Fálkinn - 17.10.1962, Side 5
úrklippusafnið
Sendið okkur spaugilegar
klausur, sem þér rekizt á í
blöðum og tímaritum. Þér
fáið blaðið, sem klausa yðar
birtist í, sent ókeypis heim.
Fjögur á ferð
Aðeins þessi eina sýning.
öalctarflokkurinn
Þjóðviljinn 16. september 1962.
Sendandi: B. V.
Stjórnaði sjúkrahúsi á
Islandi með handapati
Morgunblaðið 2. ágúst 1962.
Grimseyingar fengu svartaþoku
í fyrradag, þegar þeir voru að
smala Lyngdalsheiði og smalaðist
illa- af þeim sökum. Nokkrir smal-
Timinn 20. september 1962
Send.: Þorsteinn Hallfreðsson.
KONÁ ein fæddi hér i dag
fjórbura, þá fyrstu, sem fæðzt
fcaf»ijvjþjófc i 17 ár. Börnin,
þrjtr^táUnir og eintt drengur,
era bestu Msa,
Morgunblaðið 20. sept. 1962.
Send.: Aðalbjörg Erlingsdóttir.
Sendandi: B. V.
il á þeim slóðum. Hún kemur i
stað gámallar brúar sem er meir en
hálfar aldar gömul, og hefur þótt
næsta hvimleið vegna slæmrar
beygju á veginum beggja vegna frá
og Iíka vegna þess að brúin lá
niðri í sjálfu gljúfrinu, þar sem
oft skefldi að á vetrum. Nú verð-
ur brúin tekin af með öllu og
farið þráðbeint, eins og vegurinn'
vísar, yfir gljúfrið.
Vísir 11. júlí 1962.
Sendandi: Glúmur Gylfason.
Peníngaspfl syndsamleg
eftir efnum og ásfæðum
Þjóðviljinn 21. júlí 1962. Sendandi: B. V.
Heimsfriðurinn
Ástin
Gestur nokkur, sem var
staddur í veizlu hjá sendi-
herra, sagði við þann sem sat
við hlið honum, er þeir ræddu
um fallega stúlku, sem var
umkringd af karlmönnum
rétt hjá þeim: ,— Hún ætti
að. vinna hjá S. Þ. Sjáðu
hvernig hún leikur sér að því
að sameina þjóðirnar!
Predikarinn og púkinn
Sælla er að gefa
en þiggja.
Þetta sagði prest-
urinn, þegar iiann
gaf djáknanum á
kjaftinn.
Við lásum það nýlega í
erlendu blaði, að eftirlæti
áhorfenda í dýragarðinum í
Bern væru birnir. í garðinum
eru nú tvö pör. Bæli þeirra
liggja hlið við hlið, en eru
aðskilin með múr. Á báðum
stöðunum eru svolítil tré, sem
birnirnir geta klifrað í. Dag
nokkurn stóð maður við búrin
og horfði á birnina. Þá sá
hann, að annar björninn
klifraði upp í tré og kíkti yfir
múrinn yfir í hitt bælið. Hann
starði löngunaraugum á kven-
dýrið þar, sýndi tennurnar og
gaf frá sér nokkur angurvær
hljóð. Á meðan á þessu stóð
hafði hitt karldýrið klifrað
upp í tré og horfði nú yfir til
hins kvendýrsins og hegðaði
sér í öllu eins og fyrrnefnda
dýrið.
— Það er greinilegt, sagði
maðurinn við umsjónarmann-
inn, að þessi pör eiga ekki
saman. Hvers vegna skiptið
þér ekki um karldýr?
— Það geri ég líka ráð fyr-
ir, anzaði umsjónarmaðurinn
tómlega, -— ég geri það einu
sinni í mánuði.
Hjónabandið
Við könnumst lítilsháttar
við fjölskyldu nokkra, sem er
nýflutt úr mjög lítilli íbúð
í stórt og fallegt hús. Um
daginn rákumst við á yngsta
soninn í fjölskyldunni og
spurðum hann, hvernig liði
hjá honum og hvernig fjöl-
skyldunni geðjaðist að nýja
húsinu. Strákur svaraði:
— Það er stórkostlegt, ég
hef fengið sér herbergi og svo
báðar systur mínar. Hann
þagnaði andartak og sagði svo
eftir litla þögn: — En finnst
ykkur ekki skrítið, að pabbi
og mamma skuli þurfa að
kúldrast í sama herbergi?
*
Utvarpið
Þessi saga gerðist í sumar
en okkur barst hún ekki til
eyrna fyrr en nú. Fimm pipar-
sveinar ætluðu í ferðalag út
á land og hugðust vera nokkra
daga. Þegar þeir höfðu náð
í bílinn og voru komnir um
50 km út fyrir borgina, mundi
DOIMIMI
Sá hluti heimavinnu
eiginkonunnar, sem
aldrei verður unninn,
er alltaf það, sem hún
bað eiginmann sinn að
gera.
einn þeirra eftir að hann hafði
gleymt að slökkva á útvarp-
inu heima hjá sér, og vildi
hann snúa aftur til að slökkva
á því. Hinir löttu hann þess,
og sögðu, að það væri óþarfi,
því að útvarpið eyddi svo
litlu rafmagni.
— Það er ekki rafmagnið,
sem ég hef áhyggjur af, held-
ur kötturinn minn, hann situr
inni og það væri illvirki að
láta hann hlusta á þá dagskrá,
sem útvarpið hefur upp á að
bjóða.
Þeir félagar sneru við.
sá bezti
Saga þessi gerðist í útlöndum. Eiginkona
nokkur bað mann sinn um að taka niður
kökuwpvskrvjt í útvarpinu. Hann gerði eins
og hann gat, en fékk tvœr stöðvar, sem báðir útvörpuðu á
sama tíma og sló öllu saman. Hér sjáið þið árangurinn: —
Hendur á mjöðmum, setjið einn bolla af hveiti á öxlina,
verið beinir í hnjáliðunum og teygið úr tánum, hrærið létt
og Ijóst einn og hálfan bolla af mjólk, endurtákið sex sinn-
um. Andið fljótt að yður hálfri teskeið af lyftidufti, beygið
yður í hnjáliðunum og merjið tvö harðsoðin egg í gegnum
sáld; andið eðlilega og skiljið frá í skál. Athugið, liggið flatir
á gólfinu og veltið hvvtunum í eggjunum aftur á bak og
áfram unz þœr fara að sjóða. Eftir tíu mínútur skuluð þér
fjarlœgja þetta frá ofninum og nugga það vel með hand-
lclæði. Andið eðlilega og farið í léttan flúnelsklœðnað og
berið allt fram með góðri tómatsósu.
VÍSNAKEPPIMI FÁLKANS
Enn biðjum við menn að botna. Að þessu sinni er
fyrriparturinn um slátur og við væntum þess, að þeir
sem þeim mat unna, sendi okkur botna. Frestur til að
skila botnum er þrjár vikur, svo að varla verður
búið úr sláturtunnunni, þegar úrslitin berast.
Mörva slátur merginn ljær
Meyjarþroskann eykur.
FÁLKINN
5