Spegillinn - 01.04.1951, Side 40
76
SPEGILLINN
dómara að láta taka úr sér þindina, svo að þeir geti hlaupið
þindarlaust. í sambandi við dómara ætla ég að segja ykkur
sögu.
Einhverju sinni skoraði Sánkti Pétur á sinn óæðri and-
stæðing, djöfulinn, í millilandakeppni milli Himnaríkis og
Helvítis.
— Ég skil ekkert í þér, Pétur, að stinga upp á þessu, því
að þeim leik taparðu.
— Bíddu bara og sjáðu, sagði Pétur. — Ég get nefnilega
sagt þér, að hjá mér hafa lent allir beztu knattspyrnumenn-
irnir.
— Þetta hef ég nú heyrt fyrr, sagði myrkrahöfðinginn —
en hver heldurðu að hafi dómarana?
Knattspyrnan er vinsælt sport, og eins og nærri má geta
þykir ungum, nýgiftum konum leiðinlegt að vera einar og
mannlausar heima á sunnudögum, þegar maðurinn segist
fara að horfa á einhvern knattleikinn. Oss finnst þetta í
hæsta máta einkennilegt, því í fyrsta lagi er andlit á fallegri
ungri konu meira aðlaðandi en skítugur leðurknöttur hopp-
andi aftur og fram um völlinn, a. m. k. finnst manni það um
konur annarra.
Nema hvað ein unga konan sagði við mann sinn á slíkri
stund, er hann rauk út úr dyrunum að horfa á kappleik:
— Þú hugsar ekki Um annað en fótbolta og aftur fótbolta.
Ég er viss um, að þú manst ekki einu sinni hvenær við gift-
umst.
— Jú, það man ég alltaf, heillin mín, svaraði maðurinn
brosandí. Það var daginn, sem Fram vann Val með 2 gegn 0.
Einu sinni átti maður úr Víking að taka vítispyrnu. Það
var eina vonin eftir að geta fengið jafnan leik. En auðvitað
sparkaði hann fram hjá markinu. Eftir leikinn gekk hann
til formannsins og sagði við hann, að hann gæti sparkað
sjálfum sér fyrir þennan klaufaskap.
— Nei, láttu mig heldur gera það, sagði formaðurinn.
— Ég er viss um, að þú hittir ekki.
f>, Eiginmaður, sem var mun hugulsamari en sá áðurnefndi,
- bauð konu sinni á knattspyrnukappleik. En konan lét í Ijós
við eiginmann sinn, að henni þætti ámóta skemmtilegt að
standa upp á endann og glápa á boltann þjóta sitt og hvað
um vöilinn eins og að standa í stórþvotti. Við það væri þó
hægt að einbeita sér.
— En þú verður þó að viðurkenna, sagði maðurinn henn-
ar, sem satt að segja átti bágt með að gefa konunni viðeig-
andi svar fyrir svo átakanlegt skilningsleysi, — þú verður
þó að viðurkenna, að það er ágætur hraði í leiknum.
— Er það? spurði konan mildari, — þá verða þeir kann-
ske búnir hálftíma fyrr?
Og svo var það sendillinn, sem bað húsbónda sinn um frí
til að fylgja ömmu sinni til grafar. En húsbóndinn hafði les-
ið vel blöðin fyrir viðtalstímann og mundi eftir að Valur og
K.R. ætluðu að heyja kappleik þá um daginn.
— Ætli verði þar ekki á annað þúsund manns, sagði for-
stjórinn og glotti lymskulega.
— Je, það er ég viss um, sagði strákur, — amma mín átti
nú aldrei miklum vinsældum að fagna.
