Fréttablaðið - 27.08.2009, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 27.08.2009, Blaðsíða 38
 27. ÁGÚST 2009 FIMMTUDAGUR8 ● fréttablaðið ● gallabuxur Thunder Stærðir: 28-40 Þvottur: margir þvottar í boði Snið: Meðalhátt mitti, lausar um læri, beinar niður. Herrasnið Tornado Stærðir 28-40 Þvottar: margir þvottar í boði Snið: Lágt mitti, þröngar um læri. Beinar niður. Herrasnið Twister Stærðir: 28-36 Þvottur: margir þvottar í boði Snið: Lágt mitti, þröngar um læri og legg. Herrasnið Space Stærðir: 26-36 Þvottur: tveir litir Snið: hátt mitti, þröngar um læri, þröngar niður. Dömusnið KYNNING Blend gallabuxur komu á íslenskan markað fyrir um tíu árum og hafa fengið góðar viðtökur hjá íslensk- um neytendum af öllum stærðum og gerðum. Þær þykja stællegar og í farar- broddi á hverjum árstíma þegar tískusveiflur láta á sér kræla. „Gallabuxur eru alltaf í tísku og þá sérstaklega núna,“ segir Unnur Erlendsdóttir, verslun- arstjóri hjá versluninni Blend í Smáralind. „Við erum með mjög fjölbreytt úrval í verslunum okkar fyrir mismunandi týpur, og á viðráðanlegu verði mundi ég segja.“ Að sögn Unnar eru niður- þröngar gallabuxur mjög vin- sælar hjá kvenþjóðinni nú um stundir og einnig gallabuxna- leggings. „Hjá strákunum fer þetta meira eftir týpunni,“ segir Unnur, „sumir vilja hafa þær niðurþröngar á meðan aðrir vilja hafa þær víðari.“ Unni sýnist sem svo að nú sé meira og minna allt í tísku, nema ef til vill útvíðar buxur. En þó eru aðrar áherslur en undanfar- in ár. „Fyrir tveimur árum voru dökkar sléttar gallabuxur meira í tísku, en í dag eru þær meira að lýsast og meira um notað „look“ en áður,“ segir hún, „Núna mega þær vera rifnar eins og var fyrir fimm árum. Þetta fer rosalega mikið í hringi.“ Blaðamaður spyr hvort hægt sé að kaupa forrifnar buxur í útibúum Blend. Unnur segir svo vera og með vetrinum verði jafn- vel meira úrval af rifnum buxum hjá sér. Unnur segir að gallabuxur henti við öll tækifæri, bæði fín og hversdagsleg. „Þú getur klætt þig fínt í gallabuxur og háa hæla en svo getur maður líka búið sig í skólann og verið í peysu og strigaskóm.“ Vilji einhver athuga stíl, verð og gæði Blend galla- buxna þá fást þær í Smáralind, Kringlunni og á Hafnargötunni í Keflavík. Tískan fer í hringi „Gallabuxur eru alltaf í tísku og þá sérstaklega núna,“ segir Unnur Erlendsdóttir, verslunarstjóri Blend í Smáralind. FRÉTTABLAIÐ/ARNÞÓR Uppruna gallabuxnaefnisins er talið hægt að rekja til tveggja staða í heiminum þar sem það varð til án nokkurrar vitneskju hins aðilans. Annars vegar er það franski bærinn Nîmes og hins vegar Indland. Á svipuð- um tíma, á endurreisnartímabil- inu, voru fyrstu gallabuxurnar búnar til á Norður-Ítalíu og voru framleiddar í þó nokkru magni. Meðal fyrstu viðskiptavina voru hermenn í ítalska sjóhernum og hafnarstarfsmenn borgarinnar Genúa, en gallaefnið var fyrir valinu vegna þess hve auðvelt var að bretta gallabuxur upp þegar vaða þurfti í bleytu auk þess sem hægt var að vera í þeim þótt þær blotnuðu. - jma Gallabuxur dúkkuðu fyrst upp á endurreisnartímabilinu. Hafnarverkamenn fyrstir í gallabuxum Gulrótarsniðnar eru „skinny jeans“ stundum kallaðar á íslensku. Niðurmjóar gallabuxur eða „skinny jeans“ hafa verið eitt það heitasta í gallabuxnageiranum síðustu árin. Annað algengt heiti yfir þessar vinsælu gallabuxur er „gulrótarsniðnar“ gallabuxur. Fyrstu merki sniðsins má sjá í kringum 1950 þegar stjörnur eins og Marilyn Monroe og Roy Rogers klædd- ust buxum með þessu sniði. Í kr ingum 1960 voru það svo Bítlarn- ir og Rolling Stones sem gáfu gulrótar- sniðinu innspýt- ingu og hljóm- sveitir eins og Sex Pistols tóku buxurn- ar undir sinn væng síðar meir. - jma Rokkarar vilja gulrótarsnið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.