Fálkinn - 07.06.1961, Síða 3
UT.t„ ERÐIR
tlijjar leiiit
SUMARLEYFISFERÐ 7.-27. IÚLÍ
A.-Þýzkaland - Tékkóslóvakía - Austurríki - Pólland
Flogið 7. júlí Rvik—Berlín. — Sérstaklega ódýr: kr. 10.650,00 (allt innifalið).
Vikublað. Otgefandi: Vikublaöið Fálk
inn h.f. Ritstjóri: Gylfi Gröndal (áb.).
Framkvæmdastjóri Jón A. Guðmunds-
son. Rltstjórn, afgrelðslá og auglýs-
ingar: Hallveigarstig 10, Reykjavik,
Sími 12210. — Myndamót; Myndamót
h.f. Prentun: Félagsprentcmiðjan h.f.
GREINAR:
Til sjós í blíðu og stríðu.
Sveinn Sæmundsson ræðir
við Stefán Jónasson, skip-
stjóra á Akureyri, sem setti
svip sinn á útgerð Akureyr-
ar um skeið .... ........ Sjá bls. 6
Missti kjarkinn — og þó. Rætt
við frú Helgu Weisshappel Sjá bls. 9
Yngsti kaupfélagsstjórinn —
og skíðakappi við fram-
reiðslu. Innlend grein og
myndir .................. Sjá bls. 12
Varnir gegn barneignum. Jón
Nikulásson læknir þýðir og
endursegir fyrir FÁLKANN Sjá bls. 16
Stutt spjall við Jón Nikulás-
son í tilefni af meðfylgjandi
grein .................. Sjá bls. 16
Uppskeruhátíð í Kardemommu
bæ. FÁLKINN heimsækir
Kardemommuhátíðina í Þjóð-
leikhúsinu, sem haldin var
til heiðurs Thorbjörn Egner Sjá bls. 18
Leikför um landið þvert og
endilangt ............... Sjá bls. 23
ÍSLENZK FRÁSÖGN:
In memoriam. Þorsteinn frá
Hamri skrifar um einkenni-
leg erfiljóð og birtir sýnis-
horn eftir Leirulækjar-Fúsa,
Æri-Tobba og fleiri ... Sjá bls. 14
SÖGUR:
Sættir. íslenzk gamansaga eft-
ir höfund, sem kallar sig Fal-
inn. Myndskreyting eftir
Halldór Pétursson ....... Sjá bls. 10
Ryðguð reiðhjólalukt, litla sag-
an ...................... Sjá bls. 27
Eldflugan, þriðji hluti hinnar
nýju og spennandi fram-
haldssögu eftir Frederick
Marsch .................... Sjá bls.,20
Innan skamms fer Þjóðleik-
húsið í leikför um landið og
fer að þessu sinni á hvern
einasta stað á landinu þar
sem aðstæður eru til leiks.
— Sýnt verður leikritið
„Horfðu reiður um öxl“ eft-
ir John Osborne, sem mikla
athygli hefur vakið. Forsíðu-
myndin er af aðalleikendun-
um, Gunnari Eyjólfssyni og
Kristbjörgu Kjeld. (Ljósm.
Vignir.)
A.-Þýzkaland
Berlín — Potsdam — 6 dagar
á baðströnd við Eystrasalt —
Dresden, með málverkasöfnun-
um frægu.
15. júlí haldið til Tékkósló-
vakíu.
Leitið nánari upplýsinga. FERÐASKRIFSTOFAIXI
/atujjifh
Tékkóslóvakía
Karlovy Vary (Karlsbad)
— Prag — Bratislava —
Ostrava.
Frá Prag.
Ferð á Eystrasaltsvikuna, 7.-18. jólí
Flogið til Berlínar 7. júlí. — 10 dagar á strönd Eystrasaltsins.
Flogið heim frá Kaupmannahöfn (Þátttakendur geta verið lengur á eigin
kostnað).
Vinnuferð til Júgóslavíu, 7.-27. júlí
Flogið til og frá Berlín. Með lest Berlín — Belgrad — Berlín. Ferðin ætluð
ungu fólki, sem vill vinna við vegagerð í Serbíu og Makedóníu, ásamt sjálf-
boðaliðum frá mörgum löndum. Mjög ódýr ferð: kr. 8.700,00. Örfá sæti laus.
Ferð til Kína, 20. ágúst -13. september
Flogið til Helsinki. Helsinki — Moskva með lest.
Flogið Moskva — Peking — Moskva. 17 dagar 1 Kína.
Austurríki
2 dagar í hinni glað-
væru Vínarborg.
Pólland
Farið um Krakow og
Osviecim (Auschwitz),
þar sem hinar ill-
ræmdu fangabúðir
nazista voru á stríðs-
árunum
Schöribrunnhöll í Wien.
ÚDÝRAR