Fálkinn - 07.06.1961, Síða 33
3 KOSTIR
Slitþol
hins hreina náttúrugúmmís er óum-
deilanlegt, þetta hafa fjölmargir
bændur, læknar, embættismenn og
ekki sízt eigendur vörubíla, sem aka
um hina misjöfnu vegi dreifbýlisins,
fullreynt. Þess vegna kaupa þeir
hina endurbættu rússnesku hjól-
barða.
Mýkt
og sveigjanleiki er kostur sem flest-
ir skilja hverja þýðingu hefur fyrir
endingu bílgrindarinnar, yfirbygg-
ingar og yfirleitt flesta hluta bíls-
ins. Þessir eiginleikar eru sérstak-
lega þýðingarmiklhv þegar ekið er á
holóttum og grýttum vegum. Hið
hæfilega mjúka gúmmí í rússnesku
hjólbörðunum er vörn gegn höggum.
Spyrna
hefur afar mikla þýðingu fyrir góða
endingu mótorsins og ekki hvað sízt
á blautum og mjúkum vegum. Enn
fremur er vert að gefa gaum að
hemlamótstöðu hjólbarðans.
Aðalumboð:
MARZ TRADING
COMPANY
Klapparstíg 20
Sími 17373.
HVAD GERISTINÆSTU VIKII?
STJÖRNUSPÁIN
HrútsmerlciB.
Svo virðist sem yður veitist erfitt. að komast í snertingu
við mann, sem er yður mjög mikilvægur. Á einhvern hátt
skuluð þér berjast áfram að takmarki yðar, án þess að hafa
of mikið orð á því. Allur er varinn góður, ef illa skyldi til
takast.
NautsmerkiB.
Þér fáið tækifæri til þess að leysa vandamál, sem lengi hef-
ur svipt yður allri sálarró. En aðstaða yðar er samt lítið
breytt fyrir það. Ef yður tekst að hafa hemil á skapi yðar,
ætti yður þó að takast að bjarga yður úr þeirri erfiðu að-
stöðu, sem þér eruð í.
TvíburamerkiB.
Þér fáið tækifæri til að rjúfa hið vanabundna og hvers-
dagslega líf yðar fyrir algera tilviljun. Yður gefst tækifæri
til að bregða á leik og skemmta yður duglega, án þess að þér
þurfið að hafa samvizkubit út af því. En hversdagsleikinn
vitjar yðar aftur.
KrabbamerkiB.
Þér munuð sæta allharðri gagnrýni og skilningsleysi varð-
andi aðstöðu yðar, svo að þessi vika verður ögn óhag-
stæð frama yðar. En það er engin ástæða til að missa kjark-
inn fyrir því. Sá, sem hefur á réttu að standa, mun sigra
að lokum.
LjónsmerkiB.
Loksins kemur að þv£ að þér sýnið hvað í yður býr. Þér
verðið aldrei þessu vant vel upplagður og sýnið atorku bæði
á vinnustað og heima fyrir. Þetta kemur ekki eingöngu vin-
um yðar og kunningjum á óvart heldur einnig sjálfum yður.
Haldið áfram á sömu braut.
JómfrúarmerkiB.
Fyrri hluti næstu viku verður rólegur og meinhægur, en £
vikulokin verður ofurlitil sprenging i einkalifi yðar. Þá ger-
ist sitthvað, sem kemur flatt upp á yður. Þetta verður dálít-
ið erfitt fyrst um sinn, en jafnar sig fljótt þegar frá líður.
VoffarskálarmerkiB.
Strax í byrjun vikunnar fáið þér þvi framgengt, sem yður
hefur lengi dreymt um. Þér getið þakkað hyggindum yðar
þennan góða árangur. Mjög mikilvirk persóna fær einstaklega
mikinn áhuga á yður og starfi yðar og þér fáið gullið tilboð.
SporBdrekamerkiB.
Brjótið odd af oflæti yðar og leitið hjálpar og aðstoðar
manneskju, sem er öll af vilja gerð til þess að rétta yður
hjálpandi hönd. Farið á fund hennar og látið ekki lítilshátt-
ar móðgun standa í vegi fyrir því. Sú heimsókn verður yður
til góðs.
B o gmannsmerlciB.
Strax í byrjun vikunnar fáið þér ný og erfið viðfangsefni
til þess að glíma við. Það ríður á að þér beitið til hins ítrasta
mælsku yðar og orðfimi og veljið vegi og ráð að vandlega
athuguðu máli. Þetta heppnast. yður, en ofmetnizt ekki vegna
sigursins.
SteingcitarmerkiB.
Þessi vika verður hagstæð, en krefst mikils erfiðis og and-
legrar áreynslu, sem þér skuluð ekki láta yður vaxa í augum.
En það sem er fyrir mestu er, að leiðin sé rétt og það mun
koma í ljós áður en langt um líður.
VatnsberamerkiB.
Miðvikudagur, föstudagur og laugardagur verða beztu dag-
ar vikunnar. Þér munuð fá heimsókn, sem er hvort tveggja í
senn: skemmtileg og hagstæð fyrir vinnu. Þér skuluð ekki
jiiii hampa um of hugmyndum yðar og ekki búast við skilningi
yðar nánustu á þeim.
FiskamerkiB.
Það verður óvenjumikið um skemmtanir i þessari viku og
þér munuð fá óvænta gjöf eða styrk. Annars verður þessi
vika ósköp venjuleg og svipuð þeim, sem á undan eru gengnar.
Þér skuluð lialda óhikað áfram að framkvæma áætlanir yðar.
V
m
1
ffl
I.tro*
k
it
21. MABZ —
20. APBll,
21. APHlL —
21. MAÍ
22. MAl —
21. JÚNl
22. IÚNl —
22. IÚU
23. IÚU —
23. AGÚST
24. AGÚST—
23. SEPT.
24. SEPT. —
23. OKT.
24. OKT. —
22. NÓV.
23. NÓV. —
21. DES.
22. DES. —
20. IAN.
21. IAN. —
19. FEBR.
20. FEBH. —
20. MABZ