Fréttablaðið - 27.08.2009, Qupperneq 10
10 27. ágúst 2009 FIMMTUDAGUR
BANDARÍKIN, AP „Mikilvægum
kafla í sögu okkar er lokið,“ sagði
Barack Obama Bandaríkjafor-
seti þegar fréttir bárust af því
að öldungadeildarþingmaður-
inn Edward M. Kennedy væri
látinn.
Hann var fyrst kosinn í öld-
ungadeild Bandaríkjanna í nóv-
ember árið 1962. Hann hafði
því verið þingmaður í heil 47 ár
þegar hann lést á þriðjudag af
völdum krabbameins, sem hann
hafði glímt við í rúmt ár.
„Í fimm áratugi hafa nánast öll
lög, sem sett hafa verið til að efla
borgararéttindi eða bæta heil-
brigðisástand og efnahagslega
velferð bandarísku þjóðarinnar
borið nafn hans og verið afrakst-
urinn af starfi hans,“ sagði
Obama, og dró ekki úr þeirri
aðdáun sem demókratar hafa
á hinum nýlátna flokksbróður
sínum, „frjálslynda ljóninu“ eins
og þeir nefndu hann gjarnan.
Edward Moore Kennedy, jafn-
an nefndur Ted, varð langlíf-
astur Kennedy-bræðranna, sem
voru með valdamestu bræðrum
Bandaríkjanna um það leyti sem
Edward settist fyrst á þing.
Bróðir hans, John F. Kennedy,
var myrtur í nóvember árið 1963
eftir að hafa verið forseti Banda-
ríkjanna í tæp þrjú ár. Þriðji
bróðirinn, Robert F. Kennedy, var
dómsmálaráðherra í ríkisstjórn
bróður síns, en féll einnig fyrir
hendi morðingja sumarið 1968 í
miðri kosningabaráttu til forseta-
embættis.
Kennedy-fjölskyldan var ekki
aðeins áhrifamikil í Bandaríkj-
unum heldur var einkalíf hennar
linnulítið í kastljósi fjölmiðla.
Sjálfur varpaði Edward skugga
á feril sinn, sem hann losnaði
aldrei við, þegar hann varð vald-
ur að dauða vinkonu sinnar síðla
kvölds í júlímánuði árið 1969.
Hann hafði verið að skemmta sér
á Chappaquiddick-eyju með hópi
ungra kvenna sem höfðu aðstoðað
bróður hans í kosningabaráttunni
árið áður. Einni þeirra, Mary Jo
Kopeche, bauð hann far heim með
sér, en sú ökuferð endaði úti í sjó
með þeim afleiðingum að hún
lést. Kennedy fór af vettvangi án
þess að tilkynna slysið, en baðst
síðar afsökunar á því.
Kjósendur létu þó ekki þetta
atvik stöðva sig í að kjósa hann
áfram á þing, en þegar hann
hugðist bjóða sig fram sem for-
setaefni demókrata áratug síðar
hafði Jimmy Carter betur.
Stuðningur hans við framboð
Baracks Obama á síðasta ári
virðist þó hafa ráðið miklu um
að Obama varð forsetaefni demó-
krata, og vann síðan sigur þegar
að kosningum kom.
gudsteinn@frettabladid.is
HUGRAKKUR MÁVUR Ferðalangur
þessi sat á bekk við höfnina í Sydney
í Ástralíu að borða nestið sitt þegar
hugrakkur mávur stakk sér niður og
stal matarbita. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
MENNTUN Samanlagður fjöldi
kennsludaga og prófadaga í
framhaldsskólum landsins var
að meðaltali 174,7 dagar á síð-
asta skólaári. Að meðaltali fóru
25 dagar í próf og námsmat.
Þetta kemur fram í tölum Hag-
stofu Íslands.
Fjöldi kennslu- og prófadaga
var nánast sá sami á síðasta
kennsluári og árinu á undan.
Meðalfjöldi vinnudaga kenn-
ara var 181,3 dagur og fækkaði
um tæplega einn dag. Í kjara-
samningum er gert ráð fyrir
175 kennslu- og prófadögum og
fjórum vinnudögum utan þess.
- þeb
Tölur um framhaldsskóla:
Skólarnir starfa
í 174 daga á ári
ÁSTRALÍA, AP Kengúrur og valla -
bíur eru helsta ógnin við bílstjóra
í dreifbýli Ástralíu, samkvæmt
nýrri rannsókn. Þar voru teknar
saman upplýsingar frá 1996 til
2005 um árekstra á vegum úti í
Ástralíu, þar sem dýr komu við
sögu.
