Neisti - 20.05.1984, Síða 38

Neisti - 20.05.1984, Síða 38
Fjórða Alþjóðasambandið Sósíalíski verkamannaflokkurinn í Bandaríkjunum býður fram í forsetakosningunum í haust Gagnrýnir útvatnaða umbótastefnu Jacksons. Mondale, Jackson, Hart. Bandarísku forsetakosningamar eru jafnan f.o.f. átök milli kosninga- véla stóru auðvaldsflokkanna tveggja. I Bandaríkjunum erenginn stór verkalýðsflokkur og forystu- menn verkalýðshreyfingarinnar hafa að þessu sinni veðjað á Walter Mondale, fyrrum varaforseta Cart- ers, sem þykir Iíklegastur til að verða útnefndur sem forsetaefni demókrata. Annar af þeim, sem nú reynir að hljóta útnefningu demókrataflokksins er blökkumaðurinn Jesse Jackson, sem hefur í baráttu sinni reynt að höfða til minnihlutahópa, og einnig tekist að afla sér stuðnings fjölmargra vinstrisinna. Nær öll samtök og rit, sem nefna sig sósíalísk eða kommúnísk hafa lýst stuðningi sínum við Jackson. Sósíalíski Verkamannaflokkurinn, sem styður fjórða Alþjóðasambandið en getur ekki átt aðild að því vegna afturhaldssamrar löggjafar í Banda- ríkjunum, hefur þó ekki skipað sér í sveit Jacksonsinna. Hann býður fram þau Mel Mason og Andreu Gonzales á grundvelli sósíah'skrar stefnuskrár. Flokkurinn stendur þar með einn utan kosningavéla borgaraflokkanna, og flytur bandarísku verkafólki boðskap byltingarínnar í þessu öflugasta heims- valdaríki veraldar. Verkalýðs- og bændastjórn Kosningaherferð Mason og Gon- zales byggir á áróðri fyrir stéttarlegu sjálfstæði verkalýðsins, nauðsyn að- gerða gegn kreppupólitík auðvalds- flokkanna og alþjóðlegri samstöðu verkalýðsins gegn heimsvaldastefn- unni. Bandaríska verkalýðsstéttin, sem gegnir lykilhlutverki í stéttaátökunum í heiminum, þarf að byggja upp sína eigin forystusveit, flokk, sem getur leitt verkalýðsbaráttuna. Baráttan verður að miða að því að kollvarpa auðvaldsskipulaginu og að myndun verkalýðs og bændastjómar. Slíkan flokk er ekki hægt að byggja upp nema í ósættanlegri andstöðu við atvinnu- rekendur, flokka þeirra og ríkisstjóm þeirra. Pennan boðskap flytja þau Mason og Gonzales á fundum víðsveg- ar um Bandaríkin. Það er nauðsynlegt að fólk geri sér grein fyrir eðli Demókrataflokksins, sem eins og Repúblikanaflokkurinn er fjárhagslega háður örfáum fjölskyld- um og rekur pólitík þeirra. Demó- krataflokkurinn er f.o.f. valkostur borgarastéttarinnar, segja þau Mason og Gonzales. Jackson gagnrýndur Sósíahski Verkamannaflokkurinn álítur Jackson-framboðið ekki vera valkost fyrir verkafólk. í grein sem einn af forystumönnum flokksins, Doug Jenness, ritaði í málgagn flokks- ins, Militant, segir hann: „Það leikur enginn vafi á því, að framboð Jackson hefur stuðlað að miklum umræðum í svarta samfélaginu og meðal áhuga- fólks um stjómmál um þver og endi- löng Bandaríkin. Og það væri heimskulegt að taka ekki þátt í þessum umræðum. Þær veita sósíalískum verkamönnum kærkomið tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum á fram- færi.“ „Það er ekkert skrítið,“ segir Jenness, ,,að Jackson skuli taka þátt í forkosningum demókrata. Það er fylh- lega samkvæmt umbótasinnuðum við- horfum hans, sem draga kapítalismann ekki í efa. Hann styður gmndvallar- atriðin í utanríkisstefnu Bandaríkj- anna. Hvað efnahagsmálin varðar, þá leggur Jackson áherslu á það, að bandarísk fyrirtæki verði samkeppnis- hæf á heimsmarkaðinum, þ.e. græði meira. í stað þess að hvetja bandaríska og japanska verkamenn til sameigin- legrar baráttu gegn óvini beggja, auð- valdinu í þessum löndum, bergmálar hann and-japanskan áróður atvinnu- rekenda.“ Flestir straumar á vinstrivæng bandarískra stjómmála hafa kosið að láta afstöðu Jacksons liggja í þagnar- gildi. „Það er tilhneiging til þess, að blása út minniháttar umbótatillögur Jacksons, en þegja um afturstæðari g jafnvel afturhaldssöm sjónarmið hans,“ segir Jenness. Með því að elta Jackson, er meirihluti vinstrimanna að dylja raunverulegt eðli demókrata og repúblikana, og vinna gegn því, að mótuð verði sjálfstæð verkalýðsstefna. Framboð Jackson og barátta hans fyrir auknum áhrifum svartra innan demó- krataflokksins mun ekki hjálpa blökkumönnum til að rjúfa tengslin við auðvaldsflokkana. Stuðningur vinstrisinna við Jackson hjálpar ekki þeim baráttumönnum, sem leita að póhtískum skilningi á verkefnum vinstrihreyfingarinnar, verkalýðs- hreyfingarinnar og hreyfinga minni- hlutahópa í Bandaríkjunum. -/GG.

x

Neisti

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neisti
https://timarit.is/publication/343

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.