Spegillinn - 01.04.1951, Qupperneq 28

Spegillinn - 01.04.1951, Qupperneq 28
1 64 SPEGILLINN Sagan hefst með því, að Jón Jónsson frá Koti, sonur Jóns eldra, Jónssonar, bónda í Koti, kallaður Nonni eða Nonni litli heima fyrir, var kominn til höfuðstaðarins til þess að út- vega föður sínum leyfi til að byggja íbúðarhús. Gamli bær- inn í Koti var orðinn svo ógnar hrörlegur og hélt hvorki vatni né vindi lengur. Nonni litli byrjaði náttúrlega á því að hafa tal af þingmanninum sínum, sem var forstjóri í hjáverkum og auk þess fulltrúi, ráðunautur og meðnefndarmaður í sex nefndum, líka í hjáverkum, því að auðvitað var hann aðal- lega þingmaður. Þingmaðurinn varhinn altilegasti við Nonna litla, enda orðlagður fyrir lítillætið og alúðina, sem hann sýndi atkvæðunum sínum. Hann sagði alltaf Jón minn eða Jón minn góður við piltinn, og atkvæðið var svo dæmalaust hrært af kumpánlegheitunum. En þingmenn væru ekki þing- menn, ef þeir kynnu ekki að tala við atkvæðin sín. „Jahá, Jón minn góður, svo þið ætlið að fara að byggja þarna í Koti. Það er nú ekkert grín að standa í byggingum í árferðinu því arna“, sagði þingmaðurinn. En Nonni litli gaf dauðann og djöfulinn í árferðið og sagði sem var, að fólk yrði náttúrlega að hafa vatnshellt þak yfir höfuðið í slæmu árferði ekki síður en góðu, og lét jafnvel á sér skilja, að hann vænti þess fastlega, að þingmaðurinn yrði Kotsatkvæðun- um innan handar við að útvega leyfið. Og þingmaðurinn sá, að þetta var lauk- rétt hjá Nonna litla og sagði: „Já, auð- vitað, Jón minn, auð- vitað geri ég það, sem ég get, en þú þarft að tala við Ný- bygginganefndina, - hún hefur mest með þetta að gera“. Síðan kvöddust þeir með virktum og þingmaðurinn klapp- aði á öxlina á atkvæð- inu sínu að skilnaði og sagði: „Já, ég skal svo sjá til, hvað ég get gert, Jón minn góð- ur“. Svo fór Nonni litli að leita uppi Nýbygginga- nefndina. Hann stoppaði alla karlmenn, sem hann mætti, tók ofan og sagði: „Góðan daginn, herra minn. Ekki vænti ég, að þér getið sagt mér, hvar Nýbygginganefndin er til húsa?“ En menn hristu bara höfuðin og sögðu, að það væri nú ekki heiglum hent að þekkja eina nefndina frá annarri hér í bæ. Loks hitti Nonni litli þó mann, sem vissi hvar nefndin var og bauðst til að rölta með honum þangað. „Svo þú ætlar að fara að kvabba á Nýbygginga- nefndinni, karlinn?“ seg- ir fylgdarmaðurinn. Jú, Nonni litli hélt nú það, og það mjög mikið. „Þú ert svo fjandi drýldinn, lasm. Áttu kannski eitthvað undir þér?“ sagði fylgdarmaðurinn. „Undir mér eða undir mér ekki — ég þarf að fá leyfi“, sagði Nonni litli. „Heyrðu, lasm“, sagði hinn og lækkaði röddina, „ertu í Mannvirðingaflokknum ? Ef þú ert ekki í Mannvirðinga- flokknum, þá færðu aldrei leyfið“. „Aldrei skal ég í Mannvirðingaflokkinn", sagði Nonni litli svo hátt, að tveir herramenn, sem voru á gangi þarna, hrukku í kút. „Hver andsk......, lasm. Þetta var löggan“, sagði fylgd- armaðurinn. „Það er nefnilega bannað með lögum að gera henni hverft við“. „Eru engin liðamót á þeim?“ spurði Nonni litli og benti á löggurnar tvær. „Eru hendurnar á þeim bundnar fyrir aft- an bakið?“ En fylgdarmaðurinn sagði, að þetta væri bara hið sér-

x

Spegillinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.