem ég hef
ekki haft tíma til að
gera í áratugi og er
búin að vera hér í sveitinni minni alveg í
sumar. Ég er kannski ekki á kafi á búverkum
en keyri stundum kartöflurnar. Ég er mjög
nothæf í það,“ segir Valgerður og hlær.
Að sögn Valgerðar er nú ákaflega
fallegt haustveður í Eyjafirði og gott að
vera þar þótt eflaust hafi verið meiri
veðurblíða fyrir sunnan þetta sumarið.
„Berjatíminn er að byrja og ég er ein-
mitt að fara í berjamó núna á eftir,“
segir ráðherrann fyrrverandi og
bætir við að nú sé einnig farið
að draga að því að endur-
heimta fé af fjalli. „Sjálf fer
ég ekki í langar göngur
en tek einhvern þátt í
smalamennsku í fjallinu
fyrir ofan bæinn. Hér er
nóg að gera.“
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA: VALGERÐUR SVERRISDÓTTIR
Sendist með kartöflur á rúgbrauðinu
TÆKNI 36 tonna tæknitrukkur frá fyrirtækinu
IBM er nú staddur hér á landi. Trukkurinn
er búinn öllum nýjasta tæknibúnaði frá IBM.
„Þarna gefst fólki kostur á að skyggnast inn í
framtíðina því þarna er frumsýning á mörgum
nýjum tæknibúnaði,“ segir Gísli Þorsteinsson
upplýsingafulltrúi Nýherja, en trukkurinn er til
sýnis hjá Nýherja í Borgartúni.
„Í raun eru þarna framtíðarlausnir. Það sem
kannski er helst lögð áhersla á eru umhverf-
isvænar og orkusparandi lausnir. Þeir leggja
mikla áherslu á að kynna slíkar lausnir til sög-
unnar og þessi trukkur er gríðarlega afkasta-
mikill. Búnaðurinn í honum gæti keyrt allt
tölvuumhverfi fyrirtækja og einstaklinga á
Akureyrarsvæðinu, tugþúsundir notenda.“ Bún-
aðurinn sem er í bílnum er tugmilljóna króna
virði.
Að sögn Gísla er markmiðið með komu trukks-
ins að kynna þessar framtíðar- og hagræðing-
arlausnir sem eru framundan. Þar hafa meðal
annars verið kynntar fistölvur, sem eru léttar og
eru sparneytnari en eldri tölvur. „Áherslan er
lögð á hagræðingu og umhverfisvænni lausnir.“
- þeb
36 tonna tæknitrukkur frá IBM staddur hér á landi:
Skyggnst inn í framtíðina
TRUKKURINN Gísli Þorsteinsson fyrir utan trukkinn stóra, sem er
fyrir utan Borgartún 37.
Löng hefð er fyrir því að
mála málverk af fyrrver-
andi bankastjórum Lands-
bankans. Málverk eru til af
öllum fyrrverandi banka-
stjórum bankans fyrir utan
Halldór J. Kristjánsson og
Sigurjón Þ. Árnason. For-
maður bankaráðs segir ekki
búið að ákveða hvort það
verði gert.
Landsbankinn á sér langa sögu sem
teygir anga sína allt aftur til ársins
1886. Fyrir utan setta bankastjóra
hafa 33 gegnt embætti bankastjóra
Landsbankans á þessu tímabili að
Ásmundi Stefánssyni, núverandi
bankastjóra meðtöldum. Hefð er
fyrir því að máluð sé mynd af fyrr-
verandi bankastjórum Landsbank-
ans og prýða málverkin húsakynni
bankans í Austurstræti.
Margir merkismenn hafa gegnt
stöðu bankastjóra Landsbankans. Í
þeim hópi má nefna Tryggva Gunn-
arsson, Emil Jónsson og Jónas H.
Haralz, svo fáeinir séu nefndir.
Oftar en ekki eru því virtustu lista-
menn þjóðarinnar fengnir til að
mála af þeim mynd. Sjálfur Jóhann-
es Kjarval málaði myndir af fjórum
fyrstu bankastjórunum en meðal
annarra listamanna má nefna Eirík
Smith og Baltasar Samper.
Enn eru þó ómálaðar myndir af
tveimur fyrrverandi bankastjór-
um Landsbankans, þeim Halldóri
Kristjánssyni og Sigurjóni Árna-
syni, en þeir létu sem kunnugt er
af störfum hjá Landsbankanum í
fyrra. Staða þeirra var um margt
ólík fyrri starfsbræðrum þeirra
að því leyti að þeir skildu við bank-
ann í kalda koli og með skuldaklafa
sem verður þungur baggi á íslensku
þjóðarbúi næstu árin.
Fréttablaðinu lék forvitni á að
vita hvort Halldóri og Sigurjóni yrði
eftir sem áður sýndur sami sómi og
fyrri bankastjórum og fengju mál-
aða af sér mynd. Haukur Halldórs-
son, formaður bankaráðs Lands-
bankans, hafði ekki svör á reiðum
höndum þegar Fréttablaðið innti
hann eftir þessu.
„Ég bara veit það ekki,“ segir
Haukur. „Frá því að ég tók við sem
formaður bankaráðs hafa málverk
af Halldóri og Sigurjóni hreinlega
ekki komið til tals á fundum banka-
ráðs. Ég get því ekki sagt af eða á
um það mál.“
Sagan sýnir þó að bankastjórar
hafa vissulega fengið málaða af sér
mynd þrátt fyrir umdeild starfslok.
