Spegillinn - 01.04.1951, Blaðsíða 23

Spegillinn - 01.04.1951, Blaðsíða 23
S-P-E □ I L L I N N 59 Bær og ríki halda leiðinni í Hveradali opinni. ann, sem pantaði flöskurnar, því að þær voru pantaðar. Og hann með mér niður á stöð og heimtar sínar flöskur. Þarna verða þeir að láta þær af hendi með tölu með 300 krónunum og ökuskírteininu og kosningarrétti og kjörgengi og minnt- ust ekki orði á það, hvort ég fengi að verða forseti lýðveldis- ins. En þá. var mínum manni farið að hitna í hamsi, svo að ég ber í borðið og heimta 100 krónur fyrir mig og aðrar fyrir forstjórann. Það væri það minnsta í skaðabætur fyrir at- vinnutjón og óþægindi. Og þeir verða að opna skápinn og stinga að okkur einum bláum, sinn hvorum. Og það var fátt um kveðjur í það sinn. — En hafði þessi forstjóri ráð á að kaupa þessar tíu flösk- ur? spurði ég. — Nei, biddu fyrir þér, hann lét fyrirtækið borga og fór á hausinn, heiðarlega og mannlega. En fyrir 100 krónurnar keypti hann hlutabréf í öðru og varð þar svo forstjóri. Það er sko hægt að komast áfram á íslandi, einkum þegar löggan styrkir mann. — Jæja, sagði ég. — Þú hefur þá lent í ýmsu og vonandi passar þú þig næst. — Næst? Nei, það er sko ekki hægt að sanna neitt með lík- um. Því að það eru allar líkur á að löggurnar komi í Mánu- dagsblaðinu með mynd, ef þær fer að kitla eitthvað í fing- urna hjá okkur, því að þær verða sko að sanna með líkum en ekki við, og það tekst þeim ekki, skal ég segja þér, nema þær geri olckur fyrst að líkum. Ég skal segja þér sögu um það. Einu sinni vorum við allir grannlausir, lítið að gera og sumir að spila Olsen-Olsen inni á stöð. Kemur þá ekki lögga inn á stöðina og hafði kíkt í skottið á einum bilnum og séð þar eina svarta. Við heyrum að hann fer að þrefa við afgreiðslumann- inn, að hann hafi fundið flösku í stöðvarbíl. — Nú, ætli bílstjórinn hafi ekki átt að fara með hana heim til einhvers. Og afgreiðslumaðurinn verður svo náfölur og titrandi. Löggan var einn af þeim harðsoðnu köllum, sérðu. — Ekki er hann á leiðinni með flösku til eins eða neins, ef hann situr inni á stöð, segir helvítis beinið, sem kom að þefa. — Ég veit ekki um neitt, segir mannauminginn. — Okkar stöð hefur bannað öllum sínum bílstjórum að geyma vín í bíl- um sínum. — Flaskan segir til sín, segir þá sá með hnappana. — Það er bezt að tala við þrjótinn. — Já, en hvaða bíll er það? spurði afgreiðslumaðurinn og var eins og á glóandi rist. — Ég tók nú ekki númerið, en það er sá þriðji hægra meg- in í röðinni. Ég leit í hann af tilviljun — og það eru sterkar líkur fyrir ólöglegri sölu áfengis. Og hver veit nema þeir séu fleiri. — Við skulum þá sjá, hver á hann, sagði manngarmurinn. — Auðvitað fær hann ekki oftar að aka við okkar stöð. Svo fóru þeir út að rannsaka málið. Þegar þeir komu út sást enginn bíll við stöðina. Enginn okkar hafði sagt neitt, en við fórum allir út bakdyramegin — og allir höfðu víst þurft að fá sér túr. — En hafa ekki komið óeinkennisbúnir lögregluþjónar og spurt eftir flösku til að leita fyrir sér? — Jú, einu sinni komu tveir seint um kvöld til kollega
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Spegillinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.