Fréttablaðið - 27.08.2009, Blaðsíða 6
6 27. ágúst 2009 FIMMTUDAGUR
LÖGREGLUMÁL Bjarki Freyr Sigurgeirsson hefur játað
við yfirheyrslur hjá lögreglu að hafa banað Braga
Friðþjófssyni í herbergi sínu í Dalshrauni í Hafnar-
firði fyrir hálfri annarri viku. Ástæða og aðdrag-
andi morðsins liggur hins vegar ekki ljós fyrir.
Bragi var gestkomandi hjá Bjarka og svo virðist
sem þeim hafi sinnast með þeim afleiðingum að
Bjarki barði Braga til bana með samlokugrilli.
Bjarki var í mjög annarlegu ástandi þegar hann var
handtekinn skömmu síðar.
Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hefur játn-
ing legið fyrir svo til frá því Bjarki var handtekinn.
Ekki hefur hins vegar fengist uppgefið fram til
þessa hvort Bjarki gekkst við verknaðinum. Sam-
kvæmt heimildum blaðsins segist Bjarki muna
ágætlega eftir atburðunum sem leiddu til árásarinn-
ar, en framburður hans kemur hins vegar ekki fylli-
lega heim og saman við önnur gögn málsins.
Bjarka hefur verið gert að gangast undir geðrann-
sókn til að kanna sakhæfi hans. Nokkrar vikur geta
liðið þar til niðurstaða fæst í slíka rannsókn.
Eftir handtöku var Bjarki úrskurðaður í gæslu-
varðhald til 1. september á grundvelli rannsóknar-
hagsmuna. Líklegt er að farið verði fram á frekara
varðhald á grundvelli almannahagsmuna þegar hið
fyrra rennur út. - sh
Bjarki Freyr Sigurgeirsson hefur gengist við morðinu í Dalshrauni:
Morðinginn hefur játað sök
Í DALSHRAUNI Bjarka sinnaðist við Braga í þessu húsi með
hörmulegum afleiðingum. FRÉTTABLAÐIÐ / GVA
„Ég vil námsmanna-
þjónustu Byrs“
Vertu hjá Byr og
sparaðu helling:
• Frítt Byr námsmannadebetkort með 150 frífærslum á ári og
afsláttum á völdum stöðum.
• Frítt Byr námsmannakreditkort með 5.000 kr. ferðaávísun
og fríu World for 2 korti fyrsta árið.
• Ódýrt í bíó hjá Sambíóunum. 2 fyrir 1 á mánudögum og
20% afsláttur alla hina dagana.
• Ódýrt í ræktina hjá World Class og Vaxtarræktinni.
Þú borgar fyrir sex mánuði en æfir í níu mánuði.
• Ódýrara í skólann með 10% afslætti af öllu hjá
Eymundsson.
• Ódýrara hjá Subway með girnilegum 10% afslætti af öllu.
• Ódýrari tryggingar hjá Verði: 50% afsláttur af 24 mánaða
tölvutryggingu, 15% afsláttur af ábyrgðar- og
kaskótryggingu ökutækis og margt fleira.
Fjárhagsleg heilsa er betra líf!
D
Y
N
A
M
O
R
E
Y
K
JA
V
ÍK
fyrir námsmenn
Námsmannatilboðin gilda ekki með öðrum tilboðum sem í boði eru hverju sinni
DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur fall-
ist á kröfu manns um að formað-
ur skilanefndar SPRON upplýsi
hann um það fyrir dómi hver seldi
honum stofnfjárbréf í SPRON árið
2005 fyrir 55,5 milljónir króna.
Skömmu eftir að maðurinn
keypti bréfin var sjóðnum breytt í
hlutafélag, bréfin hríðlækkuðu og
maðurinn tapaði stórfé. Eftir að
skilanefnd var sett yfir bankann
fór hann fram á það við nefnd-
ina að fá að vita hver seldi honum
bréfin. Grunaði hann að seljand-
inn hefði verið stjórnarmaður í
sjóðnum og hefði nýtt sér inn-
herjaupplýsingar. Hæstiréttur
hefur nú fallist á það. - sh
Skilanefnd SPRON:
Gert að upplýsa
um seljandann
STJÓRNMÁL „Það er algjörlega
fáheyrt að ráðherra hvetji til
þess að menn sniðgangi lög,“
segir Gunnar Helgi Kristinsson,
prófessor í stjórnmálafræði við
Háskóla Íslands.
Jón Bjarnason, sjávarútvegs-
og iðnaðarráðherra, hefur lýst
þeirri skoðun sinni að styðja
eigi við bak Sementsverksmiðj-
unnar á Akranesi í baráttu gegn
innflutningi. Störf og sparnað-
ur gjaldeyris réttlæti það. Hann
segir jafnframt að samkeppnis-
lög eigi ekki að standa í veginum
fyrir því.
