Fálkinn - 17.10.1962, Blaðsíða 6
GÍRKASSAR
FYRIR ALLAR TEGUNDIR DIESELVÉLA
OTVEGUM VIÐ MEÐ STUTTUM FYRIRVARA
FRÁ TWIN-DISC VERKSMIÐJUNUM I
BANDARIKJUNUM, BRETLANDI OG BELGIU.
ENNFREMUR
KÚPLINGAR
AFLÚRTÖK
o. fl. tilheyrandi hluti.
Einkaumboð á íslandi fyrir
TWIN DISC CLCTCH COMPANY
BJÖRN & HALLDOR H.F.
VÉLAVERKSTÆÐI
SIÐUMOLA 9 — SÍMI 36030.
IÞiiil MÞiaí MÞial MÞial
atíi
díai
• Ityrjið dagiiut með DIAL
• Endið daginiK með DIAL
Heíldsölub. KRISTJÁN Ó. SKAGFJÖRÐ
REYKJAVÍK
6
FÁLKINN
Gömul vín og ný.
Kæra pósthólf. — Enda
þótt ég sé ungur aS árum,
þykir mér oft og tíðum gott
að fá mér í staupinu. Vil ég
þá helzt brennivín og þar
sem ég er ekki stóreignamað-
ur eða hátekjumaður, verður
annaðhvort brennivín eða
ákavíti fyrir valinu. Ekki
neita ég því, að það kemur
fyrir að maður fær sæmilegt
brennivín í ríkinu, en oftast
er það hrátt og vont. Eins er
þetta með ákavítið. Það er
alltaf nýtt og þar af leiðandi
hrátt. Satt að segja finnst mér
þessi vín ekki boðleg, miðað
við það, sem þau eru, þegar
þau eru orðin ársgömul eða
meira. Þá fyrst eru þau ljúf-
feng. Ég skal segja ykkur það
í trúnaði, að ég smakkaði tíu
ára gamalt ákavíti um daginn
og það var næstum því eins
og viský á bragðið. Mér finnst
að einokunarverzlunin ætti
að hafa alltaf gömul vín á
boðstólum, enda væri það
enginn vandi fyrir hana.
Brennivinskarl.
Svar:
Viö höfum nú heyrt þessa sögu
áður og vitum því, aö hún er
nœr sanni, hins vegar er viö og
viö hasgt aö fá gpmul brennd vín
eins og t. d. Brennivín og Áka-
víti keypt, en birgöirnar seljast
jafnóöum og þcer koma á mark-
aöinn. Áfengisverzlun ríkisins
mœtti því gjarna leggja meira
af þessum tegundum í kjallar-
ann, suo að hún geti a. m. k.
annaö eftirspurn allan ársins
hring.
Heilbrigð sál o. s. frv.
Kæri Fálki. — í 37. tbl. er
bréfkorn eitt, sem ber yfir-
skriftina Menntastofnun í
húsnæðishraki. í bréfi því er
vikið lítillega að íþróttahöll,
sem er í smíðum í höfuðborg-
inni. Ég verð að segja fyrir
mitt leyti, að íþróttahreyfing-
una hefur um árabil skort til-
finnanlega sal fyrir innan-
hússíþróttir og var því mál
til komið að hefja smíði hall-
arinnar. Þykir mér íþrótta-
höllin ekkert koma Mennta-
skólanum við og því rangt að
blanda smíði hennar inn í
húsnæðisvandræði hinnar
göfugu menntastofnunar. —
Menn ættu að muna það, sem
Grikkir hinir fornu sögðu:
Heilbrigð sál í hraustum lík-
ama. Þess vegna held ég að
ef vel er búið að íþróttaæsk-
unni, þá munu foreldrar ekki
þurfa að óttast, að ungling-
arnir lendi á glapstigum og
það er áreiðanlegt, að eins
mikil þörf er á góðum íþrótta-
sal í Reykjavík eins og nýju
Menntaskólahúsi.
Virðingarfyllst.
K. Æ.
Svar:
Viö erum bréfritarai ekki sam-
mála í öllum atriöum. AÖ vísu
viðurkennum viö, aö skort hefur
íþróttahöll til keppni, en bygging
hennar er ekki ncestum eins aö-
kallandi og aö reisa nýtt Mennta-
skólaliús. Ennfremur eru til í
borginni nokkrir íþróttasalir,
sem vel liefðu dugaö um nokkurt
skeiö, en Menntaskólaliús er aö-
eins eitt í borginni og þaö þótt.i
rúmgott fyrir hundraö árum.
Látum viö svo útrætt um mál
þessi í pósthólfinu.
Kópavogseiðarnir.
Heiðruðu herrar. — Ég hef
haft mikið yndi af að lesa
greinarnar hans Sigurðar Óla-
sonar um Kópavogsfundinn
1662 og þá eiða, sem þar voru
gerðir. Mér þykir rétt að
segja ykkur frá því, að allt frá
þeim tíma, sem ég var í barna-
skóla (það eru rúm 40 ár)
hefur frásögnin um fundinn
verið mér ofarlega í minni
og fannst mér, að íslendingar
hafi aldrei verið eins niður-
lægðir og aldrei sokkið eins
djúpt og þá, nema ef vera
skyldi nú á þessum síðustu
og verstu tímum. Ég minnist
þess, þegar kennarinn minn
var að fara yfir söguna, hve
Danahatrið logaði undir niðri
í honum og við krakkarnir
urðum náttúrlega fyrir áhrif-
um frá honum. Eftir að hann
hafði hlýtt okkur yfir frá-
sögnina um Kópavogsfundinn.
var Danasleikja versta orðið,
sem við tókum okkur í munn.
En ég hygg nú, að viðhorfin
til þeirrar þjóðar a. m. k. hjá
mér hafi mikið breytzt. Mað-
ur lítur núna öðruvísi á sög-