Fálkinn


Fálkinn - 24.05.1961, Blaðsíða 19

Fálkinn - 24.05.1961, Blaðsíða 19
— Hver er tilgangur félagsins? — Hann er meðal annars að viðhalda kynningu meðal kvenstúdenta. Einnig erum við aðilar að alþjóðasamtökum kvenstúdenta og höfum sótt mót þeirra samtaka, sem haldin eru þriðja hvert ár. Alþjóðasamtökin áttu til dæmis aðild að samningu mannréttindaskrár Samein- uðu þjóðanna og láta sig yfirleitt flest það varða, sem að menntun lýtur. Sam- tökin veita vísindastyrki og fyrir þrem- ur árum tókum við í fyrsia sinn þátt í þeirri starfsemi, ■— veittum 12500 króna styrk til brezkrar stúlku, sem vinnur að rannsóknum á Eddukvæðum. í hitt- eðfyrra veittum við tveimur íslenzkum stúlkum styrki til náms erlendis og á síðastliðnu hausti aftur tveimur, sem stunda nám við háskólann hér. — Hvernig aflið þið ykkur tekna? — Við höfum nú engan tekjustofn og þess vegna byrjuðum við að hafa kaffi- sölu, sem við höfum haft undanfarin ár. En þau eru orðin nokkuð mörg kven- félögin, sem hafa kaffisölur, svo að okkur datt í hug að breyta einu sinni til og halda tízkusýningu. Markaðurinn sýndi okkur þá rausn að lána föt til sýningarinnar og Ragna Guðmundsdótt- ir æfði stúlkurnar. Eitt langar mig til að minnast á í sambandi við starfsemi félagsins, en það er starf okkar fyrir barnahjálp Samein- uðu þjóðanna. Við höfum undanfarin ár selt jólakort barnahjálparinnar, sem gefin eru út árlega og ævinlega teiknuð af frægum listamönnum. í fyrra kom hingað forstöðumaður barnahjálparinn- ar og var mjög ánægður með starfið hér. Hann stakk til dæmis upp á því, að gaman væri að láta íslenzka listamenn teikna jólakortin einu sinni. Það væri mjög skemmtilegt ef þessi hugmynd kæmist í framkvæmd. •— Hafið þér verið lengi formaður fé- lagsins? — Nei, ég er búin að vera um þrjú ár, en alls hafa aðeins fjórar konur gegnt formennsku. Katrín Thoroddsen læknir var fyrst, en síðan Geirþrúðui Bernhöft og Rannveig Þorsteinsdóttir. ■— Eruð þér ekki ánægðar með þessa tízkusýningu? — Jú, ég held að hún hafi heppnazt vel. Og það hefur aldrei verið jafn fjöl- mennt á nokkurri samkomu hjá okkur.. . Sýningarstúlkurnar sjö í stiganum í Lido. Fyrir miðju er Ragna Ragn- ars, en aðrar eru, talið frá vinstri: Geirlaug Þorvaldsdóttir, Kristín Bjarna- dóttir, Sigríður Steinunn Lúðvígsdóttir, Erna Geirdal, Sigrún Gísladóttir og Bryndís Schram.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.