Og svo eru það frjálsar íþróttir, sem verða að teljast til
sports, því að þar er mest sportið í að gera það, sem menn
langar mest til. Allir þekkja sigurvegarana okkar, eins og
Gunnar Huseby, Clausensbræður, Torfa Bryngeirsson, Finn-
björn, Skúla o. fl. í frjálsum íþróttum er ekki annar galdur-
inn en að vinna þann, sem maður keppir við. Við frjálsar
íþróttir er farið eftir stigatölu. Fyrir okkur íslendinga hef-
ur sýnt sig að finnska stigataflan er bezt, af því að hún er
hæst. Frjálsar íþróttir stafa frá strákapörum skólaáranna,
hver fljótastur er t. d. að klifra yfir brjósthæðarháa girð-
ingu eða hærri og koma aftur yfir hana með fallegasta blóm-
ið í garðinum. Til undirbúnings kastíþrótta verða þeir oftast
snjallastir, sem geta kastað snjókúlu eða blekbyttu inn um
glugga á efstu hæð í námunda við skólann. Þeir lélegri kom-
ast aldrei lengra en að kasta blekbyttu á húsagaflana, sem
kostar eigendurna nokkur þúsund krónur að bæta úr. En allt
verða borgararnir að gera fyrir hina uppvaxandi æsku. —
Skólastjóri einn, sem hafði aðeins takmarkaðan skilning á
hinni nýju sálfræði, kallaði á fjóra náunga inn til sín, auð-
vitað höfðu þeir allir verið að æfa sig í frjálsum íþróttum.
— Hvað gerðuð þið af ykkur? spurði hann byrstur þann
fyrsta.
— Ég tók blóm úr garði, kveikti svo í gömlum vinnuskúr
og kastaði steini í sjóinn.
— En þú? spurði skólastjórinn og snéri sér að þeim næsta.
— Ég sleit upp blómin í garði, kveikti í gömlum skúr og
kastaði steini í sjóinn.
— Nú, þetta síðasta getur ekki talizt refsivort, sagði skóla-
stjórinn. — En þú?
Sá þriðji hafði gert það sama og hinir.
— Og hvað gerðir þú svo? spurði skólastjórinn þann fjórða.
— Ég stal líka blómum og kveikti með hinum í timbur-
skúrnum.
— Nú, sagði skólastjórinn. — Kastaðir þú ekki líka steini
í sjóinn?
— Nei, því að ég er Steinn sjálfur.
Séra X,
óháður.
HNEFLEIKAMAÐUR
einn franskur, að nafni Pierre Motané, sem vann meistaratitil í létt-
vigt, rétt fyrir skömmu, hefur nú ráðizt söngvari hjá skemmtiflo’dd
einum, sem heldur sjómannadagskabaretta víðsvegar um Frakkla.id.
Til að byrja með þótti hann ekki syngja rétt vel, en snögglega brá sv'
við, að hann fékk hina ákjósanlegustu dóma í blöðunum. En ráðningin
á gátunni var sú, að í millitíðinni hafði hann slegið nokkra krítíki ;;a
flata og kalda. Er hér gott dæmi um heppilega samvinnu iþrótta >g
lista.
ÞÝZICUR KLERKUR,
sem er fulltrúi utanríkismáladeildar hinanar þýzku evangolisku
kirkju" (og vondandi lýðræðissinnaður), er væntnnlegur hingað í
sumar lesum vér í Yísi, eftir heimild frá Ástvaldi. Á hann að flytja
hér fyrirlestra, en jafnframt að athuga statusinn hjá þýzku vinnu-
konunum hér, og messa dálítið yfir þeim. í sömu grein er þess getið,
að hinn frægi klerkur og kafbátsforingi, Niemöller, muni cf til vill
koma hér við. Þó er þn‘5 í nokkurri óvissu, svo að nokkur von er til
þess, að vér sleppum við hann.
DANAKÓNGUR,
Friðrik, hinn níundi með því nafni, átti afmælisdag hinn 11. marz
sl., og stjórnaði af því tilefni hljómsveitinni sinni af plötu í ríkisút-
varpi voru. Þarna voru tekin fyrir hin erfiðustu viðfangsefni, eftir
danska höfunda, en enginn sá (þ. e. heyrði) jöfri bregða. Mun það þó
sízt ofmælt, er dr. Páll ísólfsson sagði í formálsorðum, að sizt sé minni
vandi að stjórna hljómsveit en ríki, og tökum vér undir það, að svo
óþæg getur hún verið. Finnst oss alveg einsætt — eftir þetta sýnis-
horn — að sinfóníuhljómsveit vor kalsi það við Hans Hátign að taka
í sig, ef hann skyldi koma hér við í væntanlegri heimsókn sinni til græn-
lands í sumar.