Fálkinn


Fálkinn - 17.10.1962, Side 11

Fálkinn - 17.10.1962, Side 11
 mp P;"r: T-'r^q J ' ' 'J :■ ■ ' — Hann er hreint ekki hjáguðinn minn, sagði Sylvetta — en hann gæti kannski orðið hjáguðinn þinn, ef þú skrifaðir leikrit, sem hann gæti leikið í. Auðvitað var þetta bara beita, sem Sylvetta hélt fyrir framan nefið á mér, en ég beit á krókinn. Þess vegna gutl- aði ég hlýðinn ásamt Sylvettu í kjölfar Ronalds Hashing. En allt hefur sín takmörk, og það sem rak smiðshöggið á þetta var ökuferð til bæjar eins á suðurströndinni. Það var aftaka veður og svo mikil ísing á veginum, að ég var með lífið í lúk- unum. Það var aðeins eitt af smáatrið- unum að ég ók á ljósastaur og skemmdi bílinn alvarlega. Áður en við lögðum af stað, hafði ég sagt við Sylvettu að það væri hreint brjálæði að aka í slíku veðri, en hún afvopnaði mig með löngum kossi og eftirfarandi skýringu: — Þú ert nú bezti maður í heimi, ef þú gerir mér þann greiða að fara, því að nú skal ég sýna þér, hvað ég fékk. Hún sýndi mér bréf frá Ronald Hashing og í því stóð: — Það væri afskaplega vingjarnlegt af yður að koma, og þér mynduð gera mér mikinn heiður ef þér vilduð heim- sækja mig í búningsklefa minn eftir sýningu. Auðvitað fórum við. Sylvetta var í sjöunda himni, þegar hún fylgdi mér ásamt heilli hersingu af vinkonum til búningsklefa Ronalds Heshing. Ég var ekki næstum því eins hrifinn, og mér fannst ég vera eins og flagari, á leið til stefnumóts við eina af kór- stelpunum. Það reyndist nefnilega ekki mikið rúm í búningsklefa Ronalds Hashing, og léttklæddar meyjar voru sífellt á ferðinni, út og inn. Ég var þó kynntur fyrir stjörnunni, og ég heilsaði kurteislega og gat þess um leið að leikritið væri fyrirtak. Það meinti ég þó ekki, en ég er ákaflega kurteis að eðlisfari. Annars sá konan mín um samræð- urnar og ég hafði nógan tíma til að hugsa í ró og næði. Einstaka sinnum leyfði ég mér að líta aðdáunaraugum á grannvaxnar stúlkukindur, er áttu leið fram hjá mér, en annars var heili minn önnum kafinn. Ég hafði fengið fyrirtaks hugmynd. Nú hafði ég séð, hvernig lífið er hjá leikara í umferðar- leikflokki, ég hafði kynnst andrúms- loftinu í búningsklefa hans, og ég fann, að þarna hafði ég fengið efnivið í gott leikrit — dálítið, sem var alveg tilvalið fyrir leiksvið. Við vorum ekki fyrr komin heim, en að ég dró fram ritvélina mína og fór að vinna að leikritinu. Mánuði síðar sendi ég það til for- stjóra eins leikhússins, og skömmu seinna fékk ég svar. Kvöld nokkurt sat ég á eftirlætis veitingahúsinu mínu yfir glasi af öli. .. og þá kom einn af mínum beztu vinum að borðinu til mín. Ég brann í skinninu eftir að gera eihvern að trúnaðarmanni mínum, og ég sagði honum leyndarmálið. —Þú mátt alls ekki segja neinum frá því, byrjaði ég. — Þannig er mál með vexti, að Sylvetta má alls ekki komast að því. Ég hef skrifað leikrit undir dulnefni, og þessi fjárans Ronald Hashing á að leika aðalhlutverkið. Þessi vinur minn, sem þekkti gjörla ástríðu Sylvettu fyrir Ronald Hashing, brosti út undir bæði eyru, og spurði um hvað leikritið fjallaði. — Það fjallar um leikara, sem er ofsóttur af einum af sínum kvenlegu aðdáendum, sagði ég. — Það endar með því, að hann verður að segja henni Framhald á bls. 30. FALKINN 11

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.