Neisti - 20.05.1984, Blaðsíða 10

Neisti - 20.05.1984, Blaðsíða 10
Ríkisf jármál og sósíalismi--- Hvar á að spara? Burt með bruðlið Aðskilnað ríkis og kirkju Engin framlög til Nato Hvernig má auka tekjurnar? Hærri skatta á hátekjur Aukna tolla á lúxusinn aukin viðurlög við skattsvikum Eftir Má Guðmundsson 4. maí. Nú er ríkisstjómin loksins búin að leggja fram tillögur í þinginu varðandi gatið svokallaða. Stein- grímur ætti því að geta hætt að láta sér leiðast, en hann lýsti því yfir ekki alls fyrir löngu að hann væri búinn að fá dauðleið á gat- inu. En þótt ríkisstjóminni hafi nú tekist að „loka“ gatinu með því að ákveða að taka erlend lán, er ekki þar með sagt að sú kreppa sem ríkisfjármálin em nú í hafi verið leyst. Staðreyndin er sú að árið í ár er annað árið í röð, þar sem mikill halli verður á ríkis- sjóði. Þessi þróun er bæði afleið- ing af samdrætti þjóðarfram- leiðslu, samdráttaraðgerðum rík- isstjómarinnar og þeirrar stefnu hennar að létta sköttum af fyrir- tækjum og þeim hátekjumönnum sem em í aðstöðu til að festa fé sitt með arðbæmm hætti. En þessi þróun er líka alþjóðleg. Um allan heim hefur efnahagskreppan skap- að mikinn halla á ríkissjóði og í mörgum löndum eru við völd ríkisstjórnir sem vinna markvisst að því að létta sköttum af hátekjumönnum á sama tíma og vel- ferðarþjónusta ríkisins er skorin niður. í eftirfarandi grein verður fjallað um ríkisútgjöldin sem slík og afstöðu sósíal- ista í þeim málum en látð liggja milli hluta spumingar varðandi það hvers eðlis ríkið er og hver ræður því. Ríkisútgjöld Borgaraleg öfl hafa einkum bent á tvö vandamál á sviði ríkisfjármála í þróuðu auðvaldsríkjunum. í fyrsta lagi hefur verið bent á það, að ríkisútgjöld hafi á undanfömum ámm og áratugum vaxið í hlutfalli við þjóðarframleiðslu. Sem dæmi um þetta má nefna, að heildar- tekjur hins opinbera, þ.e. bæði ríkis og sveitarfélaga í löndum Efnahags- og þróunarstofnunarinnar (OECD) í París, en öll þróuðu auðvaldsríkin em aðilar að henni, jókst úr um 29% af þjóðar- framleiðslu á ámnum upp úr 1960 í um 37% af þjóðarframleiðslu í kringum 1980.í öðm lagi hefur verið nefnt, að á undanfömum ámm hafa útgjöld ríkisins víða aukist langt umfram tekjur, sem hefur birst í vaxandi hallarekstri þess. A síðasta ársfundi Seðlabankans sagði Jóhannes Nordal seðlabankastjóri m.a. um þetta vandamál: „Fyrra vandamálið (þ.e. tilhneiging til aukins halla - innskot MG), sem kalla mætti sjálfheldu velferðarríkisins, er orðið eitt meginviðfangsefnið í efna- hagsstjóm flestra lýðræðisríkja, og ætti nú að vera flestum kunnugt. Það felst annars vegar í því, að ríkisvaldið og aðrir opinberir aðilar hafa tekið á sig vaxandi skuldbindingar til hagsbóta fyrir almenning og til þess að verja ein- staklinga, landshluta og jafnvel fyrir- tæki fyrir áföllum. Með ókeypis þjón- ustu, styrkjum og lánafyrirgreiðslu leggjast þannig síauknar kröfur á ríkis- sjóð, sem mönnum finnast þeir eiga rétt 1) Heimild: OECD: Economic Outlook, desember 1983 til að gera og bera litla ábyrgð á að greiða. Jafnframt em menn ekki að sama skapi fúsir til þess að sætta sig við síhækkandi skattbyrði til þess að standa undir auknum útgjöldum ríkisins, auk þess sem mörg dæmi sýna, að of þungar skattklyfjar geta oft á tíðum haft nei- kvæð áhrif á framleiðslustarfsemina og þannig aukið á vandann í stað þess að leysa hann. Afleiðingin hefur því verið tilhneiging til hallarekstrar, sem fjár- magnaður hefur verið með sívaxandi lántökum.“ í þessum tilvitnuðu orðum koma fram þær meginhugmyndir sem borgaraleg öfl hafa um þetta ,,vandamál“, sem sé að útþensla ríkisins þrengi að einka- geiranum og draga úr framleiðslu hans, og að ekki sé hægt að skattleggja til að standa undir vaxandi velferðarútgjöld- um. Sams konar hugmyndir hafa komið fram erlendis, t.d. meðal stuðnings- manna Reagans í Bandaríkjunum og Thatchers í Bretlandi. Þegar vaxandi umsvif ríkisins eru skoðuð og áhrif þeirra á efnahagsh'fið, sérstaklega gróða einkafyrirtækjanna, verður að hafa í huga að ríkisútgjöld eru ákaflega mismunandi. Það eru aðeins samneysla og opinberar fjárfestingar sem koma til endanlegrar ráðstöfunar hjá ríkinu (sjá landabréf), en tilfærslur renna aðeins í gegnum ríkið og er ráð- stafað af einkafyrirtækjum eða einstakl- ingum. í rauninni eru það tilfærslumar sem hafa aukist mest. Frá 1961 til 1981 jókst samneysla í OECD ríkjunum úr tæpum 16% af þjóðarframleiðslu í tæp- lega 18%. Á sama tíma jukust tilfærslur úr tæpum 11% af þjóðarframleiðslu í 10

x

Neisti

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Neisti
https://timarit.is/publication/343

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.