Fréttablaðið - 27.08.2009, Blaðsíða 58
42 27. ágúst 2009 FIMMTUDAGUR
KR-völlur, áhorf.: 1.270
KR ÍBV
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 25–15 (9–5)
Varin skot Hansen 4 – Albert 6
Horn 13–10
Aukaspyrnur fengnar 11–12
Rangstöður 0–1
GRINDAV. 4–5–1
Albert Sævarsson 6
Pétur Runólfsson 7
Eiður Aron Sigurbj. 6
Andri Ólafsson 7
Þórarinn Valdimarss. 6
C. Clements 5
Tony Mawejje 5
(74. Gauti Þorvarðar. -)
Yngvi Borgþórsson 6
Augustine Nsumba 6
(82. Bjarni R. Einarss. -)
Viðar Örn Kjartanss. 5
(74. Eyþór H. Birgiss. -)
*Maður leiksins
KR 4–4–2
Andre Hansen 7
Skúli Jón Friðgeirss. 4
Mark Rutgers 6
Guðm. Reynir Gunn. 7
Gunnar Örn Jónss. 6
(78. Gunnar Krist. -)
Bjarni Guðjónsson 7
Baldur Sigurðsson 7
Óskar Örn Hauksson 6
(86. Ingólfur Sig. -)
*Björgólfur Takef. 8
Guðm. Benediktss. 6
(71. Atli Jóhannsson -)
1-0 Björgólfur Takefusa (68.)
2-0 Eiður Sigurbjörnss., sjálfsm. (76.)
3-0 Ingólfur Sigurðsson (92.)
3-0
Einar Örn Daníelsson (7)
EM karla - B-deild:
Svartfjallaland - Ísland: 102-58
Stig Íslands: Logi Gunnarsson 12, Sigurður Þor-
steinss. 10 (9 frák.), Helgi Magnúss. 10, Magnús
Gunnarss. 8, Jón Arnór Stefánss. 8, Hörður Vil-
hjálmss. 5, Pavel Ermolinskij 3, Jóhann Ólafss. 2.
EM kvenna - B-deild:
Ísland - Írland 77-68
Stig Íslands: Birna Valgarðsdóttir 21(11 fráköst),
Helena Sverrisdóttir 14 (10 stoðs., 7 frák.), Signý
Hermannsdóttir 12, María Ben Erlingsdóttir 12 (7
frák.), Sigrún Ámundad. 8, Kristrún Sigurjónsd. 6,
Hildur Sigurðard. 3, Hafrún Hálfdánard. 1.
Meistaradeild Evrópu:
Olympiakos - Sheriff Tiraspol 1-0
Olympiakos vann samanlagt, 3-0.
APOEL Nikosia - FC Kaupmannahöfn 3-1
APOEL vann samanlagt, 3-2.
Arsenal - Celtic Glasgow 3-1
1-0 Eduardo, víti (28.), 2-0 Emmanuel Eboue
(53.), 3-0 Andrei Arshavin (74.) 3-1 Massimo
Donati (92.). Arsenal vann samanlagt, 5-1.
Stuttgart - Timisoara 0-0
Stuttgart vann samanlagt, 2-0.
Fiorentina - Sporting Lissabon 1-1
Sporting Lissabon komst áfram á fleiri útivallar-
mörkum.
Dregið verður í riðlakeppnina á morgun.
Pepsi-deild karla
STAÐAN
FH 18 14 1 3 49-20 43
KR 18 11 3 4 41-25 36
Fylkir 18 10 3 5 32-21 33
Fram 18 8 4 6 33-26 28
Breiðablik 18 7 4 7 30-30 25
Keflavík 18 6 7 5 26-31 25
Stjarnan 18 7 3 8 37-30 24
Valur 18 7 2 9 20-32 23
Grindavík 17 6 3 8 30-33 21
ÍBV 17 6 2 9 19-29 20
Fjölnir 18 3 4 11 22-38 13
Þróttur 18 3 2 13 20-44 11
ÚRSLIT
Laugardalsvöllur, áhorf.: 618.
