Andvari - 01.01.1906, Side 100
94 Dr. Valtýr og embættisgjöldin.
gjöld skölans nema þær 400 kr., sem jafngilda leigu-
lausum bússtað rektors og áður er á vikið. Doktor-
inn fer þvi hjer enn með rangt mál. (sbr. íirri grein
nifna 15. og I7.bls.).
Urn eftirláúnin játar doktorinn nú, að sjer hafi
oftalist um c. (5000 kr. (rjettara væri c. 7500 kr.),
enda gat hann ekki annað. Er þá ekki vert að fást
um það framar.
Satt er það, að dr. V. víkur á einum stað í
hinni firri grein sinni mjög lauslega að því, að nokk-
ur sparnaður á eftirlaunum muni hljótast af hinum
níju eftirlaunalögum. Enn hann minnist hvergi einu
orði á, að eftirlaunabirðin muni lækka við fráfall
þeirra embættismanna, sem komust á éftirlaun við
stjórnarskrárbreitinguna. Það er því ekki ofsagt hjá
mjer, að »hann liafi gengið fram hjá þessu þegjandi
— móti betri vitund«.
í hinni firri grein minni átaldi jeg það, að dokt-
orinn skildi telja með launabirði landsmanna þau
laun, sem Landsbankinn og Búnaðarljelag íslands
greiðir starfsmönnum sínum. Nú í svari sínu neitar
hann því að vísu ekki, að þessar uppliæðir sjeu
landssjóði og launabirði landsmanna óviðkomandi.
Enn hann segir, að jeg liaíi talið Ðönum til embættis-
kostnaðar »laun ráðanauta viðvíkjandi íiskiveiðum
og búnaði«. Það fer vel á dr. V., eða bitt heldur,
að fást um þetta! Hann getur ekki um það, að jeg
tek það beinlínis fram um alla starfsmenn, og þá
auðvitað líka um þessa ráðanauta, að jeg taki þá
með, ekki af þvi, að jeg álíti það rjett í sjálfu sjer,
heldur að eins af því, að jeg gekk að því visu, að
doklorinn hefði talið þá með hjá Dönum eigi síður
enn hjá oss, og vildi ekki væna hann óráðvendni.
Og auk þess er alt öðru máli að gegna um þessa
ráðanauta hjá Dönum enn um starfsmenn Lands-