Fálkinn


Fálkinn - 07.06.1961, Blaðsíða 14

Fálkinn - 07.06.1961, Blaðsíða 14
Svo lángt sem sögur ná af mannskepn- unni, hefur það tíðkazt, að mæla eftir andað fólk, skyldmenni og vini, ýmist í lausu máli eða ljóðformi. Margt af þeim sæg erfiljóða, sem varðveittur er frá öllum tímum, telst til mikilla lista- verka, en hér verður ekki farið út í það að telja upp dæmi þess. Þar er af nógu að taka. En mörg sú mærð sem ollið hefur upp úr mönnum um dána menn í blöðum og skálaræðum, hefur, miðað við geingi þeirra í lifanda lífi, ekki verið geðslegri en svo, að réttast væri að nefna hana lof um líkið. Til er vísa frá síðastliðinni öld um erfi- ljóðagerð, eftir Þorstein Gissurarson að Hofi í Öræfum, og sýnir viðhorf hans til þeirrar iðju: Að kveða lof um látinn mann linar í mér kátínu; lítils met ég þvætting þann, þó hann sé á latínu. Enn er þó ónefnd sú tegund eftir- mæla, sem hér verður gerð að megin- máli frásagnar. Hún virðist mótast af spé'skap fyrst. og fremst, en kannske ekki síður persónulegum kala í sumum tilfellum; stundum hreinni illgirni. Hins er þó ekki að dyljast, að víða er þar um virðíngarverða hreinskilni að ræða og slíkir kviðlíngar hafa orðið sérkenni- legUr liður í sögum og sögnum, er flest- um bókmenntum betur gefa til kynna daglegt líf alþýðu á geingnum öldum. — Hér verða nú af handahófi sýnd nokkur dæmi þessarar sérstæðu erfi- ljóðagerðar. ★ Hjón nokkur misstu barn sitt. Að áeggjan konu sinnar orti faðirinn þessa grafskrift: Gamli Bleikur barnið bar burt úr solli veraldar; honum ég það á hendur fel, himna él — kríustél--------- Karl missti kerlíngu sína í vatnsfall. Hann var viðstaddur og kvað: Svei mér ef ég syrgi hana. Sjáið þið hvar hún fer. Einhverja dyrgjuna ætlar guð mér. Sagt er um ýmsa menn, að þeir hafi mælt þetta stef fram, þegar þeir misstu konur sínar lífs eða liðnar, t. d. Her- mann í Firði, er kona hans fór frá hon- um. Ólafur Davíðsson flokkar stefið með viðlögum í vikivakasafni þeirra Jóns Árnasonar. ★ Eftir að Æri-Tobbi (17. öld) vísaði ferðamönnunum til vegar „fram af eyr- aroddanum“ og þeir drukknuðu, sem frægt er orðið, kvað hann eftirfarandi ljóð í minníngu þeirra: Agara gagara nízkunös, nú er hann kominn á heljarsnös, heiminn kvaddi, hamarinn sprakk, hylurinn tók við bagga af klakk, straumurinn bar hann eyrina á, agara gagara jagar á, skrokkurinn gat ei skriðið þá, skjótt leið sálin honum frá, ogkvað í bergi nurtara kreistum nagar á. ★ Jón Jónsson, auknefndur sóti, bjó í Reykholtsdal í Borgarfirði. Af honum fór illmennskuorð; hann flakkaði víða og stóð fólki almennt stuggur af hon- um. Kona hans hét Hallfríður, og voru þeirra börn Brynjólfur, Vilborg og Guð- rún. Fylgdu þau Jóni á flakki hans. Eitt sinn var fjölskyldan á ferð um Haukadalsskarð í hríðarveðri. Jón yfir- gaf þá fólk sitt og urðu þau öll úti, konan og börnin. Jón komst til byggða og virtist mjög harmþrúnginn, sagði margt frá missi sínum og víst ekki allt sem réttast. Síðan orti Jón saknaðarstef eftir þau og hafa glefsur úr þeim geymzt, til dæmis þetta: Haukadalsskarð ég muna má, mína konu ég missti þá, elli lú já elli lú já — litla Borga til jarðar hné, strákurinn Brýnki stóð sem tré, elli lú já elli lú já — og þetta: / Haukadalsskarð ég muna má, mér þegar konan villtist frá og barnið hún litla Borga, brátt tók þá Jón að sorga. ★ Vigfús Jónsson (Leirulækjar-Fúsi, d. 1728) var sem vænta mátti, einginn eftirbátur í sérstæðum og hressilegum eftirmælakveðskap. Deilur þeirra Sig- urðar Dalaskálds eru mönnum kunnar af mörgum bókum, og mælt var að drukknun Sigurðar væri af völdum fjöl- kynngi Fúsa. Fúsi kvað um Sigurð: Sigðurður dauður datt í sjó, dysjaður verður aldrei, í illu skapi útaf dó og í ramma galdri. Sagnir herma, að þegar Fúsi missti konu sína, kvað hann þetta gullvæga ljóð: Nú ljómar mín mín mín hjá herra sín sín, þar sem dýrðin skín skín skín hún svo fín fín, skín hún sem skoffín. Og ekki verður skilizt við þennan kveðskap Fúsa án þess að tilfæra hér Eftirmœli íngigerðar: Enn þó um íngigerði efni ég lítinn brag, samt trú eg varla verði vandað með sálmalag. Lifrar og lýsið bræddi, laungum það sauð og át, á skötunni fólkið fæddi, svo flest var komið í mát. Arma útróðrardreingi aktaði lítils hún, fúkyrði faldi ei leingi, fram gekk með síða brún, fisk bæði flatti og slægði, fleygði sem tryllt og ær, stytti sig nóg sem nægði, nær upp á þykkvalær. Fullvaninn fjörusulli fannst henni eingin lík, í því andskotans bulli útklíndi hverja flík, lítilsvert lofið hreppti, löðraði öll í grút — lifínu loksins sleppti, — leið þannig ævin út. ★ Börn Sigurðar Oddssonar silfursmiðs á Ljósavatni, þau Jónatan, Bóas, Rut og Júdit, eru þekktust undir nafninu Ljósavatnssystkin. „Öll voru þau systk- in gervileg, vitur og skáldmælt, en all- níðská; er sagt það væri þeirra gaman, og er það mjög í frásögum, hvað skjót þau væri að kveða og hversu níðfeing- ið“, segir Gísli Konráðsson. Jónatan (prestur, d. 1808) kvað um Odd, afa þeirra systkina: Fjalla skauða forínginn, fantur nauðagrófur, er nú dauður afi minn Oddur sauðaþjófur. 14 FALKINN

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.