Fálkinn - 17.10.1962, Blaðsíða 20
Sigurður Magnússon, skipstjóri Jóhannes Jóhannesson, skipstjóri Guðmundur Oddson, veizlustjóri Karl Sigurbergsson, skipstjóri
á Víði SU, og frú hans. á Eldey, Keflavík, og frú. hófsins, og frú hans. á Freyju, Garði og frú hans.
Þeir þekkjast
talstöðina
SíldveiSum fyrir norðan er lokið og
veiðzt hefur vel. Yfirmenn og hásetar
fara hver til síns heima með fullar hend-
ur fjár. Því er mál til komið að lyfta
sér upp eftir sumarið, bregða undir
sig betri fætinum, og gamna sér við vín
og víf.
Fálkinn flaug fyrir skömmu upp í
Lido og dvaldist þar með síldarskip-
stjórum eina kvöldstund. Þeir héldu
Jakobi Jakobssyni fiskifræðingi þar
veizlu honum til heiðurs, — voru að
þakka honum vel unnin störf um sum-
arið 1 þágu síldveiðanna. Jafnframt not-
uðu þeir tækifærið til að koma saman
og gleðjast yfir góðum aflafeng um
sumarið, skálandi fyrir næsta sumri.
Þarna var gleði mikil og kátína,
menn skemmtu sér yfir borðum, yfir
grísasteik og humar, og drukkin vorú
létt vín, — kampavín, hvítvín og rauð-
vín. Ræður haldnar, skálað fyrir fiski-
fræðingnum og síldarleitinni, talað fyr-
ir minni kvenna, sungin Fósturlandsins
freyja, og Táp og fjör og frískir menn.
Meðan setið var undir borðum söng
Guðmundur Jónsson, Karl Guðmunds-
son fór með skemmtiþátt og leikararnir
Bessi Bjarnason og Gunnar Eyjólfsson
fóru með samtalsþátt. Síðan var dansað
við undirleik hljómsveitar Svavars
Gests.
Þarna mátti sjá margan aflamanninn,
enda þótt sumir væru þegar flognir
suður í heim. Menn dönsuðu af kappi
á milli þess, sem þeir drukku hóflega
vínin, allir voru kátir, enda yfir miklu
að kætast. Þeir virtust vera í stuði,
síldarskipstjórarnir, þetta kvöld og
frúrnar Ijómuðu af gleði, ekki aðeins
vegna þess, að bóndinn hafði fært
mikla björg í bú, heldur vegna þess, að
þær höfðu nú í fyrsta skipti komizt út
með eiginmanninum á sumrinu.
Guðmundur H. Oddsson stjórnaði
hófinu af prýði og sagði hann í ræðu
að þarna væru staddir margir skip-
stjórar, sem komnir væru langt að, og
flestir væru með landformenn sína.
Hann flutti því kveðjur frá þeim, sem
fjarstaddir voru, en meðal þeirra var
Eggert Gíslason á Víði II, en hann gat
ekki komið sökum lasleika.
Um 100 skipstjórar hafa verið þai’na
staddir. Ög einkennandi var að þeir
þekktu varla hvorir aðra í sjón. Var
okkur sagt, áð þeir þekktu raddirnar í
gegnum talstÖðvarnar, en hefðu margir
hverjir aldrei sézt. Væri því þessi
skemmtun meðfram haldin til þess að
auka innbyrðis kynni meðal skipstjór-
anna.