Fálkinn


Fálkinn - 07.06.1961, Qupperneq 27

Fálkinn - 07.06.1961, Qupperneq 27
LITLA SAGAN: RYÐGUÐ REIÐHJÖLA- LUKT Ekki fór sem bezt orð af Smithers gamla. Lögreglan vissi að hér fyrir eina tíð hafði hann keypt og selt stolna muni og rakað saman fé á viðskiptum við bófa. En aldrei hafði tekizt að sanna þetta á hann, og nú naut hann ellinnar og auðsins í húsi sínu utanvert við borg- ina og var hættur að verzla. Hann kom sjaldan út og hitti fáa. Gekk undir nafn- inu „Smithers gamli“. Einn morguninn tók lögreguþjónn þarna í hverfinu eftir því að margar mjólkurflöskur höfðu safnazt fyrir við dyrnar hjá Smithers gamla. Þær höfðu ekki verið hirtar, eins og vant var. Lög- regluþjónninn hringdi dyrabjöllunni en enginn svaraði. Og þá afréð hann að Lausn á 19. verðlauna- krossgátu FÁLKANS • L 0 e s V £ A\'A • N . £ A Ct • K E L J 'O S • B k U A N A R ' K Ö TT • B J • A K U R • A_ ■ A • U 6 L AfÁU RlA • K A í> A L • • /< U L 0 1 L A F A|H E B A . K L £ R ’A L • • • <r A L L _APT L A S ' <j N Ct l/ LJ-ÍJ £_L\Þ /? A L L A|'t * J.“5|'A R - / • r'o l u R • p e / p J> r A A USA E p • V'/Tr A t; M r|/? I<[f_ ■ A ■ 'J O r AN-KRÖFTU m|A ^ u AN S A R\T J A RA 4 l/ T T • L ^ 5/A N ATA R . R Ö A . u *?|s <ejA/ 'A P • Geysimargar lausnir bárust við verð- launakrossgátu nr. 19. — Verðlaunin hlýtur Ragnar Jóhannsson, Öldugötu 1, Hafnarfirði. Rétt ráðning birtist hér að ofan. Smitliers gamli lá steindauður á gólf- inu ... og peninga- skápurinn opinn og tómur_____ brjótast inn. Þegar hann leit inn í stof- una sá hann hvernig komið var. Smith- ers gamli lá steindauður á gólfinu; hann hafði verið myrtur og peningaskápur- inn stóð opinn og tómur. Samvinna hans við glæpahyskið hafði orðið honum að falli . .. Rannsóknarmenn lögreglunnar komu á vettvang og sáu fljótlega að þarna höfðu slyngir ránsmenn verið að verki. Þeir höfðu ekki skilið neitt eftir sig, sem gat gefið lögreglunni vísbendingu. Engin fingraför, engin morðvopn. Smith- ers hafði verið skotinn á stuttu færi með hlaupvíðri skammbyssu. Nú var leitað til Scotland Yard, en snillingarnir þar hristu höfuðið. Það eina; sem hugsanlegt var að gæti gefið vísbendingu var gömul, ryðg- uð reiðhjólslugt.. Hvaða sönnunargildi hefur þess kon- ar skran haft? Gat lögreglan snúið sér til milljónanna í London og spurt hver ætti gripinn? Jú, mennirnir frá Scot- land Yard vildu reyna það. Fyrst var talað við alla framleiðendur reiðhjólslugta. Og von bráðar var því slegið föstu, að þessi lugt hefði undan- farið verið notuð af krökkum, til að leika sér að. Og þá líklega af krökkum í fátækrahverfunum. Nú voru sjö ára synir njósnaranna teknir í uppljóstrun- arstarfið og fóru með feðrum sínum á barnaleikvelli fátækrahverfanna. Strák arnir skiptust á um að hlaupa milli hinna krakkanna með ryðguðu luktina til að láta sem flesta sjá hana, en feð- urnir héldu vörð álengdar fjær. Þannig leið dagur eftir dag, en enginn þekkti lugtina. Þetta virtist ætla að verða árangurslaust. Allir barnaleikvellirnir voru raktir hver eftir annan með þessum hætti og strákar njósnaranna hjálpuðu feðrum sínum. En allt í einu gerðist það, sem Scot- land Yard hafði vonað. Einn njósnara- strákurinn var að sparka luktinni eins og bolta eftir götunni, fyrir utan leigu- hjalla í fátækrahverfi þegar mjög ó- hreinn strákur úr húsinu kemur hlaup- andi og grípur hana. — Ég á þessa lugt! hrópaði hann. — Ég á hana ... Sjáðu. Heldurðu að ég þekki hana ekki. Þeir stálu henni frá mér ... Njósnarinn var fljótur til að gefa sig fram. Og svo fóru allir þrír heim til stráksa. Móðir hans rak litla matsölu, og hún staðfesti að drengurinn hennar ætti lugtina og að hann hefði leikið sér að henni lengi. Scotland Yard-mað- urinn spurði hve langt væri síðan lugt- in hefði horfið og hverjir hefðu átt heima í matsölunni þá. Þetta var ljóst í fyrstu, en loks mundi konan, að raf- virki og gaslagningarmaður höfðu flutt úr matsölunni um sama leyti sem lugt- in hvarf. Þeir höfðu verið mjög sam- rýmdir. Kannske höfðu þeir stolið lugt- inni? Lögreglan hélt áfram að rekja þenn- an þráð. Nú voru allir rafvirkjar og gasmenn athugaðir, bæði í skrám lög- reglunnar og atvinnuskránum. Og loks var staðnæmst við tvo menn, sem kon- an fékk að sjá án þess þeir vissu. Hún þekkti að þetta voru leigjendur hennar. En ekki vildi lögreglan taka mennina að svo stöddu. En hún reyndi að rekja slóð þeirra og þeir reyndust báðir grun- samlegir. Það kom á daginn að rafvirk- inn hafði annast viðgerð í húsi Smithers rétt fyrir morðið, og við húsrannsókn heima hjá honum fannst skammbyssa í fórum hans, með sömu hlaupvídd sem var á kúlunni, er hafði orðið Smithers að bana. Nú þótti málið upplýst. Mennirnir voru handteknir og játuðu sekt sína eft- ir stranga yfirheyrslu. Ryðgaða lugtin hafði ráðið úrslitum. FÁLKINN 27

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.