Rannsóknin leiddi í ljós að þótt
vissulega hafi árekstrar orðið af
völdum hunda, nautgripa, emúa
og vamba séu kengúran, þjóðar-
táknið skoppandi, og vallabí-
an, smærra afbrigði kengúru,
skæðastar í þessum efnum. Dýr
komu við sögu í 5.097 bílslys-
um og óhöppum á tímabilinu
sem um ræðir. Í 40 prósentum
allra tilfella var um kengúrur
eða valla bíur að ræða, þar af í 60
prósentum dauðaslysa.
- bs
Mannskætt þjóðartákn Ástralíu:
Kengúrur valda
flestum slysum
KENGÚRA Helsta ógnin sem steðjar að
áströlskum ökumönnum uppi í sveit.
NORDICPHOTOS/AFP
SAMGÖNGUMÁL Strætókort fyrir
framhalds- og háskólanema
verða ekki ókeypis í vetur eins
og síðustu tvo vetur.
Sveitarfélögin á höfuðborgar-
svæðinu hafa hins vegar ákveð-
ið að niðurgreiða hvert kort um
helming, og munu kortin því
kosta fimmtán þúsund krónur.
Ríkisstjórnin samþykkti í síð-
ustu viku að hefja gerð áætlun-
ar um sjálfbærar samgöngur.
Þá kom fram að bæði umhverf-
isráðherra og samgönguráð-
herra vilji kanna mögulega
aðkomu ríkisins að verkefninu
um frítt í strætó. Stúdentaráð
Háskóla Íslands á nú í viðræð-
um við umhverfisráðherra um
málið.
- þeb
Sveitarfélög niðurgreiða:
Ekki frítt fyrir
háskólanema í
strætó í vetur
VEGAGERÐ Sveitarstjórnir á Norð-
austurlandi þrýsta nú á sam-
gönguyfirvöld að klára að malbika
vegarkaflann um Hófaskarðsleið.
Verklok áttu að vera í september
en mikið hefur gengið á og mun
framkvæmdin líklega frestast um
að minnsta kosti eitt ár.
„Þetta eru búin að vera mikil
vonbrigði af því að vegakerfið
hér er vægt til orða tekið mjög
slæmt,“ segir Siggeir Stefánsson,
oddviti Langanesbyggðar, þar sem
Þórshöfn er meðal byggða.
Segir hann þennan vegakafla
vera mikilvæga samgönguúrbót
þar sem þetta sé síðasta vegakafl-
inn frá Norðausturlandi til Reykja-
víkur sem er ómalbikaður.
Um er að ræða 56 km veg á milli
Öxarfjarðar og Þistilfjarðar, með
tengingu til Raufarhafnar. Styr
hefur verið um tveggja kílómetra
kafla af leiðinni. Vegagerðin á enn
eftir að malbika um 20 kílómetra.
Upphaflega ætlaði Vegagerðin að
leggja veginn í gegnum bæ sem
þeir ætluðu að taka eignarnámi.
Bændurnir mótmæltu og unnu
málið í Hæstarétti. Þá ætlaði Vega-
gerðin að fara í gegnum jörð sem
var að mestu í eigu ríkisins. Það
vildu eigendur ekki. Lagði Vega-
gerðin þá til að fara málamiðlun-
arleið. Skipulagsstofnun taldi að
það þyrfti að fara í umhverfis-
mat. Vegagerðin hefur kært það
þar sem það yrði alltof tímafrekt.
Úrskurðar er að vænta í byrjun
október. - vsp
Sveitarstjórnir þrýsta á samgönguyfirvöld að klára malbikun um Hófaskarðsleið:
Yrði mikilvæg samgönguúrbót
RAUFARHÖFN Vegurinn, sem verður
56 kílómetra langur, mun vera með
tengingu til Raufarhafnar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Á SPJALLI VIÐ FORSETANN Barack Obama og Edward Kennedy. NORDICPHOTOS/AFP
SÖGUFRÆGIR BRÆÐUR Þeir Robert,
Edward og John Kennedy fyrir utan
Hvíta húsið í ágúst árið 1963, þegar
Robert var dómsmálaráðherra, Edward
öldungadeildarþingmaður og John
forseti. NORDICPHOTOS/AFP
Þingmaður í
nær hálfa öld
Ted Kennedy var einn áhrifaríkasti demókratinn í
Washington. Barack Obama segir að með láti hans
sé mikilvægum kafla í sögu Bandaríkjanna lokið.