Fréttablaðið - 27.08.2009, Síða 64

Fréttablaðið - 27.08.2009, Síða 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans BAKÞANKAR Gerðar Kristnýjar Í dag er fimmtudagurinn 27. ágúst 2009, 239. dagur ársins. 5.55 13.29 21.01 5.33 13.14 20.52 Í fyrrahaust fór sjónvarpsfrétta-maður í Griffil og talaði við móður sem fannst dýrt að útbúa sex ára barnið sitt fyrir skól- ann. Blýantar voru dýrir, skóla- taskan líka og yddararnir keyrðu um þverbak. Barnið stóð þarna stóreygt hjá og ég velti því fyrir mér hvernig því liði undir þess- um lestri. Það er eflaust gott að börn viti að hlutirnir kosti sitt en ekki get ég ímyndað mér að nein- um fyndist gaman að sjá mömmu sína kaupa skóladótið með lunta og birtast síðan í sjónvarpinu í sama hamnum um kvöldið. Það á, jú, að vera gaman að byrja í skólanum. NÚ HAUSTAR á ný og undan- farna daga hefur gengið á með fréttum af háu skólabókaverði í fjölmiðlum. Eflaust er meiri ástæða fyrir slíkri umfjöllun nú en í fyrra, enda miklar furður gerst í efnahagslífi þjóðarinnar síðan þá. Að þessu sinni hafa fréttirnar líka komið góðu til leiðar því í kjölfarið var söfnunum hleypt af stað til að aðstoða efnalítið skólafólk. EITT ráðið sem ríkisstjórnin brá á eftir hrunið var að hvetja atvinnu- lausa til að fara í nám til að auðga líf sitt. Það er, jú, ástæða fyrir því að sagt er að mennt sé máttur og aðgerðarleysi getur haft skelfileg- ar afleiðingar á sálarlífið. Í hol- skeflu allra fréttanna um verð á námsbókum gleymist hvað fæst til baka, hvað stendur í þessum bókum og öll dýrindin sem hægt er að skrifa með öllum blýöntun- um. Mér finnst dapurlegt að börn læri heima hjá sér og af fjölmiðl- um að skólaganga sé bara rándýrt vesen og velti því fyrir mér hvers konar námsmenn þau verði. Það er líka ástæða fyrir því að skipta þarf reglulega um skólabækur. UPPLÝSINGAR úreltast og fræðingar komast sífellt betur að því hvernig auðveldast er að fá námsmenn til að temja sér þekk- ingu. Landabréfabókin sem mér var gefin í átta ára bekk lýsir að minnsta kosti annars konar heimi en blasir við nú og frönsku- bækurnar úr menntaskóla þættu eflaust hálfkjánalegar, enda gekk þar fyrir öllu að kenna okkur unglingunum að segjast gjarnan vilja pakka af Gauloise-sígarett- um. Þjóð sem orðin er heimsfræg fyrir heimsku ætti nú að fara að líta á nám með jákvæðari hætti en fréttir síðustu daga hafa sýnt. Síðan mættu yfirvöld reyna að finna leiðir til að aðstoða náms- menn í vanda svo þeir þurfi ekki að treysta á tombólur nágranna sinna. Námsgleði óskast TB W A\ RE YK JA VÍ K \ SÍ A www.ellingsen.is SKÓLADAGAR Í ELLINGSEN MIKIÐ ÚRVAL AF SKÓLATÖSKUM, SKÓM, ÚLPUM OG ÖÐRUM HLÍFÐARFATNAÐI. ALLT HÁGÆÐAVÖRUR Á GÓÐU VERÐI. COLUMBIA ÚLPA stærðir 6-14 ára stráka COLUMBIA ÚLPA stærðir 6-14 ára stráka COLUMBIA ÚLPA stærðir 6-14 ára stráka og stelpu BERGANS SKÓLATASKA m. styrktu baki, yfirhlíf m. endurskini fylgir BERGANS SKÓLATASKA m. styrktu baki, yfirhlíf m. endurskini fylgir BERGANS SKÓLATASKA m. styrktu baki, yfirhlíf m. endurskini fylgir TATONKA SKÓLATASKA fáanleg í mismunandi litum COLUMBIA SKÓR barnastærðir COLUMBIA SKÓR barnastærðir Verð 4.900 kr. Verð 8.900 kr. Verð 8.900 kr. Verð 3.500 kr.Verð 7.900 kr. Verð 5.900 kr. Verð 9.900 kr. Verð 6.900 kr. Verð 8.900 kr. REYKJAVÍK AKUREYRI Meðallestur á tölublað, höfuðborgarsvæðið, 18 – 49 ára. Könnun Capacent í maí 2009 – júlí 2009. Hvar er þín auglýsing? 35% 72%

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.