Stúdentablaðið - 01.12.1959, Blaðsíða 51
STÚDENTABLAÐ
51
in voru gerð að kennslunni í deildinni. Það sem
einkum virðist mæla með slíkri ráðstöfun, er
m. a. sú staðreynd, að töluverður fjöldi kandi-
data heldur utan að prófi loknu til að nema
þar ,til viðbótar þeirri ágætu menntun, sem
þeir fá hér, almenn fræði í grein sinni, sem
vanzalaust mætti kenna hér. Til þessa fer tölu-
verður erlendur gjaldeyrir, sem er dýrmætur
á „síðustu og verstu tímum“. I öðru lagi má
benda á, að vafalaust eru þeir margir, sem ekki
eiga þess kost, af margvíslegum ástæðum, að
fara utan, en mundu vilja hagnýta sér frekari
kennslu hér heima. Veigamestu ástæðuna vildi
ég samt mega telja að það á að vera metnaður
okkar, og kappsmál, að ungum Islendingum sé
veitt jafn fullkomin menntun og nokkur kostur
er, í sínu eigin landi. Það er þáttur í okkar
sjálfstæði.
Vitanlega hefur nám erlendis marga kosti
fyrir stúdenta í jafn alþjóðlegri fræðigrein og
hagfræðin er, enda er engin ástæða að leggja
það með öllu niður. Frekari sérhæfingar mætti
jafnt sem áður afla erlendis. Má í þessu sam-
handi minna á þann möguleika, ef hagfræði-
stúdentar vilja víkka sjónhring sinn og mennt-
un, að ráða sig í vist hjá erlendum fyrirtækjum
og stofnunum um nokkurra mánaða skeið. Það
ætti að vera auðvelt fyrir milligöngu Alþjóða-
sambands hagfræði- og viðskiptafræðinema og
fleiri aðila, sem þar koma til greina, ef dálítil
vinna væri lögð af mörkurn til að koma því
sambandi á í fyrsta sinn.
Danir og Norðmenn hafa um nokkurt skeið
hoðið stúdentum sínum upp á hagfræði- og
stjórnfræði, þótt nokkuð sýnist það með hvor-
um hætti. Danir kenna slíkt bæði í Kaupmanna-
höfn og Árósum. I Arósum er náminu skipt í
tvo hluta. Að fyrri hluta loknum verða stúdent-
arnir að gera upp við sig, hvort þeir vilja velja
sér reksturshagfræði eða stjórnfræði að sér-
grein. Á báðum þessum stöðum eru tölfræði-
legar rannsóknarstofnanir, þar sem stúdentar
eru skyldir að vinna að rannsóknum um ákveðið
tímabil.
Þetta er orðið lengra spjall en ætlað var í
upphafi þótt aðeins hafi verið drepið á fá atriði.
Hins vegar er gaman að hafa þessi atriði í huga,
þegar við minnumst senn tuttugu ára afmælis
deildarinnar, þegar við lítum á hvað vel hefur
verið gert og hvaða hugsanleg verkefni bíða á
næstunni.
Athugasemd
Vegna greinar dr. Jóhannesar Nordals, „Út af eyði-
mörkinni", og framkomu meirihluta ritnefndar varð-
andi þau skrif doktorsins, verður ekki hjá því komizt,
að gera eftirfarandi athugasemd:
I ritnefnd náðist samkomulag um það, að pólitískum
deilumálum skyldu ekki gerð skil í 1. des.-blaðinu.
Nokkrum dögum eftir að höfuðefni blaðsins hafði verið
ákveðið, báru tveir nefndarmenn fram tillögu um, að
dr. Jóhannesi Nordal yrði falið að rita um efnahags-
mál í blaðið. Við mótmæltum harðlega þessari sam-
komulagsriftun og vorum því algerlega andvígir, að
pólitísk deilumál eins og efnahagsmálin yrðu vakin
upp í blaðinu. Saga þeirrar deilu, sem út af þessu reis,
verður ekki rakin hér. Meirihluti ritnefndar sagðist
treysta dr. Jóhannesi Nordal að fjalla hlutlaust um
efnahagsmálin og væri því engin hætta á því, að póli-
tík kæmist inn í blaðið. Einnig kvaðst meirihlutinn hafa
skýrt dr. Jóhannesi frá þeirri stefnu ritnefndar, að úti-
loka pólitísk deilumál úr blaðinu.
Þegar allar greinar höfðu borizt í blaðið, kom í ljós,
að allir greinarhöfundar höfðu virt stefnu ritnefndar,
nema einn •— dr. Jóhannes Nordal.
Grein dr. Jóhannesar er mjög pólitísk og hlutdræg,
eins og allir geta séð, og á því að okkar áliti ekkert
erindi í þetta blað, sem samkvæmt samróma áliti rit-
nefndar á að vera helgað sjálfstæðismálum þjóðarinnar
og baráttumálum stúdenta, án þess að taka þátt í hinni
pólitísku togstreitu þjóðmálabaráttunnar. Skal hér
drepið á örfá atriði 'til að undirstrika þetta.
Órökstutt nöldur doktorsins í garð vinstri stjórnar-
innar er í hæsta máta ósamboðið manni í jafn virðu-
legu embætti og dr. Jóhannes Nordal hefur. Fullyrð-
ingar hans eru ekkert annað en hlutdrækni í þágu
andstöðuflokks vinstri stjórnarinnar.
Sérhverjum manni, sem kynnir sér efnahagsmála-
stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins og boðskap dr. Jóhann-
esar Nordals um nauðsynlegustu aðgerðirnar í efna-
hagsmálum — gengisfellingu, afnám verðlagseftirlits
o. fl., hlýtur að vera ljóst, að hér er um að ræða ná-
kvæmlega samrýmda stefnu, sem er til alls annars
fallin en að bæta hag almennings. Aróður dr. Jóhann-
esar í þessum efnum er ekkert annað en hlutdrægni
í þágu Sjálfstæðisflokksins.
Geigvænlegasta atriðið í grein dr. Jóhannesar er þó
hótun hans til almennings um að taka þegjandi aðgerð-
um þeim, sem hann vill láta rikisstjórnina framkvæma.
Áskorun hans til ríkisstjórnarinnar um að framfylgja
slíkum ráðstöfunum eftir „með öllu því valdi. sem
hún hefur yfir að ráða“, hlýtur að skiljast sem boð-
skapur um að ríkisvaldið beiti launþega þvingunarlög-
um í réttindabaráttu þeirra.
Að öllu þessu athuguðu, erum við andvígir þessari
grein. Við teljum hana brjóta í bága við hagsmuni
stúdenta og tökum enga ábyrgð á birtingu hennar.
Eysteinn Þorvaldsson. Jón E. Einarsson.