Fréttablaðið - 27.08.2009, Síða 34
Stórhöfða 17 | Sími 577 5555 | www.veggsport.is
Skokk – spinning – tækjasalur 2 sinnum í viku
Áhersla : Þol – Styrkur – Liðleiki – Mikil brennsla
Vikulegar mælingar og ráðleggingar um mataræði
Tímar: kl.6:30 | 7:45 | 9:30
Upplýsingar og skráning í síma 577-5555
HÖRKU
ÁTAKSNÁMSKEIÐ
Hörku átaksnámskeið er að hefjast í Veggsport
5 vikna námskeið - 5 sinnum í viku
Hentar konum jafnt sem körlum
Kennari er Nadja
27. ÁGÚST 2009 FIMMTUDAGUR4 ● jazz
BIRNA ÞÓRÐARDÓTTIR DJASS
UNNANDI OG LEIÐSÖGUMAÐUR
„Það er stundum þannig
að mann langar til að sjá
margt en veit ekki hvort af
verður. Þegar ég lít yfir dag-
skrána þá sé ég að á laugar-
daginn er niðri á Nasa bæði
norski trompet leikarinn, Arve
Henrikssen, hann er mjög sér-
stæður og svo er Jóel Páls á
eftir. Svo gæti ég vel hugs-
að mér að hlusta á Jazz-quiz-
ið á mánudaginn í Djúpinu.
Vernharður Linnet er með
það og hann er nú þokkalega
skemmtilegur. Það er líka mjög
indælt að setjast niður í há-
degi á sunnudegi og hlusta á
léttan djass eins og á Dill Rest-
aurant og Basil og Lime.“
SUNNA GUNNLAUGSDÓTTIR
DJASSPÍANISTI
„Ég ætla í Norræna húsið á
föstudaginn, þá er Árni Heiðar
Karlsson píanisti og austur rískt
píanótríó líka að spila. Ég ætla
líka að hlusta á útsendinguna
hjá Ríkisútvarpinu, klukkan
16.13 sama dag. Svo er það
Arve Henriksen, ég reikna
með að sjá hann á laugar dags-
kvöldið. Svo er ég náttúrulega
sjálf að spila í Norræna húsinu
á sunnudeginum í hópi glæsi-
legra píanista. Þetta er svona
það sem er alveg ákveðið.“
KRISTJANA STEFÁNSDÓTTIR
SÖNGKONA
„Ég er búin að sjá mjög margt
og spila sjálf. Af því sem eftir
er langar mig að sjá Árna
Heiðar í Norræna húsinu á
föstudeginum og Varp hjá Jóel
Pálssyni á Nasa á laugardeg-
inum og Jagúar. Svo er það
Píanóið einsamalt! á sunnu-
deginum, í Norræna húsinu.
Svo langar mig á Rósenberg
þar sem Stórsveit Reykjavíkur
leikur tónlist eftir Toshiko Ak-
yoshi. Úrslit eru í Jazz-quiz á
þriðjudeginum. Ég fer í loka-
partíið að sjálfsögðu. Ég er að
gleyma Bossanova og Salsa-
ballinu á föstudeginum. Það
er möst.“
HVAÐ ÆTLAR ÞÚ AÐ SJÁ?
Listasafn Reykjavíkur er samstarfsaðili
Jazzhátíðar í Reykjavík og tekur virkan þátt
í dagskrá hátíðarinnar með sýningu, fyrir-
lestrum, tónleikum og tangóballi.
Til að mynda stendur sýningin Jazzóð-
ur yfir í austursal Kjarvalsstaða en henni
lýkur á mánudaginn. Verkin á sýningunni
eru virðingarvottur listamanna til tónlistar-
gyðjunnar.
Í dag klukkan 18, leikur Pétur Grétarsson
tóndæmi í Hafnarhúsinu og verður með fyrir-
lestur á ensku um sögu djassins á Íslandi.
Fyrirlesturinn er ókeypis og öllum opinn.
Á Kjarvalsstöðum klukkan 20 í kvöld verð-
ur haldið tangóball. Bandoneon-leikarinn
Olivier Manoury þenur argentínsku teygju-
skjóðuna við undirleik fótafimra tangó-
aðdáenda og safnar saman íslenskum vina-
hóp í allsherjardjamm. Að auki taka saxófón-
leikarinn Óskar Guðjónsson og brasilíska
söngvaskáldið Ife Tolentino lagið. Miðaverð
er 2.000 krónur og er óvæntri uppá komu
lofað.
Á laugardaginn verða tónleikar Leifs
Gunnarssonar kontrabassaleikara og hljóm-
sveitar á Kjarvalsstöðum. Auk þess spilar
hljómsveitin Skver þar sem gítarleikarinn
Steinar Guðjónsson leikur eigin tónlist með
hljómsveitinni. Tónleikarnir hefjast klukkan
15 og er aðgangseyrir 1.500 krónur.
Tangóball á Kjarvalsstöðum í kvöld
Olivier Manoury spilar á tangó-
balli á Kjarvalsstöðum í kvöld.