Fálkinn


Fálkinn - 07.06.1961, Side 9

Fálkinn - 07.06.1961, Side 9
Missti kjarkinn - og þó UM ÞESSAR mundir stendur yfir í Mokkakaffi við Skólavörðustíg sýning á málverkum eftir kunna húsfreyju hér í bæ, Helgu Weisshappel, eiginkonu Fritz Weisshappel píanóleikara. Helga hefur aldrei áður haldið málverkasýn- ingu og sennilega hafa fæstir vitað um, að hún fengizt við að mála í tómstund- um sínum. Helga á raunar ekki langt að sækja listhneigð sína. Hún er til dæmis þriðja konan í ætt sinni, sem fæst við að mála og allt móðurfólk hennar er einstaklega sönghneigt. Móðursystkini hennar eru t. d. María og Einar Markan. Fálkinn frétti á skotspónum skömmu áður en sýningin var hengd upp, hvað til stæði og brá sér í stutta heimsókn til frú Helgu Weisshappel. Strax og komið var inn í stofuna leyndi sér ekki, hvað í býgerð var. — Myndir voru út um alla stofuna, stóðu upp við veggi, í sófanum og stólunum og hvert sem litið var. Það var auðséð að verið var að velja myndir á sýn- inguna. Það vakti strax athygli okkar, að myndir frú Helgu eru talsvert óvenju- legar og frábrugðnar því sem almennt gerist. Þær eru til að mynda margar langar og mjóar í laginu, líkt og klukku- strengir. Frú Helga hefur sjálf valið þessum myndum sínum heitið skraut- myndir. Við spurðum Helgu hvort hún hefði nokkuð lært í þessum efnum og hvort hún væri nýbyrjuð að leggja stund á þetta. — Fyrstu kennslu mína hlaut ég hjá Sigríði Björnsdóttur, systur Sveins Björnssonar forseta. Hún var þá kennari við kvennaskólann. Að lokinni veru í Kvennaskólanum fór ég til Danmerkur á íþróttakennaraskóla, en fékk að vera í tímum hjá tveimur myndlistarkennur- um gegn því skilyrði, að nemendur þeirra fengju að teikna á mér prófílinn í staðinn. En svo missti ég kjarkinn, — var raunar aldrei nógu sannfærð um eigin ágæti og hæfileika. Skömmu síð- ar giftist ég og upp frá því tóku hús- móðurstörfin allan tíma minn. — Hvenær byrjuðuð þér svo aftur? — Ekki fyrr en núna fyrir um tveim- ur árum. Nú eru börnin orðin stálpuð og betra næði en áður og meiri tími til að sinna hugðarefnum sínum. Og þá kom strax aftur upp í mér þessi gamla árátta að fara að mála. — Hafið þér stundað nokkuð nám í myndlist að undanförnu? — Jú, ég hef verið dálítið í Mynd- listarskólanum hjá Hafsteini Austmann listmálara og lært mikið á því og líkað prýðilega kennslan. Einnig hef ég lært meðferð vatnslita hjá Solveigu Eggerz Pétursdóttur, sem hefur að mínum dómi frábæran vatnslitaskóla. Frú Helga sýndi okkur vinnustofu sína, sem er í kjallaranum, og þar var margt mynda, bæði olíumyndir og vatnslitamyndir og enn fremur nokkr- ar svartkrítamyndir og teikningar. — Helga sagði okkur að sér fyndi skemmti- legast að fást við olíumyndirnar og eft- irlætis viðfangsefnin hugmyndir hvers konar og það sem hún vill kalla „form- myndir“. Á vinnustofunni komum við auga á nokkra muni, sem í fljótu bragði virt- ust vera skrautvasar af ýmsum stærð- um og gerðum. En þegar betur var að gætt kom í ljós, að hér var um skreytt- ar glerflöskur að ræða. Nokkrir af þeim munu vera á sýningunni. Við spurðum frú Helgu að síðustu, hvort hún hefði ekki hug á að afla sér frekari menntunar á sviði myndlistar. — Jú, svo sannarlega. Mig hefur lengi dreymt um að komast til Vínarborgar og dveljast við nám þar og ég er enn ekki úrkula vonar um að sá draumur minn rætist. Við þökkuðum fyrir spjallið og þeg- ar við kvöddum, bað frú Helga okkur að taka það skýrt fram, að hún liti alls ekki á sig sem neina listakonu, heldur gerði þetta sjálfri sér til ánægju. — Og samt haldið þér sýningu? — Það er hann Guðmundur í Mokka, sem stendur fyrir því. FALKINN 9

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.