Fálkinn - 24.05.1961, Qupperneq 18
Sigrún Gísladólt-
ir sýnir rósóttan
sumarkjól.
Kristín
Bjarnadóttir
sýnir náttkjól.
Bryndís Schram sýnir hvít-
an rykfrakka.
Ragna Ragnars sýnir regn-
kápu og regnhlíf.
Kristín Bjarnadóttir sýnir
hvítan samkvæmiskjól.
HVERT SÆTI er skipað í Lido þennan
sunnudagseftirmiðdag. Þegar litið er yf-
ir salinn, vekur það eftirtekt, að konur
eru í áberandi meirihluta. í einu horn-
inu er langt og breitt borð alsett skraut-
legum og girnilegum kökum. Á sviðinu
standa tvær ungar stúlkur, sem leika á
fiðlur og sú þriðja á píanó. Það er skraf-
að og skvaldrað yfir ilmandi kaffi og
indælum kökum. Öðru hverju gjóta sum-
ir augunum upp að sviðinu og síðan eft-
ir löngum palli, sem komið hefur verið
fyrir eftir miðju gólfinu. Eitthvað er í
vændum. Eftirvæntingin liggur í loft-
inu . ..
Við erum staddir á tízkusýningu, sem
Kvenstúdentafélag íslands gekkst fyrir
7. maí síðastliðinn. Tízkusýningar eru
ekki með öllu óþekkt fyrirbrigði hér á
landi, en þessi hafði þó þá sérstöðu, að
sýningarstúlkurnar voru allar stúdentar
og meðlimir í Kvenstúdentafélagi ís-
lands. Sennilega hefur aldrei jafn mennt-
aður hópur sýningarstúlkna komið fram
á nokkurri tízkusýningu. Klæðnaðurinn,
sem stúlkurnar sýndu, var allur frá
Markaðnum og Ragna Guðmundsdóttir
æfði stúlkurnar og sá um allan undir-
búning. Helga Valtýsdóttir leikkona var
kynnir og lýsti sniðum og efnum. Þarna
voru sýndar flestar gerðir af kjólum og
kápum: náttkjólar, sumarkjólar, kvöld-
kjólar, dragtir, regnkápur og síðast en
ekki sízt ljósbrúnn búðarkjóll, sem var
lokaatriðið á sýningunni. Og allt var
þetta að sjálfsögðu samkvæmt nýjustu
tízku. Það var samróma álit gesta, að
sýningin hefði farið glæsilega fram og
heppnazt einstaklega vel á allan hátt.
Að sýningunni lokinni náðum við sem
snöggvast tali af frú Ragnheiði Guð-
mundsdóttur, formanni Kvenstúdentafé-
lags íslands, og spurðum hana um fé-
lagið og starfsemi þess:
— Hvað er félagið orðið gamalt?
— Það er víst orðið rúmlega þrítugt,
var stofnað 7. apríl 1928. Það var upp-
runalega stofnað sem félag kvenstúd-
enta í háskólanum og aðalstofnandi þess
var Björg Þorláksson, systir Jóns Þor-
lákssonar og fyrsti kvendoktorinn hér á
landi, útskrifuð frá Sorbonneháskólan-
um. — En það voru fleiri kvenstúdentar
en þeir, sem stunduðu nám í háskólan-
um og þess vegna var félaginu breytt
1930 í Kvenstúdentafélag íslands.