Spegillinn - 01.04.1951, Blaðsíða 47

Spegillinn - 01.04.1951, Blaðsíða 47
SPEGILLINN 79 Ummæli áfengisvarnanefndar: Sþróttafélögin hafa tekið sér Bessa * leyfi íil að selja vín á samkomum (ALf>-bl) (og er reyndar enn) Hallbjörg, dóttir Högna Hallssonar, er allan sinn búskap bjó í Dalverpi vestra. Högni var ekki við efni, en margt var þó vel um karlinn og honum trúað fyrir ýmsum vandamálum sveitarinnar, sem aðrir hliðruðu sér hjá. Ætt Hallbjargar er mestmegnis bændaætt, en þó bregð- ur fyrir ýmsum harðduglegum sjósóknurum og hákarlafor- mönnum eins og Jóni Jónssyni í Skorunesi, sem víða er get- ið í gömlum heimildum, en mágur Hákonar, langafa Hall- bjargar, var sonur fósturdóttur hans. Hallbjörg gekk örlítið i kvennaskóla í ungdæmi sínu, en þeir voru enn sjaldgæfari þá en nú og ekki jafn fullkomnir, en þá var ekki gert ráð fyrir að hver unglingur tæki miðskólapróf eða landspróf, því þau voru óþekkt og engin æskulýðshöll fram undan. Samt kom þessi litli lærdómur þessari ungu og framsæknu sveita- stúlku að miklu haldi, því síðan hefur hún unnið ótrauðlega að aukinni menningu á öllum sviðum. Nokkru síðar gekk hún að eiga Hálfdán, ekki beinlínis sér til menningarauka, held- ur öllu fremur til fjár, þótt hann væri fátækur þá, en hún sá hvað í piltinum bjó og það reyndist rétt. Svo var það hinn 8. marz árið 1926 að saga þessi gerðist. Mánaðardagurinn er áreiðanlega rétt hermdur, en vegna þess að ég hef ekki almanak frá nefndu ári og nenni ekki upp á safn, þá er ég ekki viss um vikudaginn. Nokkru eftir síð- degiskaffið, sem Hallbjörg drakk ein, þar sem maður hennar gat ekki farið heim til að drekka með henni vegna fjarlægð- ar og vöntunar á samgöngutækjum, fann hún til ógleði og töluverðra óþæginda innvortis. Var hún orðin nokkru verri, þegar Hálfdán kom heim, og auk líkamlegrar vanlíðunar hvorki honum né öðrum sinnandi, því þessi lasleiki gat ekki hent hana á óheppilegri tíma. Fyrir því voru þær ástæður, að þetta kvöld var hún boðin til konsúlsfrúarinnar, svo þetta hefur líklega verið laugardagskvöld, en með þessu heilsufari voru engin líkindi til þess, að af því gæti orðið. Svo var nefni- lega mál með vexti, að konsúlsfrúna áleit Hallbjörg svo hátt setta, að slík aðstaða í þjóðfélaginu væri nokkuð fyrir hana sjálfa að keppa að. Hún vann því markvisst í þá átt, að kynn- ast henni og öðrum, er næstum því stóðu henni jafnfætis að mannvirðingum. Vegna góðra sambanda og lægni hafði henni nú lánazt að fá inntöku í kvenfélagið og þetta kvöld voru fé- lagskonur boðnar í samkvæmi til konsúlsfrúarinnar, sem nú mundi vera kallað partí. En þennan lasleika, sem Hallbjörg áleit vera sitt mikla óhapp, eins og sakir stóðu, skoðaði hún í allt öðru ljósi næsta dag, því þá kom konsúlsfrúin sjálf í heimsókn til hennar, að vita um líðanina. Varð þetta upphaf vináttu milli þeirra, sem ekki hefur rofnað síðan, þótt nú sé í sumu skipt um hlutverk, en það er önnur saga, og lýkur hér að segja frá þessum las- leika Hallbjargar fyrir aldarfjórðungi síðan. Svo sem eins og í eftirmála mætti bæta því við, að eftir þetta vildi Hallbjörg ekki flytja úr þessu hverfi, sem þó var ekki sérlega huggulegt á þeim tíma, og þegar velmegunin kom og bærinn stækkaði og Gróðamelurinn var lagður, þá lét hún Hálfdán kaupa lóðina nr. 13, sem var þeirra víðlend- ust, og byggja þar hið alkunna hús með öllum hugsanlegum þægindum og menningarbrag. Bob á beygjunni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Spegillinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.