„Jón upplifir þetta sem pólit-
íska spurningu – vernd innlendrar
atvinnustarfsemi, en þá er hann
í raun að lýsa sig andsnúinn því
lagaumhverfi sem við búum við
eftir að við urðum hluti af Evr-
ópska efnahagsvæðinu. Hann gat
auðvitað tekið það upp pólitískt,
en hann getur ekki hvatt til þess
að við brjótum gegn þeim lögum
sem við búum við. Það er mikill
munur á því að vera á móti lögum
og að brjóta þau.“
Gunnar Helgi segir að eflaust
sé hægt að finna dæmi um eitt-
hvað svipað frá fyrri tíð, enda
hafi viðskiptalífið hér á landi
verið mun tengdara stjórnmál-
unum en nú. „En eftir að Ísland
varð hluti af EES, og hér komst á
þolanlegt samkeppnisumhverfi,
höfum við ekki haft neina opin-
bera umræðu af þessu tagi svo
ég viti til.“
- shá
Stjórnmálafræðingur segir Jón Bjarnason hafa brotið blað með ummælum:
Fáheyrð afstaða ráðherra
JÓN
BJARNASON
GUNNAR HELGI
KRISTINSSON
Á að breyta erlendum lánum í
lán í íslenskum krónum?
Já 72,6%
Nei 27,4%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Munt þú sækja einhvers konar
nám eða námskeið í haust?
Segðu skoðun þína á vísir.is
BANKAMÁL Innstæður í bönkum
landsmanna nema nú um 2.000
milljörðum króna. Í maí voru þær
um 1.700 milljarðar en voru um
1.400 milljarðar fyrir hrun.
„Það má lýsa þessu þannig að
bankarnir eru stútfullir af pen-
ingum,“ segir Gylfi Magnússon
viðskiptaráðherra. Ein skýring-
in er að fólk haldi að sér höndum
og sparar meira, að sögn Gylfa.
Einnig geyma erlendir aðilar,
fyrrum eigendur jöklabréfa, fé
hér á landi vegna gjaldeyris-
hafta.
„Óhætt er að hvetja fólk til fjár-
festinga og eyðslu. Sérstaklega ef
það snýst um innlenda vöru, til
dæmis að gera upp húsin sín,“
segir Gylfi.
Pétur Blöndal alþingismað-
ur segir að fjárfestingarkostum
sé haldið inni í bönkunum með
háum vöxtum á innlánum. Vext-
ir á innlánum Seðlabankans eru
9,5 prósent og um leið og Seðla-
bankinn lækkar þá eykst hvat-
inn til þess að eyða og fjárfesta,
segir Pétur.
Til þess að fólk geti byrjað að
fjárfesta verða menn að fá til-
trú á fyrirtækjum landsins, að
mati Péturs en hann hefur lagt
fram frumvarp á þingi um gegn-
sæ hlutafélög. Hækkun innlána
er þó afskaplega góð þróun, að
mati Péturs. „Þessi þjóð hefur
lengi eytt um efni fram að mínu
mati.“
Þegar kreppir að, sérstaklega í
kjölfar bankakreppu líkt og riðið
hefur yfir Ísland, frestar fólk
neyslu og fjárfestingar dragast
hratt saman. Þetta kemur fram
í nýlegri Hagsjá Landsbank-
ans. Segir enn fremur að fólk og
fyrirtæki kjósi fremur að spara
en eyða og því aukist innstæður
hratt.
Gylfi Arnbjörnsson, forseti
ASÍ, segir að ákveðið öryggi sé
í innstæðum eftir að gefin hafi
verið út ríkisábyrgð á þeim eftir
bankahrunið. Telur hann að
heimilin eigi ekki mikið af þess-
um innstæðum, frekar sé um að
ræða lífeyrissjóði og erlenda fjár-
festa sem nýti
sér háa vexti.
„ Þ a ð e r
áhyggjuefni að
það fjármagn
sem til er fari
ekki í fjárfest-
ingar,“ segir
Gylfi. Vextirn-
ir lokki fjár-
festa inn í bank-
ana en á sama
tíma er ekki hægt að lána út, því
enginn vill taka lán.
„Peningamálastefnan á að skila
því að háir vextir haldi pening-
um í landinu en af því þeir eru
svo háir eru þeir bara á banka-
bókunum. Ég fæ ekki séð hvern-
ig bankakerfið getur gengið upp
í þessum aðstæðum,“ segir Gylfi.
vidir@frettabladid.is
Bankarnir eru stút-
fullir af peningum
Innstæður í bönkum hafa aukist frá því fyrir hrun. Viðskiptaráðherra hvetur
fólk til aukinna fjárfestinga. Forseti ASÍ sér ekki hvernig bankakerfið geti geng-
ið upp í þessum aðstæðum. Þingmaður segir hækkun innlána góða þróun.
GYLFI MAGNÚSSON GYLFI
ARNBJÖRNSSON
SEÐLABANKINN Innlánsvextir Seðlabankans eru 9,5 prósent og um leið og bankinn
lækkar þá eykst hvatinn til eyðslu og fjárfestinga, að mati Péturs Blöndal.
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
PÉTUR BLÖNDAL
KJÖRKASSINN