Fálkinn


Fálkinn - 24.05.1961, Side 10

Fálkinn - 24.05.1961, Side 10
UM EDISON OG FLEIRA FÓLK Kona nokkur, öldruð og nýflutt til höfuðstaðaríns, var eitt sinn á heim- leið og í för með henni telpa, sem henni hafði verið léð til fylgdar. Þeg- ar sú gamla rak augun í speglana hjá Storr á Laugaveginum, reif hún af sér sjalið, lét það á handlegg telpunni og sagði: — Haltu snöggvast á þessu fyrir mig, telpan mín. Síðan þreif hún af sér skotthúfuna, setti prjónana í munn sér, tók greiðu úr pilsvasa sínum og fór að greiða sér. Svo setti hún aftur upp húfuna og nældi hana á sig. Þegar hér var kom- ið, hafði safnazt hópur manna um hana og telpuna. Sú gamla vatt sér við og mælti af móði: — Því láta fálka-fjandarnir svona? Hafa þeir aldrei séð manneskju terra' sig til — eða hvað? ★ Bjarndýr kom eina nótt að afskekkt- um taæ í Kaliforníu og tarauzt þar inn. Konan var ein heima og kveikti ekki. Hún hélt, að þetta væri maðurinn sinn fullur og tók á móti honum líkt og hún átti vanda til, þegar svo stóð á fyrir honum. Það er sagt, að björninn hafi hlaup- ið fullar tvær þingmannaleiðir það sem eftir var nætur, og félagar hans fældust hann vikum saman á eftir, af því að hann var svo hroðalega útleik- inn! ★ Ljósmóðir í Noregi kom eitt sinn að Vesturdal í embættiserindum. Þetta var í fjórða skiptið, sem hún kom þangað. Hún mætti elzta drengnum, Knúti, á tröppunum. Drengurinn sagði: — Þú mátt ekki koma inn! — Já, en Knútur minn, hvað ertu að segja? Má ég ekki koma inn? — Nei, segir Knútur litli og er mjög ákveðinn á svipinn og stendur í dyr- unum, eins og hann ætli að varna ljós- móðurinni að fara inn í bæinn. — Jú, auðvitað má ég koma inn, drengur. Hvers vegna viltu ekki að ég komi? — Ég veit ekkert um, hvað þú kem- ur með, segir stráksi og horfir rann- sakandi á töskuna hennar. En svo verður hann glaðlegri á svipinn, eins og honum hafi snúizt hugur. Hann gengur frá dyrunum og segir: — Jæja, það er þá bezt að þú fáir að koma inn til hennar mömmu. En þá verður þú að lofa mér því, að það verði geithafur í þetta skipti! ★ Hinn heimsfrægi uppfinningamaður, Thomas A. Edison, hafði 1 þjónustu sinni mann nokkurn, sem Barney hét. Hann gerði flest sem gera þurfti á bú- garðinum. Hann starfaði við rafmagns- tæki húsbónda síns, kveikti upp í mið- stöðinni, var ökumaður, og þegar hann þurfti ekki að gegna neinu þessara starfa, sýndi hann gestum verkstæði húsbónda síns og skýrði fyrir þeim hinar flóknu vélar og áhöld. Þessi fjölhæfi maður bjó í litlu húsi skammt frá búgarði Edisons. Hann hafði hest og vagn til þess að aka í á milli eða ef sækja þurfti eitthvað í kaupstað. Nú verður að geta þess, að Barney þurfti óvenjumikinn svefn og átti erf- itt með að komast á fætur á morgn- ana til þess að gefa hestinum. Tók hann þá að hugsa um, hvort ekki mundi unnt að búa til eitthvert áhald, sem kom fóðrinu í jötuna á réttum tíma, án þess að hann þyrfti að rífa sig upp úr rúminu fyrir allar aldir. En hann hafði ekki snilligáfu Edisons, svo að honum kom ekkert til hugar. Loks trúði hann húsbóndan- um fyrir þessu vandamáli. Edison kenndi í brjósti um Barney og kvað létt verk að finna upp áhald þetta. Daginn eftir hafði uppfinninga- maðurinn fundið upp sjálfvirka fóðr- unarvél, svo að Barney gat legið í rúm- inu, meðan hann gaf hestinum. Hið eina, sem hann þurfti að vera, var að ýta á hnapp við rúmið sitt, og þá fylltist jata hestsins sjálfkrafa. Barney var nú ánægður. Velin var sett upp og leiðslur lagðar frá hest- húsinu inn í svefnherbergi hans. Næsta morgun þrýsti hann á hnappinn, dró síðan sængina upp fyrir höfuð og hélt áfram að sofa. En hesturinn var í hesthúsinu að vanda. Allt í einu fór að drynja í ein- hverju uppi yfir honum, og á næsta augnabliki rigndi höfrum og heyi nið- ur úr loftinu og fyllti jötuna á svip- stundu. Hestinum geðjaðist ekki að slíkum göldrum. Hann varð dauð- hræddur, reif sig lausan og fór í hend- ingskasti út gegnum hurðina, sem fór í þúsund mola. Þegar Barney kom á fætur, sá hann að jatan var full, en hesthúsið tómt, og það tók allan daginn að leita uppi hestinn. Næsta morgun tók hann aftur upp gömlu aðferðina við að gefa hestinum sínum, — varð að rífa sig upp eld- snemma til þess arna, og gat ekki stillt sig um að bölva vélamenningunni í sand og ösku. ★ Sigurður Jónsson frá Haukagili, sem hefur annazt vísnaþátt Ríkisútvarpsins undanfarin ár, á eitthvert mesta safn lausavísna hér á landi. Eftirfarandi vísur eru úr safni hans og eru eftir Þormóð Pálsson á Njálsstöðum: Ræðumaðurinn: Ógn var smátt um andans mátt efnisþátt að teygja. — Galað hátt, en hugsað fátt, hefði átt að þegja. Vínið. Vonin gyllir æskuár, ástin tryllir muna, vínið stillir villtar þrár, veitir fyllinguna. Það mér skímu bezta bar böls úr glímu flúinn, öls í vímu aldrei var andinn grímubúinn. ★ Stúlka nokkur, sem var í fyrsta sinn kaupakona í sveit átti að teyma heim að bænum hryssu, sem á voru bagg- ar, og fór með hana beint upp bratta brekku. Þegar hryssan fór upp brekk- una, herti hún á sér. Fremsta gjörðin slitnaði og reiðingurinn og baggarnir fóru aftur af skepnunni. Stúlkan kom æðandi inn í bæ og lýsti því, sem gerzt hafði á þessa leið: — Gvöð, nú var það agalegt! Það slitnaði mjaðmabeltið á henni Gránu og hún missti allt ofan um sig! ★ Eitt sinn, er slökkvilið Siglufjarðar var kallað á vettvang til þess að slökkva eld í hlöðu á Hóli, en þar hafa Siglfirðingar kúabú sitt, orti Ste- fán Stefánsson frá Móskógum: Verði Hekla glóðageld og gaddur í Kötlu bóli og þrjóti í Víti allan eld, er alltaf neisti á Hóli. 10 FÁLKINN

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.