Þannig hröktust þeir Björgvin Vil-
mundarson, Halldór Guðbjarna-
son og Sverrir Hermannsson allir
úr embætti árið 1998 vegna spill-
ingar. Engu að síður eru til málverk
af þeim öllum. Það er því spurning
hvort kemur á endanum til með að
ráða meiru um hvort Halldór og
Sigurjón fái málaða af sér mynd,
123 ára gömul hefð eða almenn-
ingsálitið. bergsteinn@frettabladid.is
Ráðherra spyr sig
„Ég spyr mig hvort misvit-
ur samkeppnislög eigi að
standa þjóðfélaginu fyrir
þrifum.“
JÓNI BJARNASYNI SJÁVARÚTVEGS-
OG LANDBÚNAÐARRÁÐHERRA, ER
UPPSIGAÐ VIÐ LÖG SEM VALDA
SEMENTSVERKSMIÐJUNNI Á AKRA-
NESI VANDRÆÐUM.
Fréttablaðið 26. ágúst
Ísland, best í heimi!
„Ég held að íslenskar konur
hafi eina bestu genablöndu
í heimi hvað varðar styrk og
líkamsbyggingu.“
KRAFTAKONAN GEMMA MAGNÚS-
SON HORFIR Á BJÖRTU HLIÐARNAR
ÞRÁTT FYRIR DAPURT ÁSTAND Í
EFNAHAGSLÍFINU.
Fréttablaðið 26. ágúst.
■ Af þeim 192 löndum, sem eiga
aðild að Sameinuðu þjóðunum,
eru 28 með yfirvald sem ber
tignarheitið konungur, drottning,
keisari, fursti, hertogi, páfi, emír
eða annað sambærilegt. Þrjú
þessara landa eru í Afríku, þrett-
án í Asíu, ellefu í Evrópu og eitt á
Kyrrahafseyjunni Tonga. Í Evrópu
eru kóngar í Noregi, Svíþjóð,
Belgíu og á Spáni, drottningar
í Bretlandi, Danmörku og Hol-
landi, prins í Mónakó og Liecht-
enstein, hertogi í Lúxemborg,
páfi í Páfagarði, og svo eru tveir
prinsar formlega við völd í And-
orra, en þeirri tign skipta á milli
sín samkvæmt aldagamalli hefð
forseti Frakklands og biskupinn
af Urgell í Katalóníu á Spáni.
FRÓÐLEIKUR
KÓNGAR OG ÞVÍUMLÍKT
FORTÍÐIN AÐ BAKI Sigurjón Þ. Árnason og Halldór J. Kristjánsson ásamt Björgólfi Guðmundssyni, sem stendur í miðið. Að baki
þeim hanga málverk af nokkrum fyrrverandi bankastjórum Landsbankans. Ekki hefur verið ákveðið hvort Sigurjón og Halldór
hljóta sama sess. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Óvíst með málverk af Halldóri
og Sigurjóni í Landsbankanum
Smárit Ferðafélags Íslands
Handhægar gönguleiða-
lýsingar til að hafa með
í bakpokanum
Fást á skrifstofu FÍ
og í næstu bókabúð
SKRÁÐU ÞIG INN – DRÍFÐU ÞIG ÚT!
www.fi.is
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS | Mörkinni 6 | 108 Reykjavík | Sími: 568 2533 | Fax: 568 2535 | Netfang: fi@fi.is
Í nýjasta fræðsluriti FÍ, sem er það
fimmtánda í röðinni, er umfjöllunar-
efnið fjalllendið milli Snæfellsness
og Borgarfjarðar. Ritinu er ætlað
að bæta úr skorti á aðgengilegum
leiðarlýsingum og kortum, bæði
varðandi Vatnaleiðina milli Hnappa-
dals og Norðurárdals og eins um
önnur áhugaverð göngusvæði á
þessum slóðum.
„Ég velti því fyrir mér hvernig
heimurinn væri í dag ef þrælarnir
sem voru hnepptir í þrældóm af
grimmum nýlenduherrum hefðu
ekki risið upp og krafist frelsis,“
segir Guðjón Heiðar Valgarðsson
nemi þegar spurður um nýju fyrir-
varana við Icesave.
„Manni finnst skrítið að hugsa
til baka til tíma þar sem slíkt var
eðlilegur hluti af viðskiptaumhverfi
samtímans. Viðskiptablöð með
fréttum af genginu, viðtöl við
helstu sérfræðingana og auglýs-
ingar með nýjustu þrælunum.
Ætli margir á þeim tíma hafi áttað
sig á óréttlætinu? Núna erum við
samt orðin svo siðprúð og klár
að við myndum aldrei leyfa þess
háttar að viðgangast. Við myndum
rísa upp og krefjast frelsis,“ segir
Guðjón.
„Að neyða fólk til að vinna fyrir
auðkýfinga? Aldrei. Alla vega ekki
án fyrirvara um að við verðum
örugglega skilvirkir þrælar. Þvílík
uppreisn.“
SJÓNARHÓLL
FYRIRVARAR VIÐ ICESAVE
Þrældómur
með fyrirvara
GUÐJÓN HEIÐAR VALGARÐSSON