Stúdentablaðið - 01.12.1959, Blaðsíða 41
STUDENTABLAÐ
41
Frá deildarfélögum
Frá félagi guðfræðinema
Skyggnzt í granna garð
Þegar söfnuðirnir í Noregi koma saman til
guðsþjónustu, þá hafa þeir langa og marg-
þætta kirkjubæn að lokinni ræðunni. Eitt af
því, sem þá er beðið um, er, að Guð gefi kirkju
sinni þjóna, sem bæði boða rétt og breyta vel.
Þessa bæn biður söfnuðurinn sameiginlega í
hverri guðsþjónustu, og hefur svo lengi verið.
Þetta hefur ekki einungis verið varabæn, því
að söfnuðirnir hafa sýnt það í verki, að þeir
eru fúsir til að gera sitt til þess, að Guð geti
bænheyrt þá.
Um síðustu aldamót náði nýguðfræðin eða
„frjálslynda“ guðfræðin sterkari tökum við há-
skólann í Osló. Tóku þá margir að verða ugg-
andi um að prestarnir myndu víkja af grund-
velli kirkjunnar og fara að boða annarlegar
kenningar. Miklar deilur stóðu um játningar
kirkjunnar og margar höfuðkenningar hennar,
sem söfnuðirnir byggja trú sína á. Brátt dró til
tíðinda í þessum deilum, er prófessorsembætti
losnaði við guðfræðideildina. Dráttur varð á
að veita embættið, en að lokum samþykkti
meirihluti ríkisstjórnarinnar að veita nýguð-
fræðingi það, þrátt fyrir mótmæli kirkjumála-
ráðherra og margra annarra. Þetta varð til þess,
að bæði kirkjumálaráðherra og einn prófessor-
inn við guðfræðideildina sögðu af sér embætt-
um, mótmælaskyni. Prófessor þessi hét Sigurd
Odland og var þá talinn einn lærðasti guðfræð-
ingur á Norðurlöndum.
Dr. Odland tók nú að vinna að því, að söfn-
uðirnir stofnuðu sjálfir háskóla til að mennta
presta sína á grundvelli Guðs orðs og játninga
evangelisk-lúthersku kirkjunnar.
Hann ferðaðist um landið og ræddi þessa
hugmynd við söfnuðina.
Þetta varð til þess, að Safnaðarháskólinn
(Det teologiske Menighetsfaktultet, skammstað-
að M. F.) var stofnaður og tók til starfa haust-
ið 1908.
Litið um öxl.
Nú hefur M. F. starfað í 50 ár og þá er hægt
að líta yfir farinn veg. Það var ekki stórfeng-
leg byrjun. Aðeins 8 stúdentar og 3 kennarar,
þar á meðal prófessor Odland, hófu starfið við
ófullnægjandi skilyrði. Starfið byrjaði smátt,
en í vondjarfri trú og það er með nokkurri
hreykni, að vinir M. F. líta yfir hinn sýnilega
árangur.
Frá upphafi hafa útskrifazt 1200 guðfræð-
ingar frá skólanum, og er það um það bil %
allra núlifandi guðfræðikandidata í Noregi inn-
an við sjötugt. Þeir eru flestir prestar, kenn-
arar við æðri skóla, kristniboðar eða starfs
menn kristilegra hreyfinga.
Það hefur stundum verið reynt að gera lítið
úr fræðilegum iðkunum við M. F., þessum ,,al-
þýðuháskóla“, en reynslan hefur sýnt, að þaðan
koma nemendur, sem eru fullkomlega sam-
bærilegir við aðra guðfræðinga. 19 af 30 nú-
lifandi guðfræðidoktorum frá Oslóarháskóla
hafa hlotið menntun sína við M. F., og halda
tveir þeirra nú fyrirlestra við guðfræðideild
háskólans. Auk þess hafa 4 nemendur frá M. F.
doktorsgráðu frá heimspekideildinni, og sá
fimmti mun hljóta hana innan skamms. M. T.
veitir efnilegum kandidötum góða styrki til
framhaldsnáms.
Skólinn hefur 8 fasta kennara. Þeir hafa