Fálkinn


Fálkinn - 24.05.1961, Blaðsíða 22

Fálkinn - 24.05.1961, Blaðsíða 22
NY FRAMHALDSSAGA I\1Y FRAMHALDSSAGA IMY FRAMHALDSSAGA O Bifreið nam staðar á horninu beint á móti loðskinnaverzl- un Corneille. Þetta var klukkan þrjú að nóttu, og umferðin með minnsta móti. Það var snjókoma og mjöllin seig niður á strætið í stórum flygsum, bráðnaði á asfaltinu og vætti það, svo að akbrautin var líkust blásvörtum skurðum í bjarm- anum frá götuljósunum. Eftir dálitla stund kom einhver mannvera út úr vagnin- um. Grannvaxinn maður með frakkakragann brettan upp fyrir eyru, og hatt, sem virtist hylja allt höfuðið. Á einum stað undir hattbarðinu glórði í eld í vindlingi. Maðurinn var með stóran böggul undir handleggnum. Hann leit ekki í kringum sig, en hélt rakleitt á ská yfir götuna og hvarf inn um hliðið fyrir innan stóru sýningar- gluggana hjá Corneille. Þar í portinu var varainngangur í loðskinnaverzlunina. Maðurinn tók lykil upp úr frakkavasa sínum og opnaði dyrnar og fór inn. Hann heyrði vagninn aka af stað frá gangstéttinni fyrir handan og vissi að nú var hann orðinn einn síns liðs. Þegar hann opnaði dyrnar inn í loðskinnaverzlunina, lagði á móti honum þéttan eim af feldum og skinnum. Hann gætti þess, að ekki skyldi heyrast í hurðinni, er hann lokaði henni á eftir sér. Svo stóð hann í nokkrar mínútur og hélt niðri í sér andanum og hlustaði, áður en hann hélt áfram inn í salinn á þykkum hrágúmmísólunum. Það var óþarft að kveikja á raflampanum, sem hann hafði í vasanum. í búðinni var næg birta frá ljósunum úti á göt- unni. En birtan var svo einkennilega flöktandi, vegna snjó- flygsanna, sem sveimuðu fyrir utan gluggana. Maðurinn þekkti húsakynnin, því hann hafði verið að athuga uppdrátt af þeim þennan sama dag. Til hægri var stiginn upp á aðra hæð, sem Corneille hafði einnig undir í húsi þessu, sem alls var fjórar hæðir, og beint fyrir framan hann voru dyrnar að einkaskrifstofu forstjórans. Við hliðina á þeim dyrum var gangur inn í matstofu starfsfólksins, bókhaldið og sýnis- hornaherbergi. Dyrnar undir stiganum voru inn í geymslu- salina. Maðurinn með böggulinn þreifaði sem snöggvast ofan í vasa sinn, fann þar venjulegan lykil og stakk honum í skrá- argatið. Þarna varð hann að kveikja á vasaljósinu. Þar hékk talsvert af skinnavöru og fullgerðum loðkápum á herða- trjám. Geymslan var jafnframt vinnustofa, og þarna lágu ýms vinnutæki á löngu borði. Hann setti vasaljósið á borðið og fór að starfa. Þarna voru blöð og umbúðapappír, sem hann tók saman og lét undir stigann. Svo opnaði hann böggulinn, sem hann hafði komið með. í honum voru gamlar filmuræmur úr selluloid, sem hann dreifði innan um pappírsruslið, og síðan tók hann lít- inn böggul úr vasa sínum; í honum var svart duft og kertis- stubbur. Hann dreifði duftinu í rák frá blaðahrúgunni fram í verzlunarsalinn og í boga að dyrum einkaskrifstofu forstjór- ans. Hann vissi, að þriðju dyr til vinstri voru út að stiga- gangi; það hafði hann séð á uppdrættinum. Hann hafði lykil að þeim dyrum líka. Hann lét röndina enda rétt hjá þessari hurð. Svo fór hann aftur inn í geymslusalinn og fór að leita þar. Þarna var megn þefur af hreinsivökva, og eftir nokkra stund fann hann bæði benzín og naftalín. Hann hellti úr flöskununí yfir bréfahrúguna með selluloidræmunum, slökkti á rafljósinu og stakk því í vasann. Maðurinn í vetrarfrakkanum hafði slökkt í vindlingi sín- um rétt eftir að hann var kominn inn í verzlun Corneilles. Nú tók hann nýjan vindling og kveikti í. Hann var staddur í ganginum meðfram forstjóraskrifstofunni og sneri bakinu að verzlunarsalnum. Hann leit varlega út um gluggann, þar sem snjórinn féll í sífellu eins og hvítur dúnn, beygði sig og setti kertisskarið á gólfið 1 strikið sem hann hafði gert með svarta duftinu. Kertisstúfurinn var ekki nema tveggja sentimetra langur. Hann kveikti á skarinu með sömu eld- spýtunni og hann hafði notað við vindlinginn, og slökkti svo á henni. Ljósið var flöktandi fyrst 1 stað, en brann svo rólega. Hann sneri varlega lyklinum í skránni og fór út á stigaganginn. Þegar hann kom út á götuna, flýtti hann sér yfir á gangstéttina fyrir handan. Þaðan gat hann séð alla búðargluggana hjá Corneille. Birgðir og húsgögn voru vátryggð fyrir 60.000 dollara. Verzlunin gaf lítið af sér, það voru fáir, sem keyptu grávöru um þessar mundir, fannst Ben Corneille. En leyndarmálið var sjálfsagt það, að verzlunin var á skökkum stað, svo að sýningargluggarnir og ljósaauglýsingarnar komu ekki að til- ætluðum notum. Maðurinn í vetrarfrakkanum stóð á sínum stað, í skugg- anum af nágrannahúsinu. Það mátti búast við að næturverð- inum skyti upp þá og þegar. Það var þétt fjúk. Bifreið rann fram akbrautina með miklu skrölti — hún var ekki stöðug í rásinni. Nú voru ekki nema tvær mínútur eftir, og af því að ekki örlaði enn á nokkrum næturverði, hugsaði maðurinn sér nú til hreyfings aftur og labbaði inn í hliðargötu. í 8. avenue hóaði hann í leigubíl og ók á járnbrautarstöðina í 23. götu. En stundarfjórðungi áður en þangað kom, var kertisstúf- urinn í loðskinnaverzlun Corneils brunninn ofan í púður- röndina og hafði kveikt í henni. Eins og kyndli væri kastað flaug eldurinn eftir henni og komst að vörmu spori í bréfa- hrúguna með selluloidræmunum. Og í einu vetfangi varð geymslusalurinn, stiginn og það sem næst var eitt eldhaf. Það var ekki fyrr en bálið var komið fram að sýningar- gluggunum, að maður einn, sem átti leið þarna fram hjá, sá, að þarna var eitthvað á seyði. Hann gekk að þeirri rúð- unni sem næst var, til þess að athuga þennan einkennilega glampa, sem var á rúðunni. Innan skamms vöknuðu allir þeir, sem áttu heima á næstu grösum, af værum blundi, er bifreiðar slökkviliðsins komu brunandi inn í göturnar með hávælandi ýlfurblístrum, eins og þúsundir illra anda væru þarna á ferð. Lögreglan sló hring um húsið. Eldurinn hafði breiðzt um efri hæðirnar. Sem betur fór var allt húsið leigt út til verzlunarstarfsemi, svo að ekkert fólk hafðist þar við á þessum tíma sólarhringsins. En það var ekki fyrr en grá dögunin færðist yfir New York, sem lögreglan gat farið að rannsaka orsakir eldsins. Ben Corneille, eigandi verzlunarinnar, hafði auðvitað verið kvaddur á fund lögreglunnar. Hann fékk orðsendinguna síðla nætur, í East Avenue, þar sem hann bjó einhleypur. Hann horfði þögull á eldinn og beit á vörina. Það var rétt svo að hann tók eftir blaðafréttastúlkunni, sem færði sig að hon- um og spurði: „Verðið þér fyrir miklum skaða, mr. Corneille .... ég á við: höfðuð þér vátryggt? Þegar hann varð hennar var, sneri hann sér við og leit á hana. Hann sá að þetta var allra lögulegasta stúlka. „Hvað meinið þér?“ spurði hann. „Eruð þér að hugsa um að bjóða mér tryggingu?“ „Þvert á móti .... Þér þurfið hinsvegar á þeirri að halda, sem þér vonandi höfðuð fyrir.“ „Á maður að svara öllu, sem forvitnir blaðasnápar spyrja um?“ spurði hann afundinn. „Það er lang-skynsamlegast,“ sagði Helen Truby, „ef mað- ur vill komast hjá óþægindum.“ „Ég skil yður ekki,“ sagði Coi’neille. En fréttastúlkan var farin á bak og burt. Hún stóð óhugn- anlega nærri eldblossunum og var að tala við herðabreiðan raum, með hattinn í hnakkanum. Blaðaljósmyndavélin dingl- aði í vinstri hönd hans. Þarna voru margir blaðamenn og ljósmyndarar að horfa á brunann, svo að Corneille gat ekki gert sér grein fyrir hvers vegna hann hafði sérstaklega tekið eftir þessum tveimur hjúum. Nema það væri af því að þau ynnu saman. Hann las „Morn- ing Star“ öðru hverju og var því kunnugt um ýms afrek, er þau höfðu unnið í fréttasöfnun ljósmyndarinn Dave Dotts og fréttastúlkan Helen Truby. Nú sneri Corneille sér að tveim- ur mönnum, sem komu til hans. Annar þeirra var lögreglu- maður og hinn kynnti sig sem umboðsmann „Home & Busi- ness Insurence Corpation“. Corneille kinkaði kolli, en sagði ekki neitt, — það var hjá þessu félagi, sem hann hafði tryggt. Helen Truby hafði skilað lýsingu sinni á brunanum í síma. Nú sat hún og beið í „Flash Club“, en þar hafði Dave Dott ráðgert að hitta hana aftur. Hann varð fyrst að framkalla 22 FALKINN

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.