Fálkinn


Fálkinn - 07.06.1961, Page 32

Fálkinn - 07.06.1961, Page 32
Þegar gulli er smyglaö Eigi alls fyrir löngu voru 50 starfs- menn brezks flugfélags reknir úr vist- inni. Þeir höfðu verið viðriðnir gull- smyglmi í austurlöndum. Þetta er mjög arðbær atvinna og hún byrjar með löglegu móti. í Sviss er nefnilega hægt að kaupa gull í bönk- unum. Og í Englandi er hægt að fá keypta litla gullbarra á 50 sterlings- pund stykkið. En ólöglega ævintýrið byrjar þegar kemur austur í Persaflóa. í fyrra fóru 750.000 pund í gulli til Bahrein og 2 milljón pund til Dubai. í Dubai verzla þeir úti á götimum, undir sóltjaldi. Vindmyllur sjá 'fyrir að svolítið af hreinu lofti komist niður í kaupmannagöturnar. Kaupmennirnir sitja þar innan um stóra stranga af silki og drekka lútsterkt mokkakaffi frá morgni til kvölds. En ef skiptavinur af réttu tagi kemur til hans, skimar kaup- maðurinn kringum sig. Og nú koma úr ótrúlegustu stöðum í varningshrúgun- um kringum hann skínandi fallegir gull- barrar, með enskum stimpli. í höfninni er nóg af smáskipum. Eigendur þeirra taka að sér að koma gullinu á réttan stað. Réttu staðirnir eru Indland og Pak- istan. Ein únza af gulli — 28.35 grömm — sem kostar 12 sterlingspund í Lond- on, selst fyrir að minnsta kosti 16 pund 1 Karachi og fyrir 20 pund í Bombay. Skipstjórarnir á smyglskútunum nota ýmsar aðferðir til að koma sinum dýra varningi til réttra viðtakenda. Stundum fela þeir gullið innan í silki- ströngum. Stundum er gullinu sökkt í blikkhylkjum skammt undan landi, en viðtakandinn nálgast það þar. Einhvern tíma notuðu þeir gull sem sökkur á net, en það komst upp og þá urðu margir kaupmenn í Dubai gjaldþrota. Tollverðirnir heyja harða baráttu við gullsmyglarana. Einhvern tíma kom- ust þeir yfir brotajárn, aðallega gaml- ar grindur úr reiðhjólum. Þegar betur var að gáð hafði gulli verið rennt í hol- ar járnpípurnar, svo að skranið var talsvert mikils virði. í annað skipti fannst gull í slátruðum alifuglum, sem sendir höfðu verið flugleiðis frá Sviss til gistihúsa í Norður-Afríku. Og við landamæri Pakistans hafa menn „opn- að gullnámur“ með því að hleypa á grunsamlega menn með laxerolíu. Að eftirspurnin eftir gulli er svona mikil í Indlandi og Pakistan stafar af því, að þar er bannað að selja gull. Og bannið var sett til þess að venja fólk af gömlum sið. í þessum löndum þykir ekki brúðkaup mannsæmandi nema brúðurin fái grip úr gulli, oftast víra- virki, sem vegi að minnsta kosti eina únzu. Og í þessum löndum eru mörg milljón brúðkaup á ári, svo að mikið gull þarf til að fullnægja eftirspurn- inni. í þessum löndum er gullsmíði á mjög háu stigi, en gullsmiðirnir fá lítið í sinn hlut, þó gripirnir séu dýrir. Það eru gullsmyglararnir í Dubai og Bahr- ein sem fleyta rjómann. En indversk hjónaefni vilja heldur líða sult og leggja á sig strit en að vera án dýra gripsins, sem ómissandi þykir til þess að gera hjónabandið farsælt. ■ . Fálkinn í næstu viku: .'."il -^- Með Nóa á Stangaveiðum. FÁLKINN fer í veiðiferð með hinum nýja sportbát NÓA. Grein og myndir. -^- Leikföngin. Athyglisverð smásaga eftir Elías Mar. Myndskreyting eftir Sigurjón Jóhannsson. -^- íslenzk frásögn eftir Jón Gíslason: Reimleikár í Krýsivík. Spenn- andi draugasaga. Myndskreyting: Ragnar Lárusson. Tækniþáttur um nýja flugvél eftir Arngrím Sigurðsson. -^- Dagur Anns skrifar xun hlómarækt. -^- Stolna ambáttin. Skemmtileg saga eftir John Sinclair. Eva skrifar skopþátt um ofurlítil hjónakorn, sem hyrjuðu að húa í Blesugrófinni og lýsir skemmtilega hrakföllum þeirra. -^- Og ótal margt fleira. Áskriftarseöill Undirritaður fuð) óskar að ger* ast askrifandi að UÁUKÆJXUM NAFN HEIMILI PDSTSTD-Ð 32 FÁLKINN

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.