Fram Grindavík
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 14–10 (8–7)
Varin skot Hannes 4 – Óskar 4
Horn 10–2
Aukaspyrnur fengnar 12–4
Rangstöður 1–1
GRINDAV. 4–5–1
Óskar Pétursson 5
Ray Jónsson 5
Zoran Stamenic 6
Óli Stefán Flóventss. 6
Jósef Kr. Jósefsson 6
Ben Ryan Long 5
(76. Óli B. Bjarnason -)
Orri Freyr Hjaltalín 6
Þórarinn Kristjánss. 4
(84. Páll Guðm. -)
Jóhann Helgason 6
Scott Ramsay 7
Gilles Mbang Ondo 6
*Maður leiksins
FRAM 4–5–1
Hannes Þór Halld. 5
Daði Guðmundsson 5
Auðun Helgason 7
(90. Hlynur Atli M. -)
Kristján Hauksson 7
Sam Tillen 6
Heiðar Geir Júlíuss. 4
(60. Paul McShane 5)
Ingvar Þór Ólason 4
(71. Joe Tillen -)
*Almarr Ormarss. 8
Halldór H. Jónsson 5
Jón Guðni Fjóluson 7
Hjálmar Þórarinsson 7
1-0 Almarr Ormarsson (13.)
1-1 Orri Freyr Hjaltalín (20.)
1-2 Jóhann Helgason (37.)
1-3 Gilles Ondo, víti (51.)
2-3 Almarr Ormarsson (77.)
3-3 Auðun Helgason (79.)
4-3 Hjálmar Þórarinsson (92.)
4-3
Valgeir Valgeirsson (6)
FÓTBOLTI Íslenska kvennalandsliðið
fékk flottan stuðning úr stúkunni
í leik sínum á móti Frakklandi á
mánudaginn. Meðal áhorfenda
voru hljómsveitarmeðlimir í
Hjaltalín sem hafa þegar haldið
eina af þrennum tónleikum sínum
í tengslum við Evrópumótið. Sig-
ríður Thorlacius, söngkona sveit-
arinnar, er ekki vön því að mæta
á fótboltaleiki en skemmti sér og
öðrum vel meðan á leiknum stóð.
„Við skelltum okkur á leikinn í
gær sem var mjög skemmtilegt.
Við höfum ekki rosalega mikla
reynslu af fótbolta fyrir þetta. Við
Rebekka vorum einmitt að tala um
það að við hefðum aldrei trúað því
að við myndum mæta í landsliðsbol
á fótboltaleik með fána og málaðar
í framan. Við gerðum það samt og
það var ógeðslega gaman,“ segir
Sigríður.
Sigríður segir íslensku stuðn-
ingsmennina hafa tekið vel á móti
þeim í stúkunni. „Við reyndum að
halda uppi stemmningunni ásamt
öðrum og það var mjög auðvelt
með þessu fólki því það var svo
skemmtilegt,“ segir Sigríður.
Hjaltalín hélt flotta tónleika
í Tampere á sunnudagskvöld-
ið og voru þeir Íslendingar sem
fóru á þá mjög ánægðir og lofuðu
frammistöðu bandsins. „Það tókst
mjög vel og kannski vonum fram-
ar. Við vissum ekki neitt og það lá
alltaf fyrir að við yrðum sein. Við
mættum korteri fyrir tónleikana
og hlupum upp á svið með skítugt
hárið og svona. Það voru einhverj-
ir Íslendingar í salnum og eitthvað
af þessum mökum leikmanna sem
við hittum fyrir leikinn í gær.
Annars var vel mætt af Finnum
líka. Þetta heppnaðist mjög vel,“
segir Sigríður. Hjaltalín hélt aðra
tónleika í Lahti í vikunni og endar
síðan með því að spila í Helsinki á
föstudaginn.
Íslenska kvennalandsliðið
mátti þola sárt tap í leiknum gegn
Frökkum og margir leikmenn voru
grátandi í leikslok. „Það var mjög
leiðinlegt að sjá hvað þær voru
niðurbrotnar og ég fann mjög til
með þeim. Þetta verður bara enn
þá skemmtilegra næst og við verð-
um bara að vera með meiri læti,“
segir Sigríður sem ætlar að mæta
ásamt félögum sínum í Hjaltalín á
leikinn á móti Noregi í kvöld. „Við
hættum ekki að styðja þær núna og
sérstaklega ekki þar sem að það er
svo gaman á leikjunum. Við verð-
um kannski bara svona lukkudýr
fyrir íslenska kvennalandsliðið,“
segir Sigríður að lokum. - ooj
Sigríður Thorlacius, söngkona Hjaltalín, skemmti sér konunglega á leiknum gegn Frökkum:
Verð með enn meiri læti á leiknum í kvöld
GÓÐUR STUÐNINGUR Áhorfendur létu vel í sér heyra í Tampere. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR.Ó
FÓTBOLTI Fram vann ótrúlegan 4-
3 sigur á Grindavík á Laugardals-
velli í gær eftir að hafa verið 3-
1 undir þegar stundarfjórðungur
var eftir af leiknum.
Fram var mikið gagnrýnt á síð-
ustu leiktíð fyrir hve leiðinlegan
fótbolta liðið spilaði en nú er öldin
önnur og mikið skorað í leikjum
liðsins.
„Ég velti skemmtanagildinu
ekki mikið fyrir mér. Ég þjálfa
Fram og þegar ég næ úrslitum er
ég ánægður. Þetta er þannig íþrótt
að þegar vel gengur fær maður
prik í kladdann en þegar illa
gengur fær maður spark í rass-
inn,“ sagði glaðbeittur Þorvaldur
Örlygsson eftir leikinn.
Fram hóf leikinn mun betur
en eftir að Grindavík skoraði sitt
fyrsta mark voru gestirnir betri
þar til Fram hóf sinn frábæra
endasprett.
„Við vorum miklu betra liðið í
tuttugu mínútur og spiluðum vel.
Við hefðum samt getað klárað
færin betur í stöðunni 1-0. Svo
eins og gengur og gerist þá gera
menn mistök og það er meira áber-
andi þegar markmenn gera mis-
tök. Svo fáum annað mark á okkur
rétt fyrir hlé sem er að sama skapi
klaufalegt, það að lítill stubbur
geti skallað boltann inn.“
Grindavík komst síðan í 3-1 í
upphafi síðari hálfleiks þegar
liðið fékk víti. „Þetta víti var
erfitt að fá framan í sig, sérstak-
lega í ljósi þess sem Ingvar segir
mér, að þetta hafi ekki verið víti,“
sagði Þorvaldur. „Það var pirr-
andi og því var ennþá sterkara
fyrir strákana að koma til baka.
Þá hefði verið hægt að pirra sig
við dómarann en við gerðum það
ekki. Við skorum svo þegar það
eru fimmtán mínútur eftir en það
má alveg skora á síðustu mínútun-
um eins og þeim fyrstu, við fáum
jafn mikið fyrir það. Menn tala
mikið um karakter en það þarf
einnig kunnáttu og getu.“ - gmi
Þrjú mörk Fram á síðasta stundarfjórðungnum tryggði liðinu þrjú dýrmæt sig gegn Grindavík í gær:
Enn og aftur sigrar Fram á lokasprettinum
HEIÐAR GEIR JÚLÍUSSON
Var í sigurliði Fram í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FÓTBOLTI Margir veðja sjálfsagt á
að leiks KR og ÍBV verði fyrst og
fremst minnst sem leiksins þegar
Ingólfur Sigurðsson skoraði í
sínum fyrsta meistaraflokksleik
á ferlinum. Hann innsiglaði 3-0
sigur KR með marki í uppbótar-
tíma eftir að hafa komið inn á sem
varamaður á 86. mínútu. Ingólfur
er ekki nema sextán ára gamall og
hefur verið orðaður við mörg stór-
lið Evrópu. En hann er ánægður
hjá KR.
„Þetta var frábært og í raun
ólýsanlegt. Ég ætlaði ekki að trúa
því að ég skoraði. Ég hef beðið svo
lengi eftir tækifærinu og svo kom
það loksins,“ sagði Ingólfur eftir
leik en hann hefur margoft þurft
að sitja á varamannabekk KR í
sumar.
Logi Ólafsson, þjálfari KR, sagði
að hann vildi bíða eftir rétta tíma-
punktinum fyrir Ingólf. „Við vild-
um ekki láta hann spila nema að
aðstæður væru réttar fyrir hann.
Það var gaman að sjá hann svo
spila í dag. Hann var mikið með
boltann og skoraði. Ég held að
þetta verði sögulegt mark þegar
fram líða stundir enda góður og
afar efnilegur leikmaður.“
Leikurinn var annars hin besta
skemmtun og mikið fjör á báðum
endum vallarins. Þó svo að ekkert
mark hafi verið skorað í fyrri hálf-
leik mátti oft litlu muna. Sami hátt-
ur var á í síðari hálfleik og hefðu í
raun bæði lið getað skorað fyrsta
markið. En það féll í hlut KR.
„Við vorum ánægðir með seinni
hálfleikinn,“ sagði Logi. „Hugar-
farið var ekki í lagi í fyrri hálfleik
enda er aldrei gott það sem menn
kasta hendinni til af kæruleysi.
Þegar hugarfarið batnaði þá gerði
leikur liðsins það líka. Við tókum
okkur saman í andlitinu og spiluð-
um eins og menn. Þegar það gerð-
ist komu mörkin með.“
Heimir Hallgrímsson, þjálfari
ÍBV, var þrátt fyrir allt nokkuð
sáttur við framlag sinna manna.
„Vissulega töpuðum við leiknum
en mér fannst við eiga ekki minna
í honum en lið KR. Það var sorg-
legt að við vorum ekki búnir að
skora þegar þeir loksins ná að
skora sitt fyrsta mark. Við vild-
um sækja þrjú stig hingað í dag
og tókum ákveðna áhættu í því að
spila í sama stíl og við höfum gert
undanfarið. Við töpuðum á því í
dag en vinnum vonandi næst.“
ÍBV er enn í fallhættu en Heim-
ir segist ekki hafa áhyggjur. „Ekki
á meðan liðið spilar svona – þá
munu skilin stiga sér. Ég er vissu-
lega svekktur þar sem við töpuðum
en ég get ekki gagnrýnt strákana
mína – ég er stoltur af þeim.“
eirikur@frettabladid.is
Ingólfur fékk draumabyrjun
Óhætt er að segja að hinn sextán ára Ingólfur Sigurðsson hafi hafið feril sinn í
meistaraflokki með stæl. Hann skoraði aðeins fáeinum mínútum eftir að hann
kom inn á sem varamaður í liði KR sem vann í gær 3-0 sigur á spræku liði ÍBV.
KOM KR Á BRAGÐIÐ Björgólfur Takefusa skoraði fyrsta mark KR í leiknum. Hér er
Andri Ólafsson, fyrirliði ÍBV, honum til varnar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
KÖRFUBOLTI Birna Valgarðsdóttir
átti sannkallaðan stórleik þegar
Ísland vann góðan sigur á Írlandi,
77-68, í B-deild EM kvenna í
körfubolta á Ásvöllum í gær.
Þetta var fyrsti sigur Íslands í
keppninni í haust og sannarlega
kærkominn. Liðið leikur sinn
lokaleik í riðlinum gegn Svart-
fjallalandi um helgina.
Ísland hafði forystuna allan
leikinn og sagði Henning Henn-
ingsson landsliðsþjálfari að liðið
hefði loksins náð að sýna sitt
rétta andlit.
„Þær spiluðu eins og ég vissi
að þær gætu gert. Við náðum að
halda haus allan tímann og var
það mikilvægt því þessi lið eru
ofsalega fljót að refsa fyrir öll
mistök,“ sagði Henning. „Marg-
ir leikmenn léku vel í kvöld. Hel-
ena [Sverrisdóttir] var ekki heil
heilsu en spilaði engu að síður
mjög vel. Birna var að skila stór-
um tölum en náði þar að auki að
halda stigahæsta leikmanni Íra
í örfáum stigum í leiknum. Hún
átti stjörnuleik.“
Karlaliðið mætti Svartfelling-
um sínum riðli í B-deild EM karla
og tapaði stórt ytra, 102-58. - esá
Ísland í B-deild EM í körfu:
Birna frábær í
góðum sigri
BIRNA VALGARÐSDÓTTIR Átti stórleik
með íslenska liðinu í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON