Fálkinn


Fálkinn - 07.06.1961, Blaðsíða 12

Fálkinn - 07.06.1961, Blaðsíða 12
YNGSTI KAUPFÉLAGSST HÚN ER yngsti kaupfélagsstjórinn á landínu. Hún er ekki nema 17 ára, og heitir Anna Einarsdóttir, og hún sendi okk- ur bros, sem geislaði í kapp við sólina úti, þegar hún upplýsti okkur: —I Við settum upp sælgætissölu hérna frammi í ganginum í fyrra, og svo var farið að kalla það Kaupfélag Hverdæl- inga. Nafnið festist við, og það hefur ekki heitið annað síðan. —• Þetta er líklega yngsta kaupfélagið á landinu. — Og það minnsta. — Þú ert þá líklega yngsti kaupfé- lagsstjórinn. — Það veit ég ekki. — En sá fallegasti! Þá leit hún undan og roðnaði, svo að við flýttum okkur að bregða yfir i aðra sálma: — Þú leyfir okkur líklega að taka mynd af kaupfélaginu þínu. — Jú, sjálfsagt. Þið sjáið vörurnar hérna í hillunum. — Og vitanlega verður kaupfélags- stjórinn að vera með á myndinni. — Nei, kaupfélagsstjórar eru aldrei með. En það var um seinan að karpa. Það var þegar búið að smella mörgum mynd- um af í laumi, og við skellihlógum að eftirtektarleysi okkar... SKÍÐASKÁLINN í Hveradölum er án efa eitt myndarlegasta hótel, sem get- ur hérlendis. Það skyldi enginn ætla, að hann sé aðeins viðkomustaður á leiðinni yfir Hellisheiði, afdrep skíða- manna yfir veturinn, því að þetta er aðeins hluti af starfsemi hans. Skíða- skálinn er í raun og veru einhver heppi- legasti hvíldar- og dvalarstaður í lengri eða skemmri ferðum, og það er ánægju- legt að sjá, hvað gestgjöfunum, þeim Óla J. Ólasyni og Sverri Þorsteinssyni, hefur tekizt að gera þetta hálfþrítuga hús vistlegt, og aðkomuna ánægjulega. Við skruppum upp eftir um daginn til að kynna okkur, hvað fyrirhugað væri varðandi sumarreksturinn. Þangað hef- ur verið stöðugur straumur í vetur, sérstaklega seinustu vikurnar, meðan snjórinn var hvað mestur. ★ VEITIN GAS ALUR skálans verður í sumar opinn til klukkan 11:30. Verður þar hægt að velja um úrvals máltíðir, og fá sér snúning eftir kaffið, því að þarna verður dansmúsík á hverju kvöldi. Opnuð hefur verið smekkleg setustofa fyrir dvalargesti, og er hún búin smekk- legustu innanstokksmunum. í skálanum eru átta herbergi fyrir dvalargesti, og eru þeir fyrstu þegar farnir að hvíla vetrarlúin bein í hollu fjallaloftinu. Upp á síðkastið hafa m. a. nokkrir saumaklúbbar lagt leið sína upp eftir til skemmri dvalar, enda við ýmislegt að vera þarna efra. Má nefna fjallgöng- ANNA — yngsti kaupfélagsstjórinn og sá fallegasti. 0 f *

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.