Fálkinn


Fálkinn - 17.10.1962, Page 17

Fálkinn - 17.10.1962, Page 17
Guðmundur Jónsson þjálfari Fram svarar: Þegar þessu skal svarað kemur sjálf- sagt margt til greina. Margir leikmenn vinna langan vinnudag, 10 og jafnvel 12 stundir á dag. Með slíkum vinnudegi er orðið lítið eftir fyrir knattspyrnuna. Þá hætta margir keppni of snemma, eru oft á bezta keppnisaldri 25—30 ára, en þá eru þeir bæði búnir að fá leikreynslu og hugsun í leik. Menn stofna heimili, standa í byggingum og geta ekki misst tíma og peninga. Þá er það stutt keppnistímabil og veðráttan. Á vorin eru vellir slæmir vegna frosta og óhagstæðrar veðráttu og á haustin er það myrkrið. Þá er baga- legt hvað íslandsmótið slitnar í sundur. Sem dæmi má' nefna að við leikum á ísafirði á sunnudag, í Reykjavík á þriðjudag og svo líður heill mánuður án leiks. Við þetta slitnar allt í sundur og þó menn æfi vel er eins og eitthvað vanti þegar mótið byrjar að nýju. Þá skortir okkur einnig að fá leik- menn sem hættir eru keppni til að vinna sem leiðbeinendur hjá yngri flokkun- um. Það getur verið mjög ánægjulegt að vinna með ungu drengjunum og allir hljóta að skilja þá nauðsyn, að þeir sem eldri eru og reyndari miðli hinum kunnáttu sinni og þekkingu. Að endingu langar mig til að hvetja alla leikmenn, yngri og eldri, að leggja mikið í æfingarnar og leikinn, því þá mun árangurinn ekki láta standa á sér. Guðmundur: — Illt að slíta mót í sundur. Sigurgeir Guðmannsson þjálfari hjá K. R. svarar. Það tel ég vera skort á hæfum þjálf- urum og um það held ég að allir geti verið sammála. Hér eru ekki nema þrír „kvalifiseraðir“ þjálfarar og á ég þar við Reyni Karlsson, Óla B. Jónsson og Karl Guðmundsson. Þá vantar betri þjálfun hjá yngri flokkunum, en samn- inginn milli K. S. í. og íþróttakennarar skólans um þjálfunarnámskeið, tel ég vera spor í rétta átt, þótt það mál sé enn á byrjunarstigi. Þá tel ég, að knatt- spyrnumenn taki sér of langa hvíld eftir að mótum er lokið, því þegar reglu- bundin þjálfun hefst að nýju, má segja að þeir byrji á núlli hvað úthald snertir. Þá er of mikið um aukaieiki sem trufla reglubundna leikniðurröðun. Þetta hefur líka truflandi áhrif á æfing- Sigurgeir: — Lýsingu á æfingarsvæðin. ar, því menn fara að sjá þessa leiki í stað þess að mæta á æfingum, þótt þjálfarar reyni að sporna við því. Þá hefur varaliðum 1. deildar ekki verið nægur sómi sýndur, 6 til 9 leikir er of lítið. Hér þarf að hafa fleiri leiki og skapa aukna keppni og áhuga. Þá eru tengslin milli meistara- og II. flokks orðin úrelt. Annað hvort er mað- urinn í meistara- eða II. flokki, og ekki á að taka tillit til þess í leikjaniðurröð- un, þannig að ef II. flokkur fer utan þurfi meistaraflokkur að bíða, eða öf- ugt. Þá vil ég minnast á eitt atriði til við- bótar. Á æfingarsvæði félaganna vantar nauðsynlega lýsingu. Væri þessi lýsing fyrir hendi mætti æfa á kvöldin snemma vors og eins á haustin því margir leikmenn vinna langan vinnu- dag. Ríkharður: — Leiki á laugardögxun. Ríkarður Jónsson þjálfari Akraness og fyrirliði landsliðsins svarar: Höfuðmeinið við okkar knattspyrnu í dag tel ég vera of langan vinnutíma leikmanna. Skortur á vinnuafli er svo mikill, að menn vinna 12 og allt að 15 tíma á sólarhring. Þótt æfing sé klukkan 8.30 er ekki þar með sagt að menn geti mætt vinnu sinnar vegna og það er ákaflega erfitt að hafa æfingu eftir svo langan vinnudag. Æfingu tvisvar í viku klukkan 5.30 og leik um helgar að auki teldi ég spor í rétta átt. í þessu sambandi er ekki fráleitt að íhuga að margir af okkar beztu spil- urum koma upp þegar mikið atvinnu- leysi var ríkjandi. í sambandi við mótafyrirkomulag er nauðsynlegt að koma á meiri reglu varðandi leikina. Það á að vera hægt að ganga að aukaleikjum á vissum dög- um. Þá eru það leikir um helgar. Ég teldi miklu heppilegra að leika á laug- ardögum. Þeir menn sem standa í þessu eru bundnir liðunum allar helgar og eiga aldrei frí. Það er erfitt að halda mönnum frá skemmtunum nær allt sumarið. Það er sagt að laugardagsleik- ir gefi ekki eins góða aðsókn og sunnu- dagsleikir vegna þess að fólk fari úr bænum, en það fólk sem fer er ekki komið aftur klukkan fjögur á sunnudag. Þá er mjög bagalegt að hafa leiki eftir að menn eru búnir að vera á fótum 12 og 15 tíma og jafnvel vinnandi. Ef hugsa á um góða útkomu í sam- bandi við landsleiki mundi ég telja heppilegra að hafa þá að haustinu. FÁLKINN 17

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.