Neisti - 20.05.1984, Síða 2

Neisti - 20.05.1984, Síða 2
Markmið Fylkingarinnar og Fjórða Alþjóðasambandsins FJÓRÐA ALÞJÓÐASAMBANDIÐ starfar að því að samhæfa og breiða út meðal samtaka sinna í einstökum löndum þá reynslu og lærdóma sem baráttusamtök verkalýðs og sósíalista búa yfir og ganga í gegnum. Þetta alþjóðastarf styrkir samtök og hreyfingar með einstökum þjóðum. Útgáfudagur 20. maí 1984 Áskriftarverö: 1/2 ár kr. 400 FJÓRÐA ALÞJÓÐASAMBANDIÐ styður ávallt og berst fyrir málstað verkalýðsstéttarinnar og annarra undirokaðra hópa hvar sem er í heimin- um. Fjórða Alþjóðasambandið reynir alltaf eftir bestu getu að vinna að því að breiða út virkan og siðferðilegan stuðning við frelsisbaráttu alþýðu gegn heimsvaldastefnu jafnt og samstöðu með sonum og dætrum alþýðustétt- anna sem verða fyrir ofsóknum valdhafa í einstökum löndum. FJÓRÐA ALÞJÓÐASAMBANDIÐ starfar hvarvetna að myndun bar- áttuflokka verkalýðs. Fjórða Alþjóðasambandið stefnir að sósíalískri um- sköpun samfélagsins. Það berst fyrir því að verkalýðsstéttin verði ráðandi stétt í samfélaginu með því að atvinnutækin verði sameign vinnandi fólks, og framleiðslustarfsemi þjóðfélagsins verði stjómað með lýðræöislegri áætlanagerð. FJÓRÐA ALÞJÓÐASAMBANDIÐ byggir á því að verkefni verkalýðs- baráttunnar eru mismunandi eftir því hvar þjóðfélögin eru á vegi stödd í efnahags- og stjórnmálaþróun. t hinum þróuðu iðnríkjum auðvaldsins eru bein úrræði sósíalismans nauðsynleg til að leysa kreppu samfélagsins. í hinum vanþróuðu löndum á suðurhveii jarðar er nauðsynlegt að berjast fyrir þjóðlegu sjálfstæði, umbótum í landbúnaðarmálum og lýðræðislegum umbótum sem leiða síðan til sósíalískrar nýsköpunar samfélagsins. Vanda- mál vanþróunarinnar verða aðeins leyst undir forystu ríkisstjórnar verka- lýðs og bænda í andstöðu við iðnjöfra og stórjarðeigendur. í þeim löndum þar sem auðvaldsskipulag hefur verið afnumið en úrkynjað embættis- mannabákn einokar pólitísk völd, eins og í Sovétríkjunum og Kína, er nauðsynlegt að steypa þessu skrifstofuveldi með pólitískri byltingu undir forystu verkalýðsins og koma á fót lýðræðislegu stjómarfari sósíalismans. VIÐ HÖFUM verið að rukka undanfarið, og jafnframt forvitnast um það, hvað áskrifendum finnst um breytingam- ar á blaðinu. Útlietbreytingin hefur fallið í góðan jarðveg, blaðið þykir iæsilegra og eigulegra en fyrr. Það hefur einnig mælst vel fyrir að birta lengri greinar um einstök mál samhliða styttri frásögn- um. En eins og einn áskrifandi benti á, skiptir innihaldið öllu máli, og annar áskrifandi kallaði sérstaklega eftir meiri upplýsingum til nota í hversdagsumræðum. Er við höfum lokið rukkuninni og þarmeð rætt við velflesta áskrifendur munum við ræða allar þær ábendingar sem við höfum fengið og nota til að bæta blaðið. Tveir áskrifendur sögðu upp blaðinu af þeim sem við töluðum við og voru hundóánægðir. Hinir voru langtum fleiri, sem þökkuðu okkur fyrir breytingarnar áður en okkur tókst að stynja upp spurningunum. Við þökkum kærlega fyrir viðtök- urnar. Þær eru mikil hvatning. -/as FYLKINGIN starfar að því að byggður verði upp baráttuflokkur verkalýðs- ins sem getur haft forystu fyrir verkalýðsstéttinni og vinnandi alþýðufólki í sósíalískri umsköpun þjóðfélagsins á íslandi. Raunverulegur forystuflokk- ur verkalýðsins verður aðeins til í baráttu verkalýðsins og myndaður af verkafólki sjálfu. Fylkingin vinnur að þessari flokksbyggingu meðal verka- fólks og í verkalýðsfélögunum. Starf hennar innan Alþýðubandalagsins þjónar einnig þessum tilgangi. FYLKINGIN er andvíg því að borgaralegu verkalýðsflokkamir, Al- þýðubandalagið og Alþýðuflokkurinn gangi til samstarfs við auðvaldsöfl- in í ríkisstjórnum. Það hefur ávallt í för með sér að verkalýðshreyfingin er drepin í dróma og verslað er með lífshagsmunamál verkafólks. FYLKINGIN berst þess vegna gegn því skrifstofuveldi sem ríkir í verka- lýðshreyfingunni og fyrir lýðræði og virkni hinna almennu félaga í verka- lýðssamtökunum. Það eru aðeins lifandi og virk verkalýðssamtök sem geta varist sókn auðvaldsins og staðið fyrir nýsköpun samfélagsins í framtíðinni. FYLKINGIN stefnir að því að fjöldasamtök verkalýðsins setji á fót sína eigin ríkisstjóm sem framkvæmir efnahagslegar, félagslegar og pólitískar ráðstafanir sem leiða okkur út úr auðvaldskreppu og gera okkur fært að stjórna samfélagi okkar lýðræðislega í hag vinnandi fólks. Efni þessa blaðs: Friðarpáskar............... Sókn semur ................ Lágmarkslaun .............. Framtíðin ................. Ríkisverksmiðjur........... Ríkisfjármál .............. Suður-Ameríka.............. Bretland................... Friðarhreyfing ............ Filipseyjar................ El Salvador ............... Nicaragua ................. Pólland ................... Grenada.................... Bandaríkin................. 4 5 6 7 8 9 14 22 27 33 34 35 36 37 38 er málgagn Fylkingar byltingarsinnaðra kommúnista. Ritstjóri og ábyrgðarmaður Neista er Ámi Sverrisson. Ritnefnd Neista er framkvæmdanefnd miðstjómar FBK. Aðsetur Neista er að Laugavegi 53A, s. 17513. Neisti leitast við að gera skil öllum meginverkefnum stéttabaráttunnar, hér á landi og alþjóðlega. Neisti er málsvari verkalýðsstéttarinnar, og styður jafnframt baráttu allra kúgaðra minnihlutahópa, þjóðarbrota og kynþátta. Neisti flytur fréttir og fréttaskýringar um bar- áttu verkalýðsins og undirokaðra hópa hérog annars- staðar, og flytur og kynnir stefnu Fylkingarinnar í öll- um efnum. 2

x

Neisti

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neisti
https://timarit.is/publication